Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 37
miklum mæli í formi skammta samkvæmt eigin forskriftum (lat. ordinationes mag- istrales). Eðli málsins samkvæmt er mjög erfitt að sannreyna þetta. Hin skýringin er sú að lyfsalar hafi gefið út einkalyfja- forskriftasöfn, læknum til leiðbeiningar við ávísun lyfja. Þessi skýringartilgáta fær stuðning í því að komið hefur í leitirnar „Lyfjahandbók lækna", sem lyfsalinn í Reykjavíkurapóteki (Þorsteinn Scheving Thorsteinsson, 1896-1971) gaf út 1950. í for- mála bókarinnar kemur réttilega fram að lyfsalinn gaf bókina út „á sitt eindæmi".4 Lyfjahandbókin er alls 109 blaðsíður og er lýsandi dæmi um einkaframtak í lyfjagerð á fyrri tíð. í henni er fjöldi forskrifta um lyfjasamsetningar í ýmsum lyfjaformum. Þar á meðal eru 43 tegundir af skömmtum. Síðast í upp- talningu skammtaforskrifta eru tvær tegundir skammta sem oftast gengu undir nöfnunum „brúnir skammtar" og „brúnir skammtar með kódeini" vegna þess að innihaldið var brúnt að lit. Brúnir skammtar með kódeini voru stundum nefndir „sterkir" til aðgreiningar frá „venjulegum" brúnum skömmtum, sem líka voru stundum nefndir „veikir". Sam- setning venjulegra brúnna skammta er sýnd á mynd 1 eftir vinnubók úr Lyfjabúð- inni Iðunni (stofnuð 1928). Aðalábending á brúna skammta var mí- greni. Brúnir skammtar án kódeins voru lausasölulyf og voru seldir í apótekum vel fram á 7. áratug síðustu aldar (Jakob Krist- insson, f. 1943: persónuleg heimild, 2013). í vinnubókinni úr Lyfjabúðinni Iðunni eru einnig tilgreindir „séra Friðriks skammtar" (mynd 1). Þessir skammtar voru kenndir við séra Friðrik Friðriksson (1868-1961), hinn kunna kristindóms- fræðara og leiðtoga barna og unglinga. Skammtar þessir voru eins og geta má sér til af samsetningunni meðal annars not- aðir við höfuðverk. Tryggvi Ásmundsson (f. 1938) man eftir séra Friðriks skömmtum frá námsárum sínum í læknadeild á fyrri hluta 7. áratugar síðustu aldar. Hann telur raunar að aðalábending á notkun þessara skammta hafi verið „timburmenn" (pers- ónuleg heimild, 2013). Guðmundur Odds- UMFJÖLLUN O G GREINAR son (f. 1936) man frá námsárum sínum í læknadeild bæði eftir brúnum skömmtum og séra Friðriks skömmtum og mest fyrir þá sök að varað var við nýrnaskemmdum af völdum fenasetíns í skömmtunum (persónuleg heimild, 2013). Engar heimildir eru um það hvers vegna nafn séra Friðriks Friðrikssonar tengdist þessum skömmtum. Ef til vill hefur hann átt einhvern hlut að máli sjálfur. í þessu sambandi er áhugavert að séra Friðrik nam fyrst læknisfræði og enn fremur að síðar var hann prestur holds- veikraspítalans í Laugarnesi.5 Óneitanlega vekur það athygli og nokkra undrun að fyrir einum mannsaldri eða tæplega það skyldi þekkjast að kenna lyfjasamsetningar í apótekum við nafn- greinda menn eða útlit lyfjanna og lyfsalar gætu gefið út einkalyfjaforskriftasöfn handa læknum að nota. Þetta liðist ekki í dag og er til vitnis um breyttar reglur og kröfur um lyfjagerð og lyfsölu. Vatnaskil urðu árið 1963 þegar fyrstu lög um lyf tóku gildi hér á landi. Meðal veigamestu ákvæða þeirra laga var að við gildistöku laganna urðu lyf skráningarskyld og skyldu vera í viðurkenndum lyfjaformum og virk.6 Fyrir þann tíma voru því engin lög brotin þótt lyfjasamsetningar sem ekki var að finna í viðurkenndum lyfjaskrám eða lyfjaforskriftabókum væru frjálslega framleiddar og kenndar við menn eða útlit eða lyfsalar legðu nafn við einkafor- skriftasöfn. Hér hefur vissulega miðað mikið fram á veg og þótti höfundum að gefnu tilefni rétt að vekja athygli á því. Á grundvelli laganna hófst svo skráning sér- lyfja árið 1965.6,7 Þakkarorð Guðmundi Oddsyni, Ingibjörgu Krist- ínu Lúðvíksdóttur, Jakobi Kristinssyni og Tryggva Ásmundssyni eru þakkaðar persónulegar upplýsingar. Heimildir 1. Schou J. Forordningslære (2. útg.). Nyt Nordisk Forlag Amold Busck. Kobenhavn 1973: 89-90. 2. Skaftason JF, Jóhannesson Þ. Töflur og töflugerð. Með sér- stöku tilliti til íslenskra aðstæðna. Læknablaðið 2013; 99: 197-202. 3. E.B. Kandídat klippti asperínskammta allan daginn. Viðtal við Stefán Thorarensen. Tímarit um lyfjafræði 1972; 7:46-8. 4. Scheving Thorsteinsson Th. Lyfjahandbók lækna. Reykjavíkurapótek, Reykjavík 1950. 5. Haraldsson G. Guðfræðingatal 1847-2002. Prestafélag fslands 2002: 339-41. 6. Jóhannesson Þ. Vinna að lyfjamálum sumarið 1963 og fyrsta skráning sérlyfja. Læknablaðið 2004; 90: 792-5. 7. Sérlyfjaskrá 1965. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, Reykjavík 1965. dungadeild Læknafélags íslands 8. maí Gísli Már Gíslason, prófessor í vatnalíffræði við Háskóla íslands Tjörnin í Reykjavík. Saga og lífríki Aðalfundur. Stjórnarskipti 16.-25. maí Ferðalag öldungadeildar til TOSCANA á Ítalíu. 23.-25. ágúst. Fyrirhuguð er fjögurra daga ferð um Vestfirði 23.-25. ágúst undir fararstjórn Magnúsar Jónssonar. Nákvæm ferðatilhögun er í vinnslu. LÆKNAblaðið 2013/99 261

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.