Læknablaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 45
Á
UMRÆÐUR O G FRÉTTI
FERÐ U M NÝJA-S JÁLAN
Ekkifer á milli mála að ökklinn er brotinn.
af hæstu fossum heims að ónefndum óteljandi sandflugum. Við
vorum búin að vara gönguhópinn við þessari óværu en það var
ekki fyrr en eftir fyrsta daginn að við vorum tekin trúanleg og
eftir það var ekki hægt að þekkja gönguhópinn Sára og súra
fætur frá hópi hryðjuverkamanna enda stóð nefbroddurinn
einn framundan klæðum sumra göngumanna."
Allir komu heilir heim en það er meira en sagt verður um
áströlsku konuna sem hópurinn gekk fram á á leiðinni en
hún hafði ökklabrotnað mjög illa og gat sig hvergi hreyft og
var mjög kvalin er íslensku læknarnir fundu hana. Ferðina
hafði hún farið í tilefni af sextugsafmæli sínu og bar afmælið
einmitt upp á þennan dag. Er óhætt að segja að hún hafi
tæpast getað verið „heppnari" með afmælisgjöf því hvorki
fleiri né færri en fjórir sérfræðingar tóku að sér að sinna henni,
heimilislæknirinn Alma Eir gaf henni verkjastillandi og hélt
eiginmanninum rólegum, bæklunarskurðlæknirinn Kristbjörg
Sigurðardóttir greindi brotið og stjórnaði spelkuaðgerð sem
Guðjón Birgisson skurðlæknir og Annika Suneson, sænskur
heila- og taugaskurðlæknir (vinkona Kristbjargar), aðstoðuðu
hana við. Ekki löngu síðar var konan sótt af þyrlu og flutt á
sjúkrahús til frekari aðhlynningar. Þótti henni svo mikils vert
um þessa frábæru aðstoð að eftir heimkomuna til Ástralíu þar
sem hún sat með gifsklæddan fótinn og beið þess að brotið
greri, samdi hún ítarlegt þakkarbréf til íslensku læknanna og
kvaðst seint fá fullþakkað hversu vel þau önnuðust um hana á
slysstað. Bréfið stílaði hún á Læknafélag íslands sem kom því
áfram til hlutaðeigandi.
Hópurinn hélt síðan áfram göngu sinni og lauk ferðinni
með sóma og var almenn ánægja með ferðina þegar heim var
komið.
Gönguhðpurinn á
Makinnon skarði, einum
efsta hluta Milford Track
gönguleiðarinnar á Nýja
Sjálandi. Aftasta röðfrá
vinstri: Pétur Jðnsson,
Steingrímur Birgisson.
Næsta röðf.v. Sigrún
Sigurðardóttir, Soffía
Lárusdóttir, Svanhildur
Vilhelmsdóttir, Kristbjörg
Sigurðardóttir, Guðfinna
Magney Sævarsdóttir,
Annika Suneson,
Elínborg Bárðardóttir,
ívar Pálsson, Ólafur Þór
Gunnarsson, lngólfur
Kolbeinsson, Carolyn
Parker, Einar Hreinsson,
Kelvin McKinstry, Svanur
Sigurbjörnsson, Eggert
Vébjörnsson. Eremsta röð
f.v. Hilmar Kjartansson,
Svava Kristinsdóttir,
Kristinn Ingólfsson,
Alma Eir Svavarsdóttir,
Guðjón Birgisson,
Kristveig Sigurðardóttir,
Sveinn Eiríksson,
Rósa Guðmundsdóttir,
Svanfríður Birgisdóttir og
Sigurbjörn Kristinsson. I
baksýn má sjá páfagauk af
tegundinni Kia áflugi sem
er eins konar einkennisfugl
svæðisins. Á myndina vant-
ar: Kila Calarco og Melo
Calarco setn voru að mynda
hópinn.
LÆKNAblaðið 2008/94 557