Læknablaðið - 15.03.2010, Page 60
■■ L. U i.-= L V v ■■■ ■'■ :
Vísindasjóður Félags íslenskra
heimilislækna
Vísinda- og
þróunarstyrkir
Vorúthlutun 2010
Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna (FÍH)
úthlutar styrkjum til vísinda- og þróunarverkefna á sviði
heilsugæslu tvisvar á ári. Sjóðurinn veitir einnig sérstaka
starfsstyrki til slíkrar vinnu.
Umsóknir um vorúthlutun 2010 þurfa að berast sjóðnum
fyrir 20. mars næstkomandi og ber að skila rafrænt á
þar til gerðum eyðublöðum á heimasíðu FÍH, http://
lis.is/ltems/Default.aspx?b=2860 til Margrétar
Aðalsteinsdóttur (magga@lis.is), Læknafélag íslands,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, ásamt rannsóknar- og
fjárhagsáætlunum eða framgangsskýrslu ef um
endurumsókn sama verkefnis er að ræða.
Starfsstyrkir geta verið allt frá 1 til 12 mánaða í senn.
Upphæð starfsstyrks miðast við fasta upphæð sem
svarar til dagvinnulauna styrkþega og er þá tekið mið af
menntun og starfsaldri, þó aldrei hærri en sem svarar
dagvinnulaunum yfirlæknis í heilsugæslu. Sé styrkþegi
starfandi á heilbrigðisstofnun innan heilsugæslunnar
leggur stjórn Vísindasjóðsins til að styrkurinn verði
greiddur beint til þeirrar stofnunar. Á móti komi að
forsvarsmenn stofnunarinnar sjái til þess að styrkþegi
haldi áfram starfi sínu, óbreyttum launum og réttindum,
en fái jafnframt tíma til að sinna rannsóknarstörfum á
dagvinnutíma. Við mat á umsóknum er lögð áhersla á að
rannsóknarverkefnið sé á forsendum heilsugæslunnar. Sé
um vísindaverkefni að ræða er einnig lögð áhersla á tengsl
rannsakenda við heimilislæknisfræði Háskóla íslands eða
aðra akademíska háskólastofnun í heimilislækningum.
Lög vísindasjóðs eru á heimasíðu FÍH.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Sigurðsson
(johsig@hi.is)
Stjórn Vísindasjóðs FÍH
Upplýsingaveita um
sjúkratryggingar
Sjúkratryggingar íslands hleyptu af stokkunum í febrúar nýrri vefsíðu
stofnunarinnar sem ætlað er mæta upplýsingaþörf almennings, heilbrigðis-
starfsfólks og annarra um sjúkratryggingar.
„í grunninn er vefurinn umfangsmikil upplýsingaveita um sjúkratrygg-
ingar en gefur einnig kost á fyrstu skrefum gagnvirkrar þjónustu," segir
Heiðar Örn Arnarson kynningarfulltrúi Sjúkratrygginga íslands.
„ Markhópar vefsins er allur almenningur, eldri borgarar, öryrkjar,
aðstandendur, bamafólk og aðrir sem nota mikið heilbrigðisþjónustu,
heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir, birgjar og starfsmenn stjórnsýslunnar,"
segir Heiðar Örn.
„Fyrir miðri forsíðu eru dregnir fram allra helstu þjónustuþættir
stofnunarinnar, eins og afsláttarkort, upplýsingar um fjárhæðir og
gjaldskrár og eyðublöð svo eitthvað sé nefnt. Fréttir á forsíðu sýna hvað er
helst á döfinni í sjúkratryggingaumhverfinu. Góð skírskotun er í vef TR svo
áfram verði góð tenging í upplýsingagjöf milli stofnananna. Lagt er upp
með góðum flýtileiðum þar sem undirflokkar endurspegla vefinn nánast í
heild sinni neðst á síðunni."
Að sögn Heiðars vísar vefurinn í gagnvirka þjónustu SÍ „Þjónustugáttir
SÍ" sem komið er af stað í samvinnu við skattur.is og Onesystems.
„í framtíðinni er ætlunin að vefurinn þjóni enn stærra hlutverki í
gagnasamskiptum stofnunarinnar við almenning og heilbrigðisstarfsfólk."
Vísindasjóður Féiags íslenskra heimilislækna
Námsstyrkir
Vorúthlutun 2010
Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna hefur tekið upp þá nýbreytni að
bjóða styrki til heimilislækna fyrir allt að 50% skólagjalda til framhaldsnáms í
t.d. stjórnun, lýðheilsufræðum eða öðru skyldu námi.
Umsóknir um vorúthlutun 2010 þurfa að berast sjóðnum fyrir 20. mars
næstkomandi og ber að skila rafrænt til maaaa@lis.is. í umsóknargögnum skal
gera grein fyrir námsáætlun, dagskrá, og umsjónaraðilum námsins.
Lög vísindasjóðs eru á heimasíðu FÍH.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Sigurðsson (iohsia@hi.is)
Stjórn Vísindasjóðs FÍH
208 LÆKNAblaðið 2010/96