Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2009, Page 15

Læknablaðið - 15.06.2009, Page 15
Umræða FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN 1 þessari rannsókn höfum við með ýtarlegri endurskoðun lýst lýðfræðilegum og meinafræði- legum eiginleikum ristilkrabbameina af þekju- uppruna hjá heilli þjóð yfir 50 ára tímabil. Skurðtíðni jókst um 30-40% og taldist 86% síðustu 10 ár rannsóknarinnar (1995-2004). Fyrir krabbamein í ristli og endaþarmi innan sama árabils hafa aðrar rannsóknir sýnt skurðtíðni á bilinu 71%12 til 91%.13-14 Hlutfall vefjafræðilega staðfestra tilfella jókst einnig en þau töldust 98- 99% á tímabilinu 1995-2004. í samanburði var þetta hlutfallið 93-94% í Noregi árin 1996-200015 og 97% í Bandaríkjunum á tímabilinu 1985- 1989.16 Þá fækkaði tilfellum er greindust með krufningu, mögulega að hluta vegna lækkandi krufningatíðni á íslandi17 en áhrif betri greiningar fyrir andlát kynnu einnig að hafa áhrif til lækkunar krufningagreindra tilfella. Með vaxandi mannfjölda á Islandi og stækkandi hópi aldraðra á landinu hefur tíðni ristilkrabbameins aukist hér á landi. Þegar leiðrétt er fyrir breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar kemur einnig fram aukning á nýgengi sem er allnokkru meiri hjá körlum (þreföldun) en konum (tvöföldun) og sýnir fram á meiri áhættu nú en áður á því að greinast með sjúkdóminn. Meiri aukning meðal karla en kvenna hefur einnig komið fram annars staðar á Norðurlöndum.18 Nýgengisaukningin kemur fram hjá körlum yfir 55 ára aldri og hjá konum yfir 65 ára aldri en ekki í yngri aldurshópum. Arfgeng ristilkrabbamein koma fyrr fram á ævinni en stakstæð tilfelli sem frekar eru tengd hærri aldri og lífsstíl.191 samræmi við það má álykta að lífsstílsbreytingar gætu tengst vaxandi nýgengi meðal íslendinga. Bætt greiningartækni getur einnig haft áhrif með þeim hætti að auka fjölda greindra tilfella með tíma (detection bias). í samanburði við hin Norðurlöndin fyrir tíma- bilið 1997-2001 eru íslenskir karlar með næsthæst nýgengi ristilkrabbameins á eftir norskum körlum en íslenskar konur eru í þriðja hæsta sæti á eftir norskum og dönskum konum.20 Kynjahlutfall í rannsókninni er svipað og hjá Evrópuþjóðum almennt (karlar 51%) og í Bandaríkjunum (karlar 50%) fyrir tímabilið 1985- 1989.16 Meðalaldur kvenna við greiningu ristilkrabba- meins reyndist hærri en meðalaldur karla og hlut- fall kvenna yfir áttrætt var hærra en meðal karla. Það er í samræmi við hærri meðalævilengd kvenna en karla á íslandi17 auk þess sem rannsóknin sýnir að nýgengi hækkar með aldri. Hækkandi meðalaldur þeirra er greinast með ristilkrabbamein er einnig í samræmi við hækkandi meðalaldur Tafla IV. Ristilkrabbamein á ístandi 1955-2004: tilfelli flokkuð eftir íferðardýpt, æðaíferð, ástandi eitla, fjarmeinvörpum, TNM-stigi og kynjum. Fjöldi tilfella, hlutfall (%) og p-gildi fyrir kynjamun sýnt. Karlar Konur Allir p-giidia Fjöldi 1148 (%) 1145 (%) 2293(%) iferðardýpt (T) 0,30 T1 og T2 134 (12) 118(10) 252 (11) T3 og T4 852 (74) 863 (75) 1715(75) TX, óþekkt 162 (14) 164 (14) 326 (14) Æðaíferð <0,001 Ekki til staðar 674 (59) 567 (50) 1241 (54) Til staðar 293 (26) 365 (32) 658 (29) Óþekkt 181 (16) 213(19) 394 (17) Eitlameinvörp (N) 0,93 N0, ekki til staðar 499 (43) 471 (41) 970 (42) N1, 1-3 eitlar jákvæðir 269 (23) 264 (23) 533 (23) N2, 24 eitlar jákvæðir 134 (12) 131 (11) 265 (12) NX, óþekkt 246 (21) 279 (24) 525 (23) Fjarmeinvörp (M) 0,61 M0, ekki til staðar 810(71) 803 (70) 1613(70) M1, til staðar 248 (22) 233 (20) 481 (21) MX, óþekkt 90 (8) 109 (10) 199(9) TNM-stig 0,23 I 96 (8) 67(6) 163 (7) II 369 (32) 369 (32) 738 (32) III 280 (24) 272 (24) 552 (24) IV 248 (22) 233 (20) 481 (21) Óþekkt 155 (14) 204 (18) 359 (16) T1 og T2, æxlisvöxtur til staðar í eða innan slímhúðarbeðs eða vöðvalags garnarinnar; T3 og T4, æxlisvöxtur til staðar í fitu umhverfis ristil, æxlisvöxtur fer gegnum lífhimnuklæðningu ristils og/eða nær inn í annað líffæri; X, óþekkt. aMunur á kynjum reiknaður með kí-kvaðratprófi, óþekkt tilfelli ekki höfð með í útreikningum. Mynd 5. Aldursbundið nýgengi ristilkmbbameins tneðnl knrla og kvennn á íslandi 1955- 2004. Myndin sýnir mun á tímabilinu 1955-1979 og 1980-2004. Kk., karlkyn. Kvk., kvenkyn. LÆKNAblaðið 2009/95 427

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.