Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.2009, Qupperneq 19

Læknablaðið - 15.07.2009, Qupperneq 19
FRÆÐIGREINAR Y F I R L I T Fjölónæmir berklar á íslandi - tilfellaröð og yfirlit Hilmir Ásgeirsson læknir' Kai Blöndal lungnalæknir2 Þorsteinn Blöndal lungnalæknir2-4 Magnús Gottfreðsson smitsjúkdómalæknir1-4 Lykilorð: fjölónæmir berklar, meðferð, skimun. ’Smitsjúkdómadeild Landspítala, 2göngudeild sóttvarna heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, 3lungnadeild Landspítala, “læknadeild HÍ. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómadeild Landspítala Fossvogi 108 Reykavík. Sími: 5431000, fax: 543 6568. magnusgo@landspitali. is Ágrip Inngangur: Fjölónæmir berklar eru vaxandi vandamál í heiminum. Árangur meðferðar er verri, sjúkrahúslegur lengri og kostnaður hærri en við lyfnæma berkla. Hér er lýst þremur tilfellum fjölónæmra berkla sem greinst hafa á íslandi síðastliðin sex ár, 2003-2008. Sjúkratilfelli: Fyrsta tilfellið var 23 ára innflytjandi frá Asíu sem lokið hafði fyrirbyggjandi meðferð vegna jákvæðs berklaprófs. Tveimur árum síðar lagðist hann inn með berkla í kviðarholi sem reyndust vera fjölónæmir. Hann lauk 18 mánaða meðferð og læknaðist. Annað tilfellið var 23 ára maður sem lagðist inn vegna fjölónæmra lungnaberkla. Hann hafði áður fengið meðferð í heimalandi sínu í A-Evrópu en ekki lokið henni. Hann lá inni í sjö mánuði og náði bata en gert var ráð fyrir tveggja ára meðferð. Þriðja tilfellið var 27 ára einkennalaus kona sem greindist með fjölónæma lungnaberkla við rakningu smits vegna fjölónæmra berkla bróður. Fyrirhuguð var 18 mánaða meðferð. Alyktun: Á síðustu sex árum greindust þrjú tilfelli fjölónæmra berkla hér á landi sem er nálægt 5% allra berklatilfella á tímabilinu. Á 12 árum þar á undan greindist eitt tilfelli og gæti þetta bent til yfirvofandi fjölgunar. Fjölónæmir berklar eru alvarlegir, erfiðir og kostnaðarsamir í meðhöndlun. Mikilvægt er að standa vel að berklavörnum, sérstaklega skimun innflytjenda. Inngangur Talið er að þriðjungur jarðarbúa séu smitaðir af berklabakteríunni, Mycobacterium tuberculosis}■ 2 Árið 2006 greindust 9,2 milljónir tilfella berkla í heiminum samkvæmt skráningu Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og sama ár létust 1,7 milljónir manna af völdum sjúkdómsins. Eru berklar sá smitsjúkdómur sem flesta dregur til dauða á eftir alnæmi.3-4 Mikill munur er á tíðni berkla milli landsvæða en almennt er talið að um 85% allra tilfella séu í Afríku og Asíu (mynd l).2'4 í Afríku hefur nýgengi sjúkdómsins aukist hratt undanfarna tvo áratugi og mest þar sem HlV-smit er útbreiddast, eða allt að 400 tilfelli /100.000 íbúa á ári. Einnig hefur sést aukning í A-Evrópu og Mið- Asíu en almennt hefur nýgengi verið stöðugt eða farið minnkandi annars staðar.3-4 Nýgengi berkla á íslandi hefur verið um fjögur tilfelli /100.000 íbúa á ári síðastliðin sex ár sem telst lágt í samanburði við aðrar þjóðir.4’6 Berklar sem eru ónæmir fyrir hefðbundnum berklalyfjum eru vaxandi vandamál. Sé bakterían ónæm samkvæmt næmisprófum fyrir bæði ísóníazíði og rífampíni, sem eru tvö aðallyf berklameðferðar, kallast berklarnir fjölónæmir (multi drug resistant, MDR-TB).7 Sé einnig ónæmi fyrir einhverju flúorókínólóni og að minnsta kosti einu af þremur varalyfjum í stunguformi (amikacíni, kanamýcíni eða capreomycíni) er um að ræða ofurónæma berkla (extensively drug resistant, XDR-TB).7-9 Áætlað er að tæplega 5% allra nýrra berklatilfella séu af völdum fjölónæmra berkla, eða um 500.000 tilfelli á ári í heiminum.4 Flestir greinast í SA-Asíu og leggja Kína og Indland til um helming allra tilfella fjölónæmra berkla.7 Hlutfallslega er tíðnin þó hæst í ríkjum fyrrum Sovétríkjanna í A-Evrópu og Mið-Asíu, þar sem allt að fjórðungur nýrra tilfella eru vegna fjölónæmra stofna (mynd 2).9 Tíðni fjölónæmra berkla eykst einnig hratt í Afríku sunnan Sahara, nátengt alnæmisfaraldrinum í álfunni.4-9 Ofurónæmum berklum var fyrst lýst árið 2005lan en hefur nú verið lýst í 55 löndum.12 Tilfelli ofurónæmra berkla eru enn tiltölulega fá en fjölgar hratt, sérstaklega á svæðum fyrrum Sovétríkjamra þar sem þau eru nú 4-24% af öllum tilfellum fjölónæmra berkla.9-13 Nýlega hefur verið lýst tilfellum berkla þar sem ónæmi var til staðar gegn öllum þekktum berklalyfjum sem prófað var fyrir.14 Meðferðarárangur við berklum almennt í heiminum öllum var um 85% árið 2005 samkvæmt skýrslum WHO.4 Árangur af meðferð fjölónæmra berkla er mun lakari og meðferðin bæði erfiðari, lengri og kostnaðarsamari. Við góðar aðstæður er árangurinn talinn vera um 75%, en í heiminum öllum líklega um eða innan við 60%.15-16 Almennt gengur enn verr að meðhöndla ofurónæma berkla.14-17-21 Undanfarna áratugi hefur nýgengi berkla á íslandi verið lágt í samanburði við önnur LÆKNAblaðið 2009/95 499
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.