Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2009, Page 38

Læknablaðið - 15.06.2009, Page 38
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR HEIÐURSVÍSINDAMAÐUR Viðurkenning á starfi margra „Þemað í okkar rannsóknum hefur verið að leita að genum sem valda krabbameini, staðsetja þau, einangra og hlutverkagreina þau," segir Rósa Björk Barkardóttir sameindalíffræðingur, forstöðumaður sameindameinafræðieiningar á rannsóknastofu Landspítalans í meinafræði og klínískur prófessor, sem á dögunum hlaut viðurkenn- inguna heiðursvísindamaður ársins á Landspítala. Hávar Rósa Björk segir að eðli vísindarannsókna sé slíkt Sigurjónsson að þar komi alltaf hópur vísindamanna að og því séu verðlaunin viðurkenning á starfi fleiri en hennar einnar. „Við erum mjög samhentur og öflugur hópur sem störfum saman hér á rannsóknastofu í meinafræði á Landspítala og því lít ég svo á að viðurkenningin sé til okkar allra fyrir rannsóknir undanfarinna ára á krabbameinsvaldandi genum. Ég held að það sé á engan hallað þótt ég tiltaki nöfn fjögurra einstaklinga sem hafa unnið með mér svo til frá því ég hóf störf hér á Landspítalanum. Það eru líffræðingarnir Aðalgeir Arason og Guðrún Jóhannesdóttir, meinafræðingurinn Bjarni A. Agnarsson og krabbameinslæknirinn Óskar Þór Jóhannsson. Rannsóknir hafa beinst að leit að genum sem valda meðfæddri áhættu á að fá krabbamein og við höfum einbeitt okkur að fjölskyldum sem eru mest útsettar fyrir brjóstakrabbameini. Eitt af því sem gerir okkur kleift að stunda svona ættar- og fjölskyldurannsóknir er að krabbameinsskráin nær aftur til 1955 en þar eru skráðir allir sem greinst hafa með krabbamein frá þeim tíma og þar að auki eru til á rannsóknastofu í meinafræði lífssýni sem ná aftur til 1935. Við höfum einbeitt okkur að þeim ættum þar sem sýndin er há og miklar líkur á að einstaklingar beri stökkbreytt gen með sterk áhrif til krabbameinsmyndunar. Við höfum rannsakað bæði brjóstakrabbamein og blöðruhálskrabbamein en frá árinu 2000 höfum við verið í samstarfi við íslenska erfðagreiningu um blöðruhálskrabbamein og krabbamein í eistum en jafnframt haldið áfram okkar eigin rannsóknum á brjóstakrabbameini." Arfgengi krabbameinsgena Rósa Björk segir að þrátt fyrir að mjög greinilega megi sjá dæmi um ættlæg brjóstakrabbamein þá sé það engu síður fremur sjaldgæft. „Innan við 30% af brjóstakrabbameinum tengjast fyrri greiningu meinsins í ætt og af þeim er hægt að staðsetja þriðjung innan ætta sem hafa þessa háu sýnd. í sumum tilvikum er orsakagenið þekkt en oftar en ekki stafa brjóstakrabbameinin af öðrum genum sem enn er ekki búið að finna og greina. Við erum í rauninni að einbeita okkur í rannsóknum okkar að um það bil einum tíunda tilfella en þar eru þau mjög alvarleg." Hér staldrar Rósa Björk aðeins við og útskýrir að alvaran sé fólgin í því að sá sem fæddur er innan þessara ætta sem bera genið sé mun líklegri til að fá krabbameinið. „Ég er ekki að tala um batalíkur. Þetta snýst um erfðir og líkur á að fá sjúkdóminn." Stökkbreyttu genin sem valda brjóstakrabba- meini og eru þekkt eru kölluð BRCAl og BRCA2. „Stökkbreytta BRCAl genið er mjög sjaldgæft hér á landi og við höfum aðeins fundið það í þremur fjölskyldum en stökkbreytta BRCA2 genið er hins vegar hlutfallslega algengt hér á íslandi og við sjáum þá stökkbreytingu í um 7% af öllum konum sem greinast með brjóstakrabbamein og ein af hverjum fjórum konum sem greinist undir 40 ára aldri ber stökkbreytta genið í sér. BRCA2 genið fannst og var einangrað árið 1995. Það var einn af okkar stóru vísindasigrum, við tókum þátt í evrópsku samstarfi um einangrun BRCA2 gensins undir forystu Mike Strattons í Sutton í Englandi og rannsóknir okkar á íslenskum fjölskyldum áttu stóran þátt í að genið fannst. Þetta leiddi af sér birtingu á grein í Nature sem þykir einn mesti heiður sem hægt er að öðlast í alþjóðlega vísindasamfélaginu og í kjölfarið birtum við einnig niðurstöður íslensku rannsóknanna í mörgum af þekktustu ritum á sviði krabbameinsrannsókna í heiminum." 450 LÆKNAblaðið 2009/95

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.