Læknablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 37
miklum mæli í formi skammta samkvæmt
eigin forskriftum (lat. ordinationes mag-
istrales). Eðli málsins samkvæmt er mjög
erfitt að sannreyna þetta. Hin skýringin
er sú að lyfsalar hafi gefið út einkalyfja-
forskriftasöfn, læknum til leiðbeiningar
við ávísun lyfja. Þessi skýringartilgáta fær
stuðning í því að komið hefur í leitirnar
„Lyfjahandbók lækna", sem lyfsalinn í
Reykjavíkurapóteki (Þorsteinn Scheving
Thorsteinsson, 1896-1971) gaf út 1950. í for-
mála bókarinnar kemur réttilega fram að
lyfsalinn gaf bókina út „á sitt eindæmi".4
Lyfjahandbókin er alls 109 blaðsíður
og er lýsandi dæmi um einkaframtak
í lyfjagerð á fyrri tíð. í henni er fjöldi
forskrifta um lyfjasamsetningar í
ýmsum lyfjaformum. Þar á meðal eru
43 tegundir af skömmtum. Síðast í upp-
talningu skammtaforskrifta eru tvær
tegundir skammta sem oftast gengu
undir nöfnunum „brúnir skammtar" og
„brúnir skammtar með kódeini" vegna
þess að innihaldið var brúnt að lit. Brúnir
skammtar með kódeini voru stundum
nefndir „sterkir" til aðgreiningar frá
„venjulegum" brúnum skömmtum, sem
líka voru stundum nefndir „veikir". Sam-
setning venjulegra brúnna skammta er
sýnd á mynd 1 eftir vinnubók úr Lyfjabúð-
inni Iðunni (stofnuð 1928).
Aðalábending á brúna skammta var mí-
greni. Brúnir skammtar án kódeins voru
lausasölulyf og voru seldir í apótekum vel
fram á 7. áratug síðustu aldar (Jakob Krist-
insson, f. 1943: persónuleg heimild, 2013).
í vinnubókinni úr Lyfjabúðinni Iðunni
eru einnig tilgreindir „séra Friðriks
skammtar" (mynd 1). Þessir skammtar
voru kenndir við séra Friðrik Friðriksson
(1868-1961), hinn kunna kristindóms-
fræðara og leiðtoga barna og unglinga.
Skammtar þessir voru eins og geta má sér
til af samsetningunni meðal annars not-
aðir við höfuðverk. Tryggvi Ásmundsson
(f. 1938) man eftir séra Friðriks skömmtum
frá námsárum sínum í læknadeild á fyrri
hluta 7. áratugar síðustu aldar. Hann telur
raunar að aðalábending á notkun þessara
skammta hafi verið „timburmenn" (pers-
ónuleg heimild, 2013). Guðmundur Odds-
UMFJÖLLUN O G GREINAR
son (f. 1936) man frá námsárum sínum í
læknadeild bæði eftir brúnum skömmtum
og séra Friðriks skömmtum og mest fyrir
þá sök að varað var við nýrnaskemmdum
af völdum fenasetíns í skömmtunum
(persónuleg heimild, 2013).
Engar heimildir eru um það hvers
vegna nafn séra Friðriks Friðrikssonar
tengdist þessum skömmtum. Ef til vill
hefur hann átt einhvern hlut að máli
sjálfur. í þessu sambandi er áhugavert að
séra Friðrik nam fyrst læknisfræði og enn
fremur að síðar var hann prestur holds-
veikraspítalans í Laugarnesi.5
Óneitanlega vekur það athygli og
nokkra undrun að fyrir einum mannsaldri
eða tæplega það skyldi þekkjast að kenna
lyfjasamsetningar í apótekum við nafn-
greinda menn eða útlit lyfjanna og lyfsalar
gætu gefið út einkalyfjaforskriftasöfn
handa læknum að nota. Þetta liðist ekki í
dag og er til vitnis um breyttar reglur og
kröfur um lyfjagerð og lyfsölu. Vatnaskil
urðu árið 1963 þegar fyrstu lög um lyf
tóku gildi hér á landi. Meðal veigamestu
ákvæða þeirra laga var að við gildistöku
laganna urðu lyf skráningarskyld og
skyldu vera í viðurkenndum lyfjaformum
og virk.6 Fyrir þann tíma voru því engin
lög brotin þótt lyfjasamsetningar sem ekki
var að finna í viðurkenndum lyfjaskrám
eða lyfjaforskriftabókum væru frjálslega
framleiddar og kenndar við menn eða
útlit eða lyfsalar legðu nafn við einkafor-
skriftasöfn. Hér hefur vissulega miðað
mikið fram á veg og þótti höfundum að
gefnu tilefni rétt að vekja athygli á því. Á
grundvelli laganna hófst svo skráning sér-
lyfja árið 1965.6,7
Þakkarorð
Guðmundi Oddsyni, Ingibjörgu Krist-
ínu Lúðvíksdóttur, Jakobi Kristinssyni
og Tryggva Ásmundssyni eru þakkaðar
persónulegar upplýsingar.
Heimildir
1. Schou J. Forordningslære (2. útg.). Nyt Nordisk Forlag
Amold Busck. Kobenhavn 1973: 89-90.
2. Skaftason JF, Jóhannesson Þ. Töflur og töflugerð. Með sér-
stöku tilliti til íslenskra aðstæðna. Læknablaðið 2013; 99:
197-202.
3. E.B. Kandídat klippti asperínskammta allan daginn.
Viðtal við Stefán Thorarensen. Tímarit um lyfjafræði 1972;
7:46-8.
4. Scheving Thorsteinsson Th. Lyfjahandbók lækna.
Reykjavíkurapótek, Reykjavík 1950.
5. Haraldsson G. Guðfræðingatal 1847-2002. Prestafélag
fslands 2002: 339-41.
6. Jóhannesson Þ. Vinna að lyfjamálum sumarið 1963 og
fyrsta skráning sérlyfja. Læknablaðið 2004; 90: 792-5.
7. Sérlyfjaskrá 1965. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
Reykjavík 1965.
dungadeild
Læknafélags íslands
8. maí
Gísli Már Gíslason, prófessor í vatnalíffræði við Háskóla íslands
Tjörnin í Reykjavík. Saga og lífríki
Aðalfundur. Stjórnarskipti
16.-25. maí
Ferðalag öldungadeildar til TOSCANA á Ítalíu.
23.-25. ágúst.
Fyrirhuguð er fjögurra daga ferð um Vestfirði 23.-25. ágúst undir fararstjórn
Magnúsar Jónssonar. Nákvæm ferðatilhögun er í vinnslu.
LÆKNAblaðið 2013/99 261