Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2009, Side 12

Læknablaðið - 15.06.2009, Side 12
F R Æ Ð I G R E I RANNSÓKN N A R Aldur Mynd 1. Ristilkrabbamein á íslandi 1955-2004: dreifing tilfella eftir aldri og kyni. Mynd 2. Ristilkrabbamein á íslandi 1955-2004: breytingar á aldursstööluðu nýgengi (heimsstaðall) karla og kvenna. svæðiseitla með tilliti til meinvarpa (NO-2, NX) og fjarmeinvörp (MO-1, MX) samkvæmt skilgreiningum American Joint Committee on Cancer,9' 10 æxlisvöxtur í sogæðum/bláæðum (til staðar, ekki til staðar, óþekkt)5 og ástand hliðarskurðbrúnar með tilliti til æxlisvaxtar (til staðar, ekki til staðar, óþekkt).5 Loks var stig skráð samkvæmt TNM-kerfinu (I- IV, óþekkt) með undirflokkum fyrir tímabilið 1980-2004 (IIA, IIB, IIIA, IIIB, IIIC).9 ítarlegri sundurgreining á íferðardýpt (T4a, þvert inn í annað líffæri; T4b, gegnum lífhimnu; T4a+b, hvoru tveggja) var gerð fyrir tímabilið 1980- 2004.10 Öll vefjagler sjúklinga voru endurskoðuð og endurmetin með tilliti til framangreindra meinafræðiþátta, auk þess sem vefjasvör og krufningarskýrslur voru jafnframt yfirfarin sem og fengnar upplýsingar af vefjarannsóknar- beiðnum. I þeim tilfellum þar sem gler vantaði eða gæði þeirra voru ófullnægjandi voru paraffínkubbar með vefjasýnum fundnir fram og ný vefjagler skorin og lituð með Hematoxylin/ Eosin litun. Gerðar voru mótefnalitanir (CK7 og CK20) í þeim tilvikum þar sem slíkt var talið nauðsynlegt til flokkunar eða greiningar, meðal annars á öllum tilfellum þar sem aðeins var til vefur úr meinvarpi eða vafi lék á að æxlisvöxtur væri úr ristli. Hvað varðar sundurgreiningu á æxlum í ristli og endaþarmi var stuðst við leiðbeiningar frá Intemational Union Against Cancer.11 Ekki var ákvörðuð gráða fyrir afbrigði af hefðbundnu kirtilkrabbameini, svo sem slímkirtilkrabbamein. Nýgengi og aldursstöðlun var ákvarðað sam- kvæmt heimsstaðli (world standard population). Kí-kvaðratsprófi var beitt til ákvörðunar mark- tektarmismunar á hlutföllum fyrir þekkt gildi. Fyrir samfelldar tölur var beitt T-prófi. Til að ákvarða tilhneigingu með tíma var beitt línulegri aðhvarfsgreiningu og skoðuð breyting á nýgengi fyrir aldurshópa. Marktækni var miðuð við 5% mark. Tölfræðiforritið SPSS var notað til útreikninga. Vísindasiðanefnd hefur samþykkt rannsóknina (tilvísun 00/118 afg.). Persónuvernd hefur verið tilkynnt um rannsóknaráætlunina (nr. 484). Þá voru fengin leyfi frá KÍ og framkvæmdastjórum lækninga á Landspítala, Vefjarannsóknarstofunni Álfheimum 74 og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um þýði: Alls voru 2521 ristilkrabbameinstilfelli skráð á tímabilinu 1955-2004. Samanlagt voru 142 tilfelli útilokuð þar sem álitið var að uppruni væri utan ristils. í 32 tilvikum náði æxlisvöxtur ekki niður fyrir vöðvaþynnu ristilslímhúðar, í fjórum tilfellum var ekki um illkynja æxlisvöxt að ræða og þrjú ristilkrabbamein voru ekki af þekjuuppruna. Jafnframt var 47 samtíma (synchronous) og síðara tíma (metachronous) ristilkrabbameinum sleppt. Það voru því 2293 tilfelli, 1145 konur (49,9%) og 1148 karlar (50,1%), sem mynduðu grunn þessarar rannsóknar. Til grundvallar greiningu voru til vefjasýni í 93% tilvika (ristilúrnám 79%, sepataka 1%, sýnataka úr frumæxli 3%, sýnataka úr meinvarpi 3%, krufning 6%) en í 7% tilvika var greining byggð á klínískum upplýsingum. Niðurstöður Skurðtíðni jókst úr 49% tímabilið 1955-1964 í 86% tímabilið 1995-2004. Fyrir sama árabil fækkaði hlutfallslega tilfellum sem greindust með krufn- ingu úr 14% í 3% og klínískum geiningum úr 31% í 1%. Konur voru fleiri en karlar í aldurshópnum 80 ára og eldri (p=0,001), karlar fleiri en konur í aldurshópnum 60-79 ára (p=0,001) en ekki var 424 LÆKNAblaðið 2009/95

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.