Læknablaðið - 15.11.2007, Page 55
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
TÆKNIPISTILL 2:
REMOTE DESKTOP
Kíkjum heim í frímínútum
Davíð B.
Þórisson
dbt@hive.is
Fyrir nokkru var ég að keyra um á svarta Nissan
bílnum mínum þegar ég óvænt en til mikillar
gleði uppgötvaði að á milli framsætanna er
bollahaldari sem hægt er að draga út og geyma
kaffibollann í. Eftir þetta hef ég átt auðveld-
ara með að brosa á leið minni í vinnuna enda
áhyggjulaus af því að sulla niður ilmandi kaffinu
í morgunumferðinni.
Stundum uppgötvum við nýjungar sem gera
okkur lífið þægilegara. Enn skemmtilegara er
þó að uppgötva nýjungar sem breyta lífi- eða
lífsrútínu okkar til hins betra. Persónulega er ég
í stöðugri leit að nýjungum sem gera dagsrút-
ínuna fljótvirkari og skilvirkari - að ná að kreista
út þessa auka klukkustund úr sólarhringnum
sem okkur öll vantar svo sárlega. Læknastéttin
er á hlaupum frá frá fyrstu til seinustu mínútu
vinnudagsins en er jafnframt í þeirri sérstöðu að
inn á milli verkefna myndast dauðir tímar sem
nýtast illa eða ekki. Því langar mig til að deila
með ykkur uppgötvun sem ég gerði á sínum tíma
og hefur margfaldað afköst mín yfir daginn. Það
er mín reynsla að nánast enginn kollega minna
þekkja til þessa tóls og því get ég ekki ímyndað
mér annað en að þessi uppgötvun geti komið
mörgum lesendum til góða.
Hvað gerir Remote Desktop fyrir mig?
Um er að ræða Remote Desktop (RD) - smáforrit
sem er innbyggt í Windows stýrikerfið og því til
staðar á öllum PC tölvum. Það sem RD gerir er
að tengja þig við aðra tölvu þannig að það sé eins
og þú sért sestur fyrir framan viðkomandi vél.
Stór gluggi opnast og öll forrit og gögn sem eru
á hinni tölvunni eru nú komin í tengigluggann.
Öll gögn og forrit eru nú aðgengileg eins og þú
værir staddur fyrir framan viðkomandi tölvu.
Möguleikarnir sem opnast með þessu eru gríðar-
legir enda getur þú með þessu tengst heimatölvu
þinni hvaðan sem er á í heiminum svo lengi sem
tölvurnar tvær eru tengdar Internetinu. Sem er
ekki óalgengt í dag!
Hvað þýðir þetta fyrir hinn venjulega tölvu-
notanda? Tökum nokkur praktísk dæmi.
• Outlook-póstforritið þitt er nú opið eins og
heima og þú hefur strax aðgang að kontakt-
lista, skipulagsbók, verkefnalista og tölvu-
pósti. Þú getur auðveldlega sent út póst frá
heimanetfanginu þínu án þess að skrá þig inn
á flókið vefviðmót fyrst.
• Öll skjöl á tölvunni hinum megin eru nú
aðgengileg og sömuleiðis forritin sem lesa þau.
Sjálfur safna ég gjarnan tímaritagreinum sem
ég tel skipta máli fyrir starf mitt. Ég nota PDF
forrit til að strika yfir aðalatriðin með rafræn-
um, gulum penna og vista svo skjalið aftur
þannig að þetta sé geymt. Með RD tenging-
unni get ég gert þetta án þess að þurfa að færa
greinasafnið á milli tölva með USB kubb eða
flóknum tölvupóstsendingum. Gögnin eru allt-
af geymd á sama stað, á heimatölvunni. Sama
á við um öll önnur gögn sem ég hef safnað
að mér, hvort sem er Powerpoint fyrirlestrar,
Word-skjöl, hljóðskrár, myndir og myndbönd
sem ég hef safnað að mér til að hjálpa mér í
klínískri vinnu.
• Þar sem ég kemst í öll forrit sem ég hef sett
upp á heimatölvunni er ég ekki háður því að
þau séu sett upp á vinnutölvunni. Ég nota
reglulega flókin myndvinnsluforrit til að
klippa til og laga myndir sem ég hef komist
yfir. Með RD tengingunni get ég unnið í mynd-
unum hvort sem ég er heima hjá mér eða við
vinnutölvuna.
• Oft erum við búin að stilla vafrarann þannig
að hann man leyniorð og stillingar á netsíðum
sem við erum að skoða. Það getur verið al-
gjörlega óþolandi að komast ekki inn á síður í
öðrum tölvum þegar maður man ekki aðgang-
sorðin. Með RD tengingu getur þú notað vafr-
arann heima og þetta vandamál er úr sögunni.
• Öðru hvoru þarf ég að rifja upp hjarta-
hljóð sem ég hef tamið mér að hlusta eftir.
Hljóðskrárnar eru að sjálfsögðu allar geymdar
í heimatölvunni og því er auðvelt að hlusta
á þær í gegnum RD tenginguna. Þegar bið er
eftir næsta sjúkling get ég jafnvel sett lappir
upp á borð og hlustað á sinfoníur Beethovens
úr heimatölvunni.
í raun er hægt að tengjast hvaða nettengdri
tölvu sem er. Auk þess að tengjast heim úr vinnu-
tölvunni er einnig hægt að tengjast öðrum tölvum
sem eru á sama neti. Þannig getur þú t.d. tengst
tölvu sem er annars staðar á vinnustaðnum eða
stýrt öðrum tölvum heima hjá þér úr móðurtölv-
unni. Við ætlum í þessum pistli bara að skoða
tengingu heim úr vinnutölvunni - við ætlum að
skreppa heim í frímínútunum!
Gangi ykkur vel!
LÆKNAblaðið 2007/93 787