Læknablaðið - 15.07.2009, Page 49
U M R Æ Ð U R
0 G
F R É T T I R
H J Ú K R U N
daglegs lífs. Það er því eðlilegt að horfa á þessa
hluti í samhengi og sem hluta af heild þegar fjallað
er um veikindi. í starfi mínu sem kennari lækna-
og hjúkrunarfræðinema kenni ég þeim að spyrja
sjúklinginn spurninga um áhrif veikindanna á líf
hans og fjölskyldu og þá átta nemarnir sig mjög
fljótt á samspilinu þarna á milli."
Lorraine Wright segir viðhorf lækna til fjöl-
skylduhjúkrunar vera bæði einstaklingsbundið og
nokkuð breytilegt eftir sérgreinum þeirra. „Það er
í rauninni mjög eðlilegt. Sérhæfðir skurðlæknar
hafa kannski lítið með fjölskyldu sjúklings að
gera en heimilislæknar, barnalæknar, geðlæknar,
lyflæknar í mörgum greinum, öldrunarlæknar og
fleiri, hafa fullan skilning á þessu og taka þátt í því
starfi sem fjölskylduhjúkrun kallar á."
Megintilgangur ráðstefnunnar er að skapa
aðstæður fyrir fjölskylduhjúkrunarfræðinga á
alþjóðlegum vettvangi til að deila þekkingu,
rannsóknarniðurstöðum og klínískri færni sín á
milli. Einnig er hún mikilvægur vettvangur fyrir
myndun og þróun alþjóðlegs rannsóknasamstarfs,
en alþjóðlegar rannsóknir hafa leitt í ljós að
markviss stuðningur við fjölskyldur einstaklinga
með bráð eða langvinn veikindi getur meðal
annars skilað sér í bættri líðan, minnkuðu óöryggi
og minni kvíða sjúklings og fjölskyldu hans.
Auk Lorraine Wright fjölluðu fyrirlesaramir
Madrean Schober, alþjóðlegur ráðgjafi frá
Bandaríkjunum, um þróun sérfræðingsþjónustu
í fjölskylduhjúkrun á tímum hagræðingar í heil-
brigðiskerfinu og Dr. Janice Bell frá Calgary í
Kanada um áhrif hjúkrunarmeðferða fyrir fjöl-
skyldur einstaklinga með bráða eða langvinna
sjúkdóma. Auk þeirra héldu 15 gestafyrirlesarar
erindi um nýjar áherslur í fjölskylduhjúkrun á
sviði erfðaráðgjafar, áhrifa sjúkdóma á fjölskyldur,
stuðning við fjölskyldur í sorg og í kreppu,
yfirfærslu og hagnýtingu þekkingar í kennslu
og innan heilbrigðiskerfisins, og fjallað var um
fjölskylduhjúkrun og stuðning við einstaklinga
til sjálfshjálpar. í sérstakri dagskrá voru kynntar
niðurstöður rannsókna á innleiðingu fjölskyldu-
hjúkrunar á Landspítala sem hófst í ársbyrjun 2007
á öllum starfseiningum hjúkmnar á spítalanum.
„Mér sýnist að hugur fylgi máli hér á Land-
spítalanum en spítalar í Bandaríkjunum eru
mjög misjafnir hvað þetta varðar. Reyndar eru
þeir allir með velferð fjölskyldunnar í fyrirrúmi í
yfirlýstri stefnu sinni en víða fer lítið fyrir henni
í raunverulegri starfsemi. Ég hef hins vegar fulla
trú á því að hér sé verið að gera mjög góða hluti,"
segir Lorraine Wright að lokum.
Ráðstefnuna sóttu um 460 þátttakendur frá
39 löndum og öllum heimsálfum. Flutt voru 231
erindi og kynnt 165 veggspjöld.
Forsala aögöngumiöa á
Reykholtshátíö 2009
er hafin á midi.is
Meöal flytjenda:
St. Christopher hljómsveltin
Trio Nordica og Fóstbrœöur
I f"~'\ i
. S && \l« iL\| _
Hinn þekkti sönghópur UniCum Laude
frá Ungverjalandi kemur fram 22.og 23. júlí
Mlsslö ekkl af frábœrum tónlelkum
Forsala á mldi.is www.reykholtshatid.is
LÆKNAblaðið 2009/95 529