Læknablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 38
ÖLDUNGADEILD
Höskuldur
Baldursson
Fyrir 50 árum
Hólmavík - Ljósm. André Seifert
Önnur grein: Hér segir áfram af héraðs-
læknisstörfum á Hólmavík 1962.
Engin skurð- eða aðgerðastofa var í sjúkra-
skýlinu né áhöld til skurðaðgerða, en í
tækjaskáp leyndist þó sett af dilatatorum
og sköfum til tæmingar á legi. Þetta kom
sér raunar vel þar sem eina aðgerðin sem
ég þurfti að gera í svæfingu var hreinsun á
legi eftir fósturlát. Konunni blæddi mikið,
engin aðstaða til blóðgjafa og því nauð-
synlegt að stöðva blæðingu sem fyrst. Það
tók mig hálfan dag að undirbúa aðgerðina,
þar sem ég þurfti að ná í grisjustranga í
geymsluna, klippa niður og útbúa túffur
úr grisjum, taka til áhöld, lök og dúka og
sótthreinsa þetta allt í autoclave. Autoclave
var á staðnum en þrýstingsskynjarinn bil-
aður þannig að standa þurfti yfir honum
og hleypa þrýstingi af kútnum þegar hann
nálgaðist hættumörk. Sjúklingurinn var
svæfður með evipan í æð, maður þvoði
sér og skrúbbaði frammi í eldhúsvask-
inum og gerði síðan D&C. Svo vel vildi
til að hjúkrunarfræðingur var staddur í
bænum í heimsókn hjá foreldrum og fékk
ég hana til að aðstoða mig við svæfinguna.
Blæðing hætti eftir aðgerðina og heilsaðist
sjúklingi vel.
Stundum virtist manni heilladísir vaka
yfir manni. Svo var dag nokkurn þegar
hringt var að morgni og beðið um vitjun
að bæ út með Steingrímsfirðinum. Þar var
um að ræða dreng með kviðverki. Mikið
hríðarveður hafði verið um nóttina og
voru allir vegir ófærir. Jafnframt var vitað
að eina jarðýtan í bænum var biluð og því
engin tök á að ryðja flugbrautina til sjúkra-
flugs. Ég fékk einn fiskibátanna á Hólma-
vík til að flytja mig út Steingrímsfjörðinn
á móts við bæinn en síðan var komið á
árabát frá bænum út að fiskibátnum og ég
fluttur þannig í land. Á leiðinni forvitnað-
ist ég um það hjá skipstjóra fiskibátsins
hvort einhver tök væru að flytja drenginn
til Hvammstanga ef manni sýndist þess
þörf, en ég vissi að þessa dagana var
læknir með skurðlæknismenntun að leysa
af á Hvammstanga. Þessi vitjun var farin
síðari hluta dags og tjáði skipstjórinn mér
að óveður með miklu hvassviðri væri að
skella á og yrði því illmögulegt að komast
til Hvammstanga og yrði ég í rauninni að
reyna að vera fljótur í vitjuninni þannig að
við kæmumst til baka til Hólmavíkur áður
en veðrið brysti á. Við skoðun kom í ljós
að drengurinn hafði öll einkenni bráðrar
botnlangabólgu og þurfti því aðgerðar
við. Ég sá hins vegar ekki hvernig slíkt
mátti verða þar sem algjörlega var ófært
til flutninga, hvort sem var á landi, sjó eða
lofti. Hið eina sem ég gat því gert var að
gefa drengnum eitthvað verkjastillandi og
sprauta hann síðan með viðeigandi sýkla-
lyfjum til varnar lífhimnubólgu. Var ég
síðan fluttur í árabátnum út í fiskibátinn
og þannig aftur til Hólmavíkur.
Morguninn eftir ræddi ég við föður
drengsins í síma. Óveðrið hafði skollið á
skömmu eftir komu mína til Hólmavíkur
með miklu roki og slyddurigningu og
hafði veðrið gengið yfir síðdegis og um
nóttina. Faðirinn tjáði mér að snjó hefði
töluvert tekið upp og taldi að hann gæti nú
komist á jeppa sínum inn til Hólmavíkur
með drenginn. Ég hvatti hann eindregið
til að koma, þar sem ég taldi æskilegt að
hafa drenginn til eftirlits í sjúkraskýlinu,
þótt ég vissi raunar ekki hvernig ég gæti
brugðist við að öðru leyti. Faðirinn kom
síðan með drenginn skömmu fyrir hádegi
í sjúkraskýlið. Meðan ég var að skoða
drenginn frétti ég nánast fyrir tilviljun
að eitt Sambandsskipanna væri statt í
höfninni á Hólmavík að lesta. Það fylgdi
sögunni að skipið hefði legið í höfninni
á Hvammstanga um eftirmiðdaginn
daginn áður meðan ég var í vitjuninni.
Jafnframt að þegar óveðrið skall á hefðu
landfestar slitnað eða losnað og skipstjóri
tekið þann kostinn að sigla skipinu út úr
höfninni með verkamennina frá Hvamms-
tanga um borð. Skipið hefði síðan komið
inn til Hólmavíkur um morguninn þegar
veðri slotaði, væri að lesta þar en mundi
síðan sigla aftur til Hvammstanga til að
skila mönnunum til síns heima. Voru nú
höfð snör handtök, drengnum og föður
hans komið um borð í Sambandsskipið
og þannig komust þeir til Hvammstanga.
Ég fékk síðan þær upplýsingar frá lækn-
inum á Hvammstanga að botnlanginn
hefði verið sprunginn en aðgerð gekk vel
og skildist mér að drengnum heilsaðist
ágætlega.
0ldungadeild
Læknafélags íslands
Stjórn öldungadeildar:
Siguröur E. Þorvaldsson formaður, Jón Hilmar
Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri,
Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson
Öldungaráö Umsjón síðu: Páll Ásmundsson
Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar
Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín Vefsíða:
Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson http://innri.lis.is/oldungadeild-li
262 LÆKNAblaðið 2013/99