Læknablaðið - 15.04.2009, Blaðsíða 7
RITSTJORNARGREINAR
Engilbert
Sigurðsson
engilbs@landspitali. is
Höfundur er
sviðsstjóri á skrifstofu kennslu,
vísinda og þróunar (SKVÞ),
yfirlæknir og kennslustjóri
á geðsviði Landspítala
Hringbraut,
101 Reykjavík.
Loss, appreciation and
regret
Engilbert Sigurdsson BSc
MD MSc MRCPsych MSc
(epid)
Medical Director and
Consultant Psychiatrist,
Clinical Associate Professor
in Psychiatry.
Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur
Vinnusemi, nægjusemi og nýtni hafa um aldir verið
meðal höfuðdyggða íslendinga. Atvinnuþátttaka
hefur áratugum saman verið mjög mikil, 83%
samkvæmt ársskýrslu Vinnumálastofnunar árið 2006,
og atvinnuleysi lítið síðastliðna áratugi, mest 5% árið
1995. Ljóst er að atvinnuleysi hefur aukist hraðar en
reiknað var með, einkum á höfuðborgarsvæðinu,
þar sem þenslan var mest. Það stefnir í að hlutfall
atvinnulausra fari yfir 10% með vorinu. Svo kemur
sumarið. Tugir þúsunda skólafólks munu þá streyma
inn á vinnumarkaðinn.
Nú eru ungir og miðaldra karlar í meirihluta
meðai fólks í atvinnuleit. Margir þeirra muna ekki
annað en að ganga að atvinnu sem sjálfsögðum hlut.
Sjálfsmynd eldri hluta hópsins er oft nátengd því
að hafa vinnu og vera aðalfyrirvinna heimilisins.
Reynslan sýnir að ýmsir úr hópnum, einkum þeir
yngri, eiga á hættu að missa tök á daglegum lífstakti,
snúa sólarhringnum við og leita í vímugjafa. Nýlegar
innlendar rannsóknir sýna meiri aðlögunarhæfni
atvinnuleitandi kvenna en karla.1
Akureyringar þekkja böl atvinnuleysisins vel frá
níunda áratugsíðustu aldar. Eftirbankahrunið íbyrjun
október stofnuðu hagsmunaaðilar þar í bæ strax
Almannaheillanefnd sem hefur fundað reglulega.
íþróttafélögin á Akureyri hafa einnig staðið að ókeypis
virknidagskrá fyrir bæjarbúa. Valsmenn riðu á vaðið
sunnan heiða þegar þeir opnuðu í mars virknisetur í
íþróttaaðstöðu sinni á dagvinnutíma. Reykjanesbær
og Akureyri hafa einnig tryggt fólki í atvinnuleit
ókeypis aðgang að sundlaugum, Rauði krossinn
hefur opnað hús með námskeiðum, ráðgjöf og virkni
í Borgartúni í Reykjavík, og Reykjanesbær opnaði í
janúar aðstöðu fyrir námsmenn og atvinnuleitendur
undir einu þaki. Háskóli íslands hefur kvikmyndað
fyrirlestraröðina „Mannlíf og kreppur" og eru
fyrirlestramir aðgengilegir á heimasíðu skólans,
hi.is.2
„Óvanalegar aðstæður kalla á óvanaleg viðbrögð,"
sagði hagfræðingur nokkur nýlega í sjónvarpsviðtali.
í fréttum hljómar það raunar oft eins og um
spilapeninga sé að ræða þegar rætt er um að setja
hundruð milljarða í að fjármagna banka til að
atvinnulíf og fólk fái þrifist. Þegar rætt er um að verja
fé milliliðalaust í aðkallandi þjónustu eða tfmabundin
störf til að auka atvinnuþátttöku mætti hins vegar
ætla að um gullpeninga eða blóðpeninga væri að
ræða. Þá er gjaman talað í milljónum eða í besta
falli í milljónatugum. Viðbótarfé sem ríkið (við) ver
í vinnu og námskeið fyrir skólafólk er vel varið við
þessar aðstæður. Eftirspumin eftir sumarstörfum
mun að óbreyttu aukast og framboðið minnka. Fréttir
herma að það þurfi færri tugi milljarða en ráð var
fyrir gert til að fjármagna nýju bankana. Nýtum að
minnsta kosti einn, jafnvel bara einn, til ráðast í fleiri
atvinnuskapandi sumarverkefni fyrir ungt fólk.
Þegar áhættuþættir heilsubrests og vanlíðunar
aukast hjá fjölmennum hópum innan samfélags, þarf
víðtækar aðgerðir til að milda áhrifin á hópana til
skemmri og lengri tíma. Slík nálgun skilar mestu í
lýðheilsu.3 Föllum ekki í sömu gryfju og Finnar sem
telja vaxandi örorku í góðærinu upp úr aldamótum
tengjast óheillaáhrifum kreppunnar á böm, unglinga,
irngt fólk og foreldra á áratugnum eftir að jámtjaldið
féll. Mat aðila í félags- og heilbrigðisþjónustu í
Finnlandi er að gengið hafi verið of langt þar í
niðurskurði á félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu á
krepputímunum 1991-1995. Við íslendingar fáum ekki
annað tækifæri til að kanna hvort skynsamlegra hefði
verið að bregðast öðmvísi við hér á landi eftir fimm ár.
Það verður of seint. Reynslu Finna má túlka þannig að
það sé ekki aðeins mannúðlegt að þétta sálfélagslega
netið í kringum börn, unglinga og atvinnuleitendur
á tímum kreppu og atvinnuleysis, heldur sé það
einnig hagkvæmt. Þá er horft til stöðugrar aukningar
langtíma örorku í Finnlandi á góðæristímum, á
árunum 2000-2007. Siðferðilega ber okkur að milda
áhrif glópsku eldri kynslóða og heimskreppu á þær
kynslóðir sem á eftir koma.
Ríkisstjóm og sveitarstjómir þurfa að taka höndum
saman með athafnafólki frá frjálsum félagasamtökum,
fólki sem kann til verka við að skipuleggja virkni
með leikjanámskeiðum, námi og tímabundnum
verkefnum fyrir böm, unglinga og atvinnuleitendur.
Nýstofnuð Velferðarvakt, samstarfsverkefni ríkis
og sveitarfélaga, getur unnið að greiningu á
þörfum hópa sem verða illa úti og stuðlað að
samhæfingu viðbragða. Jafnframt er full ástæða til
að læknar spyrji atvinnulausa sem til þeirra leita
hvort þeir geti virkjað þekkingu sína og krafta með
sjálfboðavinnu í þágu nærsamfélags síns. Sælla er að
gefa en þiggja. Hverfamiðstöðvar, íþróttafélög, Rauði
krossinn, björgunarsveitir og skátamir geta haldið
utan um slíkt framtak og byrjað á því að vinna með
atvinnuleitandi félagsmönnum lir eigin röðum. Ekki
skortir verkefnin.
Heimildir
1. Guðmundsson HS. Aftur til vinnu. Þróun úrræða fyrir
langtímaatvinnulausa. Ritstjórar Jóhannesson GÞ, Bjöms-
dóttir H. Rannsóknir í félagsvísindum IX 2008.
2. www.hi.is/mannlif_og_kreppur
3. Rose H. The Strategy of Preventive Medicine. Oxford
University Press, 1992.
LÆKNAblaðið 2009/95 255