Læknablaðið - 15.07.2009, Side 51
L Æ
UMRÆÐUR O G
KNISLIST O G FAG
F R É T T I R
M E N N S K A
„Coroners Court". Þar eru líka „internal" og
„external enquiries" og jafnvel frægð af endemum
í ensku pressunni. Ekki vil ég mæla þessu bót en
þetta er heldur ekki alslæmt. Það eru hvergi betri
aðstæður til að læra af hlutum en eftir skelfileg
atvik. Sjá hverju þarf að reyna að breyta og hvar
brotalamirnar í kerfinu eru.
Ef við rýnum ekki í hörmuleg atvik og reynum
að breyta meðferð á okkar kollegum gerum við
okkur sjálfum mikinn grikk og þá heldur þetta
bara áfram. Alvarlegir sjúkdómar eru algengir og
alvarlegir geðsjúkdómar eru einnig mjög algengir.
Það er hins vegar mjög auðvelt að skilja af
hverju tregða er í jafnlitlu kerfi og okkar að skoða
svona erfið mál. En ef við byrjum ekki á þessu þá
gera það bara einhverjir aðrir.
Breska læknafélagið leggur mikla áherslu á að
allir læknar hafi heimilislækni. Einnig að læknar
bregðist snemma við öllum viðvörunarmerkjum
um að þeir sjálfir séu veikir, sérstaklega ef
þessi einkenni gætu haft áhrif á störf þeirra
með sjúklingum. Þeir eru hvattir til að ræða
sín vandamál sem fyrst við heimilislækninn og
óformlegar gangalækningar eigi ætíð að forðast.
Öllum læknum ber skylda til að sjá til þess
að þeirra eigin heilsa hafi ekki áhrif á vinnu
þeirra með sjúklingum. Aðstæður geta skapast,
sérstaklega við geðsjúkdóma og fíknisjúkdóma,
sem minnkar innsæi þeirra. Hér kemur inn ábyrgð
þeirra nánustu samstarfsmanna og þeir bera
ábyrgð á að tekið sé á veikindunum. Þetta er bæði
vegna heilsu læknisins og velferðar sjúklinga hans.
Þessi ábyrgð er grundvallar siðferðileg skylda
okkar en hún er einnig vinargreiði við kollega
okkar. Að gangast ekki við þessari ábyrgð getur
leitt til enn alvarlegri veikinda og enn hættulegri
vinnubragða. Öllum læknum ber skylda til að
vernda sjúklinga gegn hættu sem þeim getur
stafað frá öðrum heilbrigðisstarfsmönnum.
Eins og í vinnu okkar með öllum sjúklingum
eiga sjúkir læknar rétt á sömu gæðum í lækningu
og sömu virðingu og allir aðrir sjúklingar. í þessu
felst að meðhöndla á lækni sem einstakling en
ekki sem lækni. Og þetta er annað af tveimur
grundvallaratriðum þessa erindis.
Læknum ber einnig skylda til að hlusta á vilja
læknis-sjúklingsins hvað varðar meðferð eins og
þeir eiga að hlusta á vilja annarra sjúklinga sinna.
Þeir eiga líka rétt á „second opinion" eins og allir
aðrir sjúklingar. Skoðunin og rannsóknirnar eiga
að vera jafn ítarlegar eins og við alla aðra sjúklinga
og eins og með aðra sjúklinga er mikilvægt að fá
sögu frá nánustu aðstandendum.
I sumum tilfellum getur verið óþægilegt fyrir
lækninn að þurfa að meðhöndla aðra lækna sem
sjúklinga. Því er enn mikilvægara, og hér komum
við að síðara grundvallaratriði þessa erindis,
að læknar geri sér grein fyrir að í sambandi
sínu við sinn lækni eru þeir sjálfir sjúklingar
og þeir hafa skyldur eins og aðrir sjúklingar í
sínu sambandi við lækna. Færa má einnig að
því rök að það að geta raunverulega brugðið
sér í sjúklingshlutverkið geri viðkomandi lækni
enn betri í sínu hlutverki sem lækni. Hér er ég
að tala um að skilja sjúklingana sína, sýna þeim
samkennd og ná enn betra sambandi sem skilar
sér í betri lækningu og í besta falli aukinni ánægju
fyrir báða aðila.
Heilbrigðisstarfsmenn eiga rétt á sömu þagnar-
skyldu og allir aðrir sjúklingar. Vegna áður
talinna vandamála er reynt að meðhöndla lækna
á öðrum svæðum en þeir vinna og er slíkt mjög
algengt á Bretlandseyjum. í litlu samfélagi er þetta
erfitt nema að allir fari til Akureyrar. Einnig eru
möguleikar á að senda veika lækna sem þurfa
innlögn úr landi. Þetta getur verið mjög mikilvægt
ef um alvarlega geðsjúkdóma er að ræða.
Einnig finnst mér sjálfum einkar mikilvægt
að sjálfræðislögunum á íslandi sé breytt. Að
mínu mati er það alltof mikil ábyrgð á íslenskar
fjölskyldur að þær þurfi að gefa samþykki sitt
fyrir að sjúklingar séu nauðungarvistaðir. Þetta er
sérstaklega slæmt þegar um er að ræða fjölskyldur
lækna.
En svo út í lækningu fyrir ykkur, ykkar fjöl-
skyldur, vini og sjúklinga.
Þessi fræði eru úr fjölskyldumeðferð sem ég
lærði í fjögur ár á The Prudence Skinner Family
Therapy Clinic á Springfield-geðsjúkrahúsinu í
Suður-Lundúnum.
Mig langar aðeins að biðja ykkur hvert og
eitt að hugleiða hvernig glímt var við erfiðleika
í ykkar fjölskyldum þegar þið sjálf voruð börn
og unglingar. Einnig hvernig ykkar nánustu litu
eftir sjálfinu í lífsins ólgusjó. Mig langar að biðja
ykkur að hugleiða hvort þið takið eftir einhverjum
hegðunarmynstrum þegar þið rifjið þetta upp,
einhver mynstur sem þið þekkið nú mörgum
árum síðar úr ykkar eigin lífi. Fjölskyldumeðferð
ráðleggur einnig að þið athugið og metið hver
af þessum hegðunarmynstrum eru hjálpleg og
þið viljið hafa meðferðis inn í framtíðina og
LÆKNAblaðið 2009/95 531