Læknablaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 37
Ú R
U M R Æ Ð U R
PENNA STJÓRN
0 G FRÉTTIR
ARMANNA LÍ
r
Frá tóbaksvörnum til húsnæðismála Ll
Þórarinn
Guðnason
hjartalæknir
thg@simnet.is
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir,
formaður
Þórarinn Guðnason,
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir,
gjaldkeri
Sigríður Ó. Haraldsdóttir,
rítarí
Elinborg Bárðardóttir
Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir
Kristján G. Guðmundsson
Sigurður Böðvarsson
Valgerður Rúnarsdóttir
I pistlunum Úrpenna
stjórnarmanna LÍ birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Tóbaksvarnaþing
Aðalfundur Læknafélags íslands árið 2008 fól stjóm
félagsins að boða til Tóbaksvamaþings. Þingið
verður haldið föstudaginn 11. september 2009. Efni
fundarins verður að ræða leiðir til að gera Island
tóbakslaust að mestu á næstu 15 árum.
Ætlunin er að boða til fundarins fulltrúa allra
aðila sem lagt geta þessu máli lið, til dæmis fulltrúa
sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka, íþróttahreyf-
ingarinnar, lækna, heilbrigðisstarfsmanna, við-
skiptalífsins, menntakerfisins og svo framvegis.
Hafi einhver samtök áhuga á að senda fulltrúa
á þingið er það velkomið og hér með er auglýst
eftir slíkum áhuga. Viðkomandi má hafa samband
við skrifstofu Læknafélags íslands og tilkynna
þátttöku.
Verulegur árangur hefur náðst á umliðnum
áratugum í baráttunni við tóbaksnotkun og tóbaks-
fíkn. Reykingabann á opinberum stöðum sem sett
var árið 2007 virðist hafa skilað vemlegum árangri
og var síðasti landvinningurinn í þessari baráttu.
Þrátt fyrir það er enn langt í land sem
sést best á því að þorri landsmanna deyr úr
hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameinum og
lungnasjúkdómum, það er að segja reykinga-
tengdum sjúkdómum. Einnig má nefna að 80%
þeirra tæplega 2000 einstaklinga sem þurfa á
hjartaþræðingu að halda árlega eru reykingamenn
eða fyrmm reykingamenn. Slíkar tölur færa okkur
heim sanninn um að tóbaksfíkn sé ertn verulegt
heilsufarslegt vandamál og að kraftmikilla aðgerða
sé áfram þörf í baráttunni við tóbakið. Börn og
unglingar byrja því miður ennþá að reykja, ánetjast
nikótínfíkninni sem mun fylgja þeim ævilangt.
Eitt af því sem tímabært er að velta fyrir sér er
hvort banna eigi alfarið sölu tóbaks á almennum
markaði í áföngum og takmarka þannig aðgengi
ungmennanna okkar að þessu fíkniefni. Jafnframt
minnkandi aðgengi má veita þeim sem þegar em
nikótínfíklar aðgang að tóbaki gegn lyfseðli undir
eftirliti lækna. Þessi aðgerð beinist þannig að því að
fækka þeim sem ánetjast nikótíninu.
Mótrök eru auðvitað einhver. Einhverjir missa
spón úr sínum aski. Smygl á tóbaki gæti aukist.
Hvað sem því líður mun sá þröskuldur sem
unglingur þarf að klífa yfir til að byrja reykingar
verða hærri með slíku fyrirkomulagi. Það gæti
minnkað reykingar meðal þjóðarinnar á einhverjum
tíma úr um 20% í 5%. Fáar aðgerðir myndu spara
meira í heilbrigðiskerfinu. Sá spamaður veldur
hvorki þjónustuskerðingu né launalækkunum. Þá
spamaðarleið ætti heilbrigðisráðherra að skoða í
alvöru.
Þetta og fleira þarf að ræða á tóbaksvamaþing-
inu í haust. ísland gæti ertn á ný gengið á undan með
góðu fordæmi á heimsvísu í tóbaksvamamálum. Til
að gera það vel þurfum við hvorki að vera sterkust í
heimi, fallegust né ríkust.
Hlíðasmári - húsnæði lækna
Nýting á ágætu húsnæði læknafélaganna í Hlíða-
smára er frekar lítil og þörf er á að ræða stefnuna
í húsnæðismálum félagsins. Ef vilji er til breytinga
gæti það reynst erfitt í núverandi efnahagsástandi.
Það er ekki auðvelt að selja húsnæði og sjóðir
félagsins hafa minnkað í kreppunni sem takmarkar
möguleikcina til að kaupa eða byggja nýtt húsnæði.
Besta sóknarfærið á næstunni er því ef til vill að
nýta aðstöðuna okkar betur.
Nýlega var ráðist í endurbætur á aðstöðu
til funda í Hlíðasmára. Þar er eldhús, þráðlaus
nettenging, nýir skjávarpar og húsgögn voru
endumýjuð að hluta. Hægt er að funda í fjórum
sölum sem passa fyrir flestar stærðir funda og
fyrirlestra.
Á meðan þessi aðstaða er vannýtt eru læknar,
félög þeirra, fyrirtæki og samtök að eyða tugum
þúsunda í leigu fyrir svipaða sali. Fundaaðstöðuna í
Hlíðasmára er hægt að fá fyrir mun lægri upphæðir
og í vissum tilvikum án endurgjalds. Með vaxandi
nýtingu má líka þróa starfsemina frekar, til dæmis
með samningi við aðila sem gæti séð um veitingar.
Læknafélag íslands hefur ákveðið að fundir á
þeirra vegum verði allir haldnir í sölum félagsins
nema sú aðstaða hentibeinlínis ekki. Það mun spara
nokkrar fjárhæðir á hverju ári. Ég hvet öll félög
og samtök lækna til að skoða hug sinn til þessa.
Aðstaðan í Hlíðasmára þarf að verða sá kostur sem
fyrst kemur upp í hugann þegar halda á fund eða
samkomu þar sem læknar koma við sögu.
Ef til vill ætti að auglýsa þessa aðstöðu betur
í Læknablaðinu og á heimasíðu okkar og jafnvel
víðar? Það mætti líka bjóða öðrum aðilum að-
stöðuna til láns eða leigu, til dæmis aðilum sem
funda með læknum eða heilbrigðisstarfsfólki.
Læknar þurfa að minna hver annan á þennan
möguleika. Ég held að oft sé það einfaldlega þannig
að við gleymum þessum góða kosti þegar boðað er
til fundar eða námsstefnu.
LÆKNAblaðið 2009/95 449