Læknablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 39
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
KLEPPUR í 100 Á R
við Helga ætíð síðan, þá beindist andúð sumra
vinstri manna að Kleppi. Þetta var mjög slæmt
því hvergi á öðru sviði lækninga er jafn mikilvægt
að byggja upp traust milli stofnunar, sjúklinga og
samfélagsins og verst af öllu er ef geðsjúkrastofn-
un litast af pólitískum leðjuslag samtímans. Frægt
er málið þegar skáldinu Vilhjálmi frá Skáholti
var haldið nauðugum á Kleppi í nokkra mánuði
og vinstri menn töldu óræka staðfestingu þess
að Kleppur væri stjórntæki hinna hægri sinnuðu
valdhafa. Eg verð að viðurkenna að ég hafði ekki
áttað mig á því áður hversu djúpt þessi pólitíski
ágreiningur um Klepp risti í samfélaginu fyrr en
ég fór að kynna mér söguna."
Gaukshreiðrið mótaði hugmyndir
Orðið sjálft, Kleppur, hefur í hugum þjóðarinnar
fengið á sig mjög skýra og einfalda merkingu og
ýmis orð og orðasambönd urðu til á síðustu öld
sem tengdust spítalanum á Kleppi. Kleppsmatur,
klepptækur, kleppsvinna hafa öll mjög ákveðna
merkingu og upprunaleg merking orðsins sem er
samkvæmt íslenskri orðabók klepri eða snurða
eða klöpp hefur horfið. Ekki má gleyma orðinu
kleppari sem þýddi einfaldlega að vera geðveik-
ur.
„Þetta er plagsiður víða í kringum okkur og í
sænsku er t.d. talað um vadstenara sem er dreg-
ið af geðsjúkrahúsi í bænum Vadstena. Vegna
smæðar landsins og þess að þetta er eini geðspít-
alinn þá verður þetta enn meira áberandi fyrir
vikið og einungis í neikvæðum skilningi. Þetta
verður allt hluti af orðfari sem á að lýsa neikvæð-
um eiginleikum fari einstaklings. Þetta ýtir svo
undir þá miklu fordóma sem voru í samfélaginu
gagnvart Kleppi, það var ekkert jákvætt við að
hafa legið á Kleppi og fólk tengdi Klepp fyrst og
fremst við þá ímynd að þar væri fólk æpandi upp
um alla veggi. Hræðslan við að verða innlyksa
á Kleppi var líka mjög raunveruleg og átti sann-
arlega við rök að styðjast því margir áttu þaðan
ekki afturkvæmt. Kleppur tengdist líka skugga-
veröld geðveiki og glæpa samtímans því þar
voru vistaðir flestir glæpamenn íslands um lengri
eða skemmri tíma. Staðfesting á þessu er hversu
hrætt fólk var við staðinn og þeir sem bjuggu í
Kleppsholtinu, í sundunum og við Langholtsveg
lifðu margir hverjir í stöðugum ótta um að þeir
eða börnin þeirra yrðu fyrir barðinu á geðsjúkl-
ingum á Kleppi. Það gerðist þó aldrei svo ég viti
til. í lesendabréfum dagblaðanna er fólk engu að
síður að krefjast þess að í kringum Klepp verði
reistur mannhæðarhár múr til að vernda almenn-
ing fyrir vistmönnunum."
Þú dregurfratn greinar úr dagblöðum frá áttunda
Óttar Gudnwndsson
Kleppur
I ■/IAA
í 100 ár
áratugnum þar sem blaðamenn fóru á Klepp og skrif-
uðu greinar um upplifun sína.
„Þetta virðist hafa verið nokkuð vinsælt á þeim
tíma og það sem kom mér á óvart var hversu fá-
fróðir blaðamennirnir hafa verið og hversu flatt
upp á þá virðist hafa komið margt af því sem telja
má sjálfsagt í meðhöndlun geðsjúkra. Hugmyndir
þeirra um Klepp eru einnig mjög barnalegar og
hlaðnar ýmsum fordómum. Þeir eru undrandi á
því að sjúklingarnir geti tjáð sig og hafi skoðanir
á ýmsu, séu ekki þroskaheftir en það virðist hafa
verið algengt að leggja þetta tvennt að jöfnu."
Mestur áhrifavaldur á skoðanir fólks á geð-
sjúkum og geðsjúkrastofnunum á áttunda áratug
síðustu aldar er að mati Óttars kvikmyndin
Gaukshreiðrið.
„Áhrif kvikmyndarinnar sem kom út 1973 og
bókarinnar sem kom út í Bandaríkjunum 10 árum
fyrr eru gríðarleg og mótuðu hugmyndir heillar
kynslóðar um geðsjúka og geðsjúkrahús. Myndin
sannfærði fólk um að á geðsjúkrahúsum væru
sjúklingar gangandi um slefandi og heilalausir,
meðhöndlaðir út í eitt með raflosti og lóbótómíu.
Þessi mynd sem þarna er dregin upp er í engu
samræmi við það sem var raunverulega að ger-
ast í geðlækningum á þessum tíma. Höfundur
Gaukshreiðursins, Ken Keasey, skrifar þessa
skáldsögu útfrá reynslu sinni sem starfsmaður á
geðsjúkrahúsi í Bandaríkjunum á sjötta áratugn-
um áður en nýju lyfin komu fram sem gjörbreyta
ásýnd og yfirbragði geðdeilda í byrjun sjöunda
áratugarins. Myndin gefur því kolranga mynd
Kápa bókarinnar Kleppur
í 100 ár eftir Óttar
Guðmundsson sem JPV
gefur út oger væntanleg úr
prentsmiðju þá og þegar.
LÆKNAblaðið 2007/93 771