Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2013, Qupperneq 23

Læknablaðið - 15.02.2013, Qupperneq 23
SJÚKRATILFELLI Sjúkratilfelli: Öndunarfæraeinkenni hjá sundmanni Gunnar Guðmundsson 1'2'3 læknir ÁGRIP Ungur keppnissundmaður leitaði læknis vegna öndunarfæraeinkenna sem tengdust sundiðkun. Hann reyndist hafa eðlilegt öndunarpróf. Hann greindist með astma með berkjuauðreitniprófi og var settur á viðeigandi meðferð. Gefið er yfirlit yfir reglur íþróttahreyfingarinnar um greiningu astma, hvaða astmalyf eru á bannlista og hvernig er sótt um undanþágu frá þessum reglum. Farið er yfir greiningarpróf astma. Fyrir utan önd- unarpróf fyrir og eftir berkjuvíkkun er stuðst við berkjuauðreitnipróf og áreynslupróf. Þá er gefið yfirlit yfir meingerð astma hjá sundmönnum og hvernig hann er talinn tengjast klór sem notaður er sem sótthreinsiefni í sundlaugum og algengi astma meðal keppnisfólks í sundi er skoðað. Tilfelli ’Læknadeild Háskóla ís- lands, 2lungnadeild Land- spítala, 3Læknasetrinu. Fyrirspurnir: Gunnar Guömundsson ggudmund@landspitali. is Greinin barst 24. nóvember 2012, samþykkt til birtingar 22. janúar 2013. Engin hagsmunatengsl gefin upp. í framhaldi af skoðun hjá heimilislækni á heilsugæslu- stöð leitaði 18 ára gamall karlmaður til lungnasérfræð- ings. Um var að ræða keppnismann í sundi sem synti allt að 14 kílómetra á dag og æfði 11 sinnum í viku. Æfingar fóru fram í innisundlaug sem er sérhönnuð til æfinga og keppni. Vatnið í lauginni var klórblandað. I sundinu upplifði hann erfiðleika við að anda djúpt en hann var hvorki með hósta né slímuppgang. Einkenni drógu úr færni hans sem keppnissundmanns. Hann reykti ekki og var almennt hraustur. Meðganga og fæðing höfðu verið eðlileg og hann hafði ekki verið með tíðar öndun- arfærasýkingar né astma sem barn. Hann var ekki með þekkt ofnæmi og það var ekki skýr ættarsaga um astma. Almenn líkamsskoðun var eðlileg. Öndunarmæling var gerð og er sýnd í töflu 1. Hún var eðlileg og breyttist ekki eftir gjöf berkjuvíkkandi lyfs. Röntgenmynd af lungum var eðlileg. Berkjuauðreitni- próf með metakólíni sýndi að sá styrkur metakólíns sem orsakaði 20% lækkun á FEVj (forced expiratory volume in one second = hratt útöndunarrúmmál) á fyrstu sek- úndu var 0,65 mg/ml. Þannig er um að ræða kröftuglega jákvætt próf. Meðferð var hafin með salbútamól-diskus fyrir áreynslu eftir þörfum og flútícasón-diskus 250 mcg 1 sog tvisvar á dag. Hann fann fyrir nokkurri bót á ein- kennum með notkun lyfjanna en ekki nægjanlegri og því var hafin meðferð með samsettu lyfi með butesóníð og formóteról. Tafla I. Öndunarmælingar. 1. koma 2. koma 3. koma FVC* 128 132 129 FEV/ 117 114 119 Hlutfair 76 72 76 FVC (forced vital capacity = hröð fráblástursgeta) FEV, (forced expiratory volume in one second = hratt útöndunarrúmmál) ‘Prósentur af spáðu gildi “Hlutfall milli gilda sjúklings Endurteknar öndunarmælingar eru sýndar í töflu 1 og voru þær óbreyttar. Hann dró síðan úr sundiðkun og sneri sér meira að hlaupum undir berum himni. Við það fann hann minna fyrir einkennum frá öndunarfærum. Hann fór síðan aftur að synda meira í innisundlaug og við það fékk hann aftur meiri öndunarfæraeinkenni. Umræður Þessi ungi maður var talinn með astma sem hafði tengsl við sund í klórblandaðri innisundlaug. Ekki var hægt að styðjast við klínísk einkenni eingöngu heldur þurfti að staðfesta greiningu með prófunum. Ekki fékkst fram marktæk breyting á öndunarprófi eftir gjöf berkjuvíkk- andi lyfs. Berkjuauðreitnipróf var jákvætt og einkenni minnkuðu við notkun innandaðra astmalyfja auk þess sem þau voru minni við áreynslu við aðrar aðstæður en í innisundlaug. Þegar hann fór að synda oftar og lengri vegalengdir jukust einkenni aftur. Leiðbeiningar um verklag við greiningu astma hjá íþróttafólki voru gefnar út árið 2012.1 Dóra Lúðvíksdótt- ir og Reynir Björn Björnsson eru höfundar í samvinnu við Embætti landlæknis og Landspítala. Áreynsluastmi er skilgreindur sem tímabundin þrenging á berkjum við áreynslu hjá einstaklingi með astma1'5 en áreynslu- bundin berkjuþrenging er skilgreind sem skerðing á fráblæstri eftir áreynslu hjá einstaklingum sem jafn- vel hafa ekki astmagreiningu.1'6 Einkenni frá öndunar- færum eru ekki talin nægileg til að greina astma hjá íþróttafólki heldur þarf að gera próf sem sýna fram á berkjuauðreitni eða að gildi fráblástursgetu batna eftir gjöf berkjuvíkkandi lyfja.1'3 Þannig er algengast að byrjað sé á öndunarmælingu með og án berkjuvíkk- andi lyfja. Þá er viðkomandi látinn anda að sér tveimur sogum af salbútamól, eða samtals 400 mcg. Síðan er öndunarmæling endurtekin eftir 5-15 mínútur. Ef breyt- ing á FEVj er 12% eða meira er talið að um astma sé að LÆKNAblaðið 2013/99 83

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.