Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2013, Síða 31

Læknablaðið - 15.02.2013, Síða 31
UMFJÖLLUN O G GREINAR ingaratriði. Þá segir Ingi Steinar að verið sé að skoða hvort Embætti landlæknis geti ekki greitt fyrir opnun á aðgangi að Heilsugátt fyrir aðila utan Landspítala. „Með aðgangi að nýja lyfjagagna- grunninum, sem er rauntímagrunnur, geta læknar fljótlega í fyrsta skipti skoðað óafgreidda lyfseðla í lyfseðlagáttinni, séð stöðu á fjölnota lyfseðlum og séð alla af- greidda lyfseðla. Upplýsingarnar takmark- ast við þrjú ár aftur í tímann en einnig er unnið að aðgangi fyrir almenning. Sam- hliða þessari vinnu er unnið að ýmsum endurbótum á lyfseðlagáttinni, til dæmis munu læknar geta ógilt lyfseðla í gátt- inni, þeir fá aðvörun ef sending lyfseðils tekst ekki eða gleymist, birting upplýsinga á lyfseðli hjá lækni og apóteki verður samræmd og undanþágulyfseðlum verður komið í rafrænt umhverfi." Að sögn Inga Steinars er þetta allt liður í þeirri þróun rafrænnar upplýsinga- miðlunar innan heilbrigðisþjónustunnar sem ætlað er að vinna að sameiningu og samhæfingu þeirra margvíslegu og flóknu upplýsinga sem unnið er með. „Verið er að innleiða nýja útgáfu af Sögukerfinu sem felur í sér breytingalista upp á 82 blaðsíður. Það er margt nýtt í þessari útgáfu og henni verður fylgt eftir um allt landið með kynningu fyrir heil- brigðisstarfsfólk. Unnið er að sérstökum Road Map-samningi um Sögukerfið til næstu þriggja ára þar sem betra notenda- viðmót, yfirsýn og leitarmöguleikar verða meginmarkmiðin. Við höfum einnig verið að vinna að þróun RAI-kerfisins en á síðasta ári var RAI-mælitæki fyrir heimaþjónustu og hjúkrunarheimili klárað og á þessu ári verður unnið að ýmsum verkefnum, en samþætting RAI-kerfa við önnur kerfi er stærsta verkefnið." Ingi Steinar nefnir að lokum ýmis önnur verkefni, svo sem tengingu ytri kerfa einsog RISK og EXPEDA inn í Sögu, sjúklingagátt og miðlæga mæðraskrá. „Ég gæti nefnt fleira en látum þetta nægja að sinni," segir Ingi Steinar að lokum. 1P Heilbrigðisstofnun Suðurlands Yfirlæknir sjúkrasviðs Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir lausa til umsóknar stöðu yfirlæknis við sjúkrasvið HSu á Selfossi. Staðan er laus frá 1. júní 2013 eða eftir samkomulagi. Stöðuhlutfall er 100% eða samkomulag, auk vakta. Starfskjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags íslands. Leitað er eftir lækni með sérmenntun í lyflækningum og áhersla er lögð á hæfileika á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða. Stjórnunarmenntun og/eða reynsla er kostur. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2013. Upplýsingar veitir Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga, í síma 868-1488 eða á netfanginu oskar@hsu.is. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendist Óskari Reykdalssyni, framkvæmdastjóra lækninga. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Heilbrigðisstofnun Suðurlands varstofnuð 1. sept. 2004 við sameiningu heilsugæslustöðva á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinnar á Sel- fossi. Þjónustusvæði stofnunarinnar nær til um 20.000 ibúa á Suðurlandsundirlendinu. Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, eitt sjúkrahús á Selfossi með 28 legu- og dagdeildarrúmum og 40 hjúkrunarrúmum. Stofnunin sinnir ennfremur heilbrigðisþjónustu á Litla-Hrauni. Alls eru um 225 stöðugildi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands. LÆKNAblaðið 2013/99 91

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.