Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2009, Síða 22

Læknablaðið - 15.06.2009, Síða 22
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Mynd 1. Algengi mígrenis Gagnasöfnun fór fram á tímabilinu nóvember / mismunandi afdurshópum 2004 til maí 2005. Skráð voru einkenni, tímalengd meoal karla og kvenna. ° frá byrjun einkenna þar til sjúkdómurinn var greindur, fjöldi kasta, lyfjameðferð, sjúkraþjálfun, fylgisjúkdómar, hvort viðkomandi hefði farið í tölvusneiðmynd af höfði og hvort sjúklingur hefði farið til taugalæknis. Öll notkun sértækra mígrenilyfja á þessu tímabili var skráð, ásamt notkun lyfja sem oft eru notuð við mígreni en einnig öðrum sjúkdómum. Hér er til dæmis átt við NSAID (non steroid antiinflamatory drugs), beta- hemla og lyf sem innihalda kódein. Rannsóknin var samþykkt af Persónuvernd og Vísindasiðanefnd. Tölfræðileg úrvinnsla var gerð með SPSS og tölfræðileg marktækni miðuð við p- gildi minna en 0,05 við tvíhliða prófun. Niðurstöður Algengi: Alls greindust 490 einstaklingar, með lögheimili á upptökusvæði stöðvarinnar, með mígreni á tímabilinu 1990-2000. Mígrenigreining Tafla I. Fjöldi ávísaöra lyfja vegna mígrenis. Lyf Fjöldi (%) NSAID 126(26) Migpriv 21 (4) Treo 9(2) Verkjalyf með kódein 157 (32) Imigran 197(40) Relpax 13(3) Zomig 9(2) Maxalt 25(5) Anervan/Gynergen comp 79 (16) Beta blokkar 116(24) Amilin 15(3) fannst því hjá 2,3% skjólstæðinga stöðvarinnar. Aldursdreifing var frá 8 ára og upp í 91 árs og var meðalaldur við greiningu 39,9 ár (mynd 1). Af þeim voru 364 konur (74%) og 126 karlar (26%). Kynjahlutfall var því nálægt 1:3 (kkrkvk). Einkenni: Tæplega fjórðungur sjúklinganna (23%) höfðu haft einkenni í tugi ára (10-40 ár) áður en sjúkdómurinn var greindur, en hjá rúmlega helmingi sjúklinga var ekki skráður tími einkenna fyrir greiningu (mynd 2). Við greiningu reyndust um 15% vera með 2-4 köst á mánuði og um 8% með fimm eða fleiri höfuðverkjaköst á mánuði. Hjá rúmlega 60% var tíðni kasta ekki skráð við greiningu. Þegar skoðuð voru skráð einkenni við greiningu reyndust 19% vera með slæman verk í höfði, 38% með verk öðrum megin í höfði, 41% með ógleði/ uppköst, 14% púlserandi verk, 31% með ljós-/ hljóðfælni. Fimmtungur sjúklinga var með fyrir- boða (aura). Aðrir sjúkdómar: Um fjórðungur (26%) sjúklinga hafði einnig þunglyndisgreiningu og fimmti hver sjúklingur var með kvíðagreiningu (mynd 3). Ekki var um tölfræðilegan marktækan mun að ræða milli kynja nema hvað varðar þunglyndi (p=0,025). Tæplega 1% höfðu fengið heilablóðfall og 2,4% voru með sjúkdómsgreininguna flogaveiki. Rannsóknir: Þriðji hver sjúklingur hafði farið í tölvusneiðmynd af höfði og hjá þriðjungi voru upplýsingar um að viðkomandi hefði farið eða verið vísað til taugalæknis. Meðferð: Þegar meðferð sjúklinganna var skoðuð kom í ljós að 28% höfðu fengið meðferð hjá sjúkraþjálfara á þessu tímabili, meðal annars vegna vöðvabólgu (verkja og spennu) í hálsi og herðum. Lyfjameðferð var afar mismunandi og höfðu sumir ekki fengið neina lyfjameðferð en aðrir voru meðhöndlaðir með sjö mismunandi lyfjum. Fjöldi lyfja sem notuð voru er sýndur í töflu I. Tæplega 50% höfðu notað lyf úr flokki triptan-lyfja, en þar var Imigran langalgengasta lyfið á þessum tíma, 32% höfðu fengið kódein-innihaldandi lyf og tæplega 24% höfðu notað beta-hemla. 32% höfðu notað bólgueyðandi lyf (NSAID) og 16% ergótamín- blönduð lyf (mynd 4). Umræður Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að rúmlega 2% skjólstæðinga stöðvarinnar hafa fengið sjúkdómsgreininguna mígreni. Flestar faraldursfræðilegar rannsóknir sýna að algengi mígrenis er 4-10% hjá körlum og 15-18% hjá konum.3- 4 Fjölmargar rannsóknir sýna hins vegar að mígreni er vangreint8-9 og ástæður þess geta verið margar, meðal annars leita margir 434 LÆKNAblaðií 2009/95

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.