Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2013, Qupperneq 12

Læknablaðið - 15.02.2013, Qupperneq 12
RANNSÓKN Tafla I. Einkenni þátttakenda í rannsókninni (meðaltöl og staðalfrávik). Allir Karlar Konur n=61 n=41 n=20 Aldur (ár) 61,9 ±17,8 60,1 ± 19,1 64,5 ± 14,7 Þyngd (kg) 80,5 ±18,0 83,1 ± 18,3 75,3 ±16,6 Hæð (m) 1,72 ± 0,09 1,76 ±0,07 1,65 ±0,09 Líkamsþyngdarstuðull (kg/m2) 27,3 ± 5,3 27,0 ± 5,5 27,7 ± 4,9 vegna rifbrota eða annarra brjóstholsáverka. Upplýsingar um kyn, aldur, þyngd, hæð og ástæðu innlagnar voru fengnar úr sjúkra- skrám sjúklinga. Rannsóknaráætlun hlaut samþykki siðanefndar Landspítala (erindi 29/2011), lækningaforstjóra Landspítala (tilv. 16, 04.05.2011) og tilkynning vegna vinnslunnar var send til Persónuverndar (til- vísunarnúmer: S5264). Orku- og próteinneysla Næringargildi, þar með talið orku- og próteininnihald, allra mál- tíða sem framreiddar eru frá eldhúsi Landspítala hefur verið áætlað með aðstoð íslenska gagnagrunnsins um efnainnihald matvæla.23 Daglegar máltíðir eru 5 talsins; morgunverður, hádegisverður, síð- degishressing, kvöldverður og kvöldhressing. Þannig var hægt að áætla orku- og próteininnihald hverrar máltíðar fyrir sig sem borin var fram fyrir þátttakendur í rannsókninni. Við lok hverrar mál- tíðar voru matarbakkar þátttakenda færðir inn í býtibúr þar sem rannsóknaraðilar vigtuðu (Philips Essence HR 2393) allan mat og drykk sem skilinn var eftir á bakkanum. Vigtun og skráning fór fram í þrjá daga samfellt fyrir hvern þátttakanda. Neysla matar og drykkjar sem ekki tilheyrðu aðalmáltíðum dagsins (millibitar) var skráð sérstaklega, þar með talið neysla næringardrykkja. Skrán- ing á neyslu millibita var fyrst og fremst í höndum starfsfólks deildarinnar, en eins fóru rannsakendur yfir skráninguna með þátttakendum til að ganga úr skugga um að ekkert hefði gleymst. Rannsakendur voru á deildinni þegar meginmáltíðir dagsins voru bornar fram og voru þar af leiðandi í góðum tengslum við þátttak- endur í rannsókninni. Fæðisskráning hófst með skráningu morg- unverðar þegar liðnar voru að minnsta kosti 48 klukkustundir frá aðgerð. Neyslan endurspeglar því orku- og próteinneyslu á þriðja til 5. degi eftir aðgerð. Niðurstöður fæðuskráningar voru færðar inn í næringarútreikningaforritið Kostplan (AIVO AB, Stockholm, 1996, útgáfa 1,0) sem geymir næringarefnainnihald allra máltíða sem bornar eru fram á Landspítala. Næringarefnainnihald upp- skrifta byggir á íslenska gagnagrunninum um næringarefnainni- hald matvæla.23 Áætluð orku- og próteinþörf Upplýsingar um hæð og þyngd þátttakenda voru fengnar úr sjúkraskrá. Ef margar mælingar höfðu verið gerðar á líkamsþyngd þátttakanda á mismunandi tímum var miðað við þyngd við inn- skrift, fyrir aðgerð. Orku- og próteinþörf var áætluð samkvæmt klínískum leiðbeiningum um næringu sjúklinga á Landspítala.19 í klínísku leiðbeiningunum er áætlað að orkuþörf sé á bilinu 25- 30 hitaeiningar á hvert kíló líkamsþyngdar á sólarhring og pró- teinþörf 1,2-1,5 grömm á hvert kíló líkamsþyngdar á sólarhring. Utreikningar í þessari grein miðast við neðri mörk áætlaðrar orku- (25 hitaeiningar/kg/sólarhring) og próteinþarfar (1,2 g/kg). Þar sem viðmiðin eiga einungis við ef viðkomandi sjúklingur er í kjörþyngd, var þyngd sjúklinga með líkamsþyngdarstuðul >25 kg/m2 leiðrétt áður en jöfnunni var beitt. Þetta þýðir að í stað raunverulegrar líkamsþyngdar í kílóum var sú líkamsþyngd sem samsvaraði líkamsþyngdarstuðli 25 kg/m2 notuð við áætlun orku- og próteinþarfar. Mat á næringarástandi Næringarástand sjúklinga var metið með 7 spurninga gildismetnu eyðublaði sem mælt er með að notað sé við mat á næringarástandi sjúklinga.1'2,19 Eyðublaðið inniheldur spurningar um líkamsþyngd- arstuðul, ósjálfrátt þyngdartap, lystarleysi, skurðaðgerð og aðra þætti sem tengjast næringarástandi. Stig eru gefin eftir svörun spurninga og fyrir þann sjúklingahóp sem rannsóknin náði til gefa 0-2 stig til kynna litlar líkur á vannæringu (skilgreindir sem „vel nærðir" í niðurstöðum þessarar greinar), 3-4 stig bera vott um ákveðnar líkur á vannæringu (skilgreindir sem „í hættu á van- næringu" í niðurstöðum) og a5 stig gefur til kynna sterkar líkur á vannæringu (skilgreindir sem „vannærðir" í niðurstöðum).1 Úrvinnsla Skráning gagna var gerð í Excel (Microsoft Office Excel, útgáfa 2007) en við tölfræðilegar greiningar var stuðst við tölfræðiforritið SPSS (IBM, Statistical Package for the Social Sciences, útgáfa 20). Orku- og próteinjafnvægi vel og vannærðra sjúklinga var borið saman með t-prófi. Tölfræðileg marktækni var sett við p<0,05. Niðurstöður Helsta ástæða fyrir brottfalli var ófullkomin skráning mataræðis, annaðhvort vegna þess að skráning einstakra máltíða hafði mis- farist, eða að sjúklingur útskrifaðist fyrr en áætlað var. Einn hætti þátttöku áður en rannsókn lauk og upplýsingar um hæð eða þyngd vantaði fyrir þrjá einstaklinga. Tafla I sýnir aldur, þyngd og hæð þeirra þátttakenda sem greiningarnar byggja á (n=61) auk líkams- þyngdarstuðuls. Rannsókninni luku alls 39 hjartaskurðsjúklingar og 12 lungnaskurðsjúklingar, auk 10 sjúklinga sem lagðir voru inn af ýmsum ástæðum. Ekki var marktækur munur á áætlaðri orku- og próteinþörf þátttakenda né metinni orku- og próteinneyslu eftir sjúklingahópum og því var ákveðið að birta niðurstöðurnar fyrir allan hópinn saman. Neysla 84% þátttakenda í rannsókninni var minni en sem svarar 25 hitaeiningum á hvert kíló líkamsþyngdar á dag (miðað við kjörþyngd) sem eru neðri mörk áætlaðrar orkuþarfar inniliggj- andi sjúklinga (tafla II). Neysla 89% þátttakenda var minni en 1,2 grömm af próteinum á hvert kíló líkamsþyngdar á dag, sem eru neðri mörk æskilegrar próteinneyslu samkvæmt klinískum leið- beiningum.19 Hvorki reyndist marktækur munur á orkuneyslu né próteinneyslu þátttakenda á þriðja og 5. skráningardegi. Á 5. degi eftir aðgerð náðu einungis 18% þátttakenda að fullnægja áætlaðri orkuþörf ef miðað er við neðri mörk (25 hitaeiningar/kg/dag) áætlaðrar orkuþarfar inniliggjandi sjúklinga. Enginn þeirra sjúk- linga sem tóku þátt í rannsókninni fékk næringu í æð eða gegnum sondu. Meðalorkuinnihald máltíðanna 5 sem framreiddar voru til þátttakenda í rannsókninni frá eldhúsi Landspítala var 1747 hita- einingar á dag og veittu þær að jafnaði 79 grömm af próteinum á dag. Eins og sjá má í töflu II var heildarorkuneysla dagsins 1370 72 LÆKNAblaðiS 2013/99

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.