Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2010, Side 60

Læknablaðið - 15.03.2010, Side 60
■■ L. U i.-= L V v ■■■ ■'■ : Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna Vísinda- og þróunarstyrkir Vorúthlutun 2010 Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) úthlutar styrkjum til vísinda- og þróunarverkefna á sviði heilsugæslu tvisvar á ári. Sjóðurinn veitir einnig sérstaka starfsstyrki til slíkrar vinnu. Umsóknir um vorúthlutun 2010 þurfa að berast sjóðnum fyrir 20. mars næstkomandi og ber að skila rafrænt á þar til gerðum eyðublöðum á heimasíðu FÍH, http:// lis.is/ltems/Default.aspx?b=2860 til Margrétar Aðalsteinsdóttur (magga@lis.is), Læknafélag íslands, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlunum eða framgangsskýrslu ef um endurumsókn sama verkefnis er að ræða. Starfsstyrkir geta verið allt frá 1 til 12 mánaða í senn. Upphæð starfsstyrks miðast við fasta upphæð sem svarar til dagvinnulauna styrkþega og er þá tekið mið af menntun og starfsaldri, þó aldrei hærri en sem svarar dagvinnulaunum yfirlæknis í heilsugæslu. Sé styrkþegi starfandi á heilbrigðisstofnun innan heilsugæslunnar leggur stjórn Vísindasjóðsins til að styrkurinn verði greiddur beint til þeirrar stofnunar. Á móti komi að forsvarsmenn stofnunarinnar sjái til þess að styrkþegi haldi áfram starfi sínu, óbreyttum launum og réttindum, en fái jafnframt tíma til að sinna rannsóknarstörfum á dagvinnutíma. Við mat á umsóknum er lögð áhersla á að rannsóknarverkefnið sé á forsendum heilsugæslunnar. Sé um vísindaverkefni að ræða er einnig lögð áhersla á tengsl rannsakenda við heimilislæknisfræði Háskóla íslands eða aðra akademíska háskólastofnun í heimilislækningum. Lög vísindasjóðs eru á heimasíðu FÍH. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Sigurðsson (johsig@hi.is) Stjórn Vísindasjóðs FÍH Upplýsingaveita um sjúkratryggingar Sjúkratryggingar íslands hleyptu af stokkunum í febrúar nýrri vefsíðu stofnunarinnar sem ætlað er mæta upplýsingaþörf almennings, heilbrigðis- starfsfólks og annarra um sjúkratryggingar. „í grunninn er vefurinn umfangsmikil upplýsingaveita um sjúkratrygg- ingar en gefur einnig kost á fyrstu skrefum gagnvirkrar þjónustu," segir Heiðar Örn Arnarson kynningarfulltrúi Sjúkratrygginga íslands. „ Markhópar vefsins er allur almenningur, eldri borgarar, öryrkjar, aðstandendur, bamafólk og aðrir sem nota mikið heilbrigðisþjónustu, heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir, birgjar og starfsmenn stjórnsýslunnar," segir Heiðar Örn. „Fyrir miðri forsíðu eru dregnir fram allra helstu þjónustuþættir stofnunarinnar, eins og afsláttarkort, upplýsingar um fjárhæðir og gjaldskrár og eyðublöð svo eitthvað sé nefnt. Fréttir á forsíðu sýna hvað er helst á döfinni í sjúkratryggingaumhverfinu. Góð skírskotun er í vef TR svo áfram verði góð tenging í upplýsingagjöf milli stofnananna. Lagt er upp með góðum flýtileiðum þar sem undirflokkar endurspegla vefinn nánast í heild sinni neðst á síðunni." Að sögn Heiðars vísar vefurinn í gagnvirka þjónustu SÍ „Þjónustugáttir SÍ" sem komið er af stað í samvinnu við skattur.is og Onesystems. „í framtíðinni er ætlunin að vefurinn þjóni enn stærra hlutverki í gagnasamskiptum stofnunarinnar við almenning og heilbrigðisstarfsfólk." Vísindasjóður Féiags íslenskra heimilislækna Námsstyrkir Vorúthlutun 2010 Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna hefur tekið upp þá nýbreytni að bjóða styrki til heimilislækna fyrir allt að 50% skólagjalda til framhaldsnáms í t.d. stjórnun, lýðheilsufræðum eða öðru skyldu námi. Umsóknir um vorúthlutun 2010 þurfa að berast sjóðnum fyrir 20. mars næstkomandi og ber að skila rafrænt til maaaa@lis.is. í umsóknargögnum skal gera grein fyrir námsáætlun, dagskrá, og umsjónaraðilum námsins. Lög vísindasjóðs eru á heimasíðu FÍH. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Sigurðsson (iohsia@hi.is) Stjórn Vísindasjóðs FÍH 208 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.