Læknablaðið - 15.04.2009, Síða 45
Hávar
Sigurjónsson
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
RISTILKRABBASKIMUN
Skimun
skiptir máli
í tengslum við fyrirhugað fræðsluátak
um ristil- og endaþarmskrabbamein kom
hingað til lands í marsmánuði Nea Malila
frá Finnlandi en hún hefur stýrt yfirgrips-
mikilli skimun fyrir ristilkrabbameini í
Finnlandi frá árinu 2004.
Árangur hefur verið mjög góður og þátttaka
farið fram úr björtustu vonum. Læknablaðið átti
samtal við Neu Malila er hún var stödd hér á
landi í boði Krabbameinsfélags Reykjavíkur og
Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar en félögin stóðu
fyrir málþingi um ristilkrabbamein 14. mars undir
yfirskriftinni Forvörn er fyrirhyggja.
Krabbamein í ristli og endaþarmi er þriðja
algengasta krabbameinið í báðum kynjum meðal
íslendinga. Árlega greinast um 112 einstaklingar
með þessi krabbamein og 40-50 sjúklingar deyja á
hverju ári vegna þessa sjúkdóms, ef tekið er mið af
árabilinu 1995-1999. Meðalaldur þeirra sem grein-
ast eru um 70 ár, en nýgengi (fjöldi nýrra tilfella
á ákveðnu tímabili) byrjar að aukast um 50 ára
aldurinn, en er tiltölulega sjaldgæft fyrir fimmtugt
eða um 6-7% af öllum greindum ristilkrabbamein-
um. Krabbamein í ristli á árunum 1995-1999 er
heldur algengara hjá körlum (240) en konum
(186), en endaþarmskrabbamein er nær jafn al-
gengt (66 konur, 70 karlar). Þessi krabbamein eru
því heldur algengari hjá körlum. Um 90% þeirra
sem greinast eru 50 ára eða eldri. Þá greinast 11-
12% æxlanna við 50-60 ára aldur, 20% við 60-70 ára
aldur. Rúmlega helmingur ristilkrabbameina sem
finnst á hverju ári greinist hjá einstaklingum sem
eru á aldrinum 50-75 ára.
Ofangreindar upplýsingar koma fram í nýrri
grein Ásgeirs Theódórs meltingarfærasérfræðings
sem birt er á doktor.is. Þar segir Ásgeir enn-
fremur:
„Hér á landi hefur verið í undirbúningi mark-
visst fræðsluátak, sem aðallega mun beinast
að almenningi varðandi krabbamein í ristli og
endaþarmi. Mun það fjalla um áhættuþætti,
einkenni og ýmsar forvarnaraðgerðir. Fyrirhugað
er að hefja þetta fræðsluátak næstkomandi haust.
Þá hefur nefnd á vegum landlæknis skilað til-
lögum að leiðbeiningum um skimun fyrir krabba-
meini í ristli og endaþarmi. Umsagnir nokkurra
aðila um þessar tillögur eru nú til athugunar, en
endanlegum leiðbeiningum um eftirlit og skimun
fyrir þessu krabbameini er að vænta fljótlega."
Góður árangur af skimun
„Frumkvæðið að skimunarátakinu fyrir ristil-
krabbameininu kom frá samtökum Krabba-
meinsfélaga í Finnlandi og undirbúningur hófst
2001. Rökin fyrir því að hefja skimun voru
niðurstöður rannsókna í öðrum löndum þar sem
sýnt var fram á með óyggjandi hætti að skimun
drægi úr dauðsföllum af völdum krabbameins í
ristli og endaþarmi," segir Nea Malila.
Hún segir að sveitarfélögum í Finnlandi sé í
sjálfsvald sett hvort þau taki þátt í skimuninni
en ef þau geri það gangi þau inn á skilmála um
framkvæmd skimunarinnar sem krabbameins-
samtökin hafa sett. „Sveitarfélögin greiða fyrir
póstkostnað við skimunina og sjá síðan um að
vinna úr gögnunum og sinna speglunum við
þá sem kallaðir eru inn í kjölfarið. Þetta hefur
gengið mjög vel og skilað mjög góðum árangri.
Fram að þessu hefur um helmingur allra sveitar-
félaga í landinu tekið þátt og framundan er þátttaka
þriggja stærstu sveitarfélaganna, borganna, og
markmiðið er að ná til helmings allra í markhóp-
num."
Skimunin er takmörkuð við aldurshópinn 60-
69 ára og Nea segir að vissulega hefði þau viljað
stækka markhópinn með því að taka inn aldurs-
hópinn 50-59 ára en það hafi verið talið of kostn-
aðarsamt. „Dánartíðni af völdum þessa krabba-
meins er hæst hjá 74 ára karlmönnum og því varð
aldurshópurinn 60-69 ára fyrir valinu."
Skimunin fer þannig fram að þátttakendur fá
sent í pósti einfaldan skimunarbúnað til að taka
saursýni og senda það síðan til baka þar sem leitað
er eftir hvort blóð leynist í saurnum en það er ein
LÆKNAblaðið 2009/95 293