Læknablaðið - 15.07.2009, Page 53
UMRÆÐUR O G
LÆKNISLIST OG FAG
F R É T T I R
M E N N S K A
gefa börnunum ykkar. Einnig hvert af þessum
hegðunarmynstrum eru alls ekki hjálpleg og væri
virkilega gott að varpa frá borði hið snarasta.
Þessi fræði hugsa um sjálfið á heildrænan
hátt. Setja má þetta kerfi upp í nokkurs konar
lífshring: Grundvallarreglan er að lífið er erfitt.
Fyrirbyggingin og lækningin verður því að vera
inni í daglega lífinu. Nokkurs konar stundaskrá
yfir allar vikur lífsins þar sem öllum þessum
þáttum er sinnt eins reglulega og hægt er.
Meðferðarúrræðin eru í fjórum flokkum:
Líkamlegum,
vitsmunalegum,
andlegum
og tilfinningalegum.
Líkamleg lækning er að passa upp á
mataræðið, svefninn, fá mikla hreyfingu og útrás,
fara til læknis, tannlæknis og ef með þarf, að
taka lyf. Ekki nota dóp og drekka í miklu hófi.
Sum ykkar eiga gjörsamlega að hætta að drekka.
Afengisneysla í óhófi er besta leiðin til að verða
kvíðinn og þunglyndur. Gott kynlíf er hins vegar
mikil blessun fyrir líkama og sál.
Vitsmunaleg lækning er svo allt nám, þó ef til
vill ekki alveg eins og á fyrsta ári í læknadeild. Ég
er að tala um að lesa bækur og greinar sem vekja
mann til umhugsunar. Lenda í umræðum sem
reyna á hugann. Horfa á fræðsluþætti sem fylla
hugann og lífið af einhverju nýju, spennandi og
krefjandi.
Tilfinningaleg lækning er byggð á þeim miklu
sannindum enskrar tungu að „a problem shared
is a problem halved". Þetta gengur út á að rækta
sambandið við makann, vini og fjölskyldu. Og
í þessu er eitthvað sem er erfitt fyrir okkur sem
erum þjálfuð í að hlusta á vandamál annarra.
Reyna samt að muna að okkar veikleikar geta
verið okkar mesti styrkur í að ná raunverulegum
tengslum við aðrar góðar manneskjur.
Síðast en ekki síst er svo andlega lækningin.
Það vita allir sem eru trúaðir hversu mikilvægt
er að biðja eða vera andlega snertur í bænum eða
í guðshúsi. Manneskjan hefur þörf fyrir andlega
hluti, fyrir eitthvað sem við skiljum alls ekki en
bara skynjum. Fyrir þá sem eru ekki trúaðir er
þörfin þarna engu að síður. Þama getur okkar
andlega næring komið frá náttúrunni. Hinn græni
litur gróandans, öldur hins úfna hafs eða náttbál
á heiði. Tilkomumikið útsýni er geysilega andlegt.
Öll list er líka mjög andleg og við vitum hvert og
eitt hvaða listform snertir okkur djúpt, tekur þátt í
að líkna sálinni og lækna meinin.
Þessi ráð eru í hnotskum allt það sem gerir lífið
þess virði að því sé lifað. En ekki síður að líf okkar
sé líka skemmtilegt. Þetta þýðir ekki að allir þessir
hlutir geti alltaf verið til staðar. Hins vegar er ef
til vill hjálplegt að þið hugleiðið þessa þætti til
að passa upp á ykkur sjálf og passa upp á að sem
mest sé af góðum hlutum í ykkar lífi.
Með bestu kveðjum og von um velgengni.
Hvatningarverölaun prófessors Jónasar Magnússonar
Á síðasta Vísindaþingi Skurðlæknafélags íslands
og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands
voru í þriðja sinn veitt verðlaun fyrir besta erindi
unglæknis eða læknanema á þinginu. Þetta eru
peningaverðlaun og kennd við upphafsmann
þeirra og fyrrverandi prófessor í skurðlækningum,
Jónas Magnússon. Sigur úr býtum bar Sólveig H.
Helgadóttir, læknanemi á 5. ári, fyrir verkefnið
„Bráður nýrnaskaði eftir kransæðahjáveituað-
gerðir á íslandi". í 2.-4. sæti urðu Valentínus Þ.
Valdimarsson, læknanemi á 6. ári, fyrir verkefnið
„Góður árangur kælimeðferðar eftir hjartastopp",
Njáll Vikar Smárason, læknanemi á 4. ári, fyrir
verkefnið „Enduraðgerðir vegna blæðinga eftir
opnar hjartaskurðaðgerðir á Islandi" og Ingi
Hrafn Ólafsson, aðstoðarlæknir, fyrir verkefnið
„Litningabreytingar og tengsl við klínískar breytur
í brjóstakrabbameinum".
Stefnt er að því að verðlaunin verði veitt árlega
á vísindaþingi félaganna.
Kári Hreinsson og Tónms Guðbjartssonformennfélaganna, Sólveig Helgadóttir, Njáll,
Valentínus og Ingi Hrafn. Mynd Guðjón Birgisson.
LÆKNAblaðið 2009/95 533