Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 36
 Undirbúningsnefnd Læknadagannci var klappað lof í lófa fyrir vel unnið starf Frá vinstri: Össur Ingi Emilsson, Gunnar Bjarni Ragnarsson, Ólafur H. Samúelsson, Gerður Grön- dal, Arna Guðmundsdóttir og Margrét Aðalsteinsdóttir. Læknadagar 2013 Öflugt og vandað vísindaþing Árlegum Læknadögum í Hörpu lauk föstudaginn 25. janúar eftir fimm daga törn; að vanda rak spekingaglíman endahnútinn á þétta og fjölbreytta dag- skrána sem staðið hafði sleitulaust frá því í bítið á morgnana og fram á kvöld alla dagana. Læknafélag Reykjavíkur efndi síðan til árshátíðar á laugardags- kvöldið með glæsilegum matseðli, gamanmálum og dansi. „Ég er mjög sátt við þessa síðustu Lækna- daga sem ég stýri," sagði Arna Guð- mundsdóttir en hún tilkynnti á síðasta ári að hún vildi láta af starfi sem fram- kvæmdastjóri Fræðslustofnunar Lækna- félags íslands. Við starfinu tekur Gunnar Bjarni Ragnarsson sem starfaði við hlið Örnu að skipulagi þessara Læknadaga og kvaðst hann taka við góðu búi. „Lækna- dagar eru í góðum farvegi og hafa fest sig í sessi hér í Hörpu. Húsið hentar okkur mjög vel og ég geri ekki ráð fyrir breyt- ingum á fyrirkomulagi þeirra. Ég sé fyrir mér að við munum leggja enn frekari áherslu en áður á tæknilegu hliðina og munum reyna að taka upp á myndbönd sem mest af fyrirlestrum og málþingum Margrét Aöalsteinsdóttir og Arna Guömundsdóltir ánægðar meö árangurinn. Gísli Vigfússon og Haukur Hjaltason Itöfðu margt aö spjalla. 96 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.