Læknablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 40
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Hálshnykkur:
Valda lághraðaárekstrar varanlegu líkamstjóni?
Læknisfræðileg, lögfræðileg og verkfræðileg nálgun - ráðstefna í Háskólabíói 13. júní frá kl 08:30-15:30
Hálshnykkir eru meðal algengustu áverka
á fólki í umferðarslysum. Það er auðvelt að
skýra og skilja slíka áverka þegar árekstur-
inn er sérstaklega harður og tjón mikið á
bifreiðum og tækjum. Það er hins vegar vel
þekkt staðreynd að mikill fjöldi fólks leitar
aðstoðar eftir árekstra þar sem hraðinn er
lítill og ummerki um áreksturinn er nánast
hverfandi. Þessir hálshnykksáverkar eftir
slíka lágorkuáverka eru þess vegna í eðli
sínu merkilegir. Efnið hefur augljósa læknis-
fræðilega þýðingu, bæði vegna greiningar,
til meðferðar og við mat á horfum fyrir
sjúklinginn. Þá hefur þetta verkfræðileg
sjónarhorn sem felast í því hvernig samspil
hraða og orku við áreksturinn getur borist
í gegnum ökutækið í einstaklinginn sem
fyrir verður. Þetta er ekki síst vegna lítils
grunnhraða en ekki síður vegna eiginleika
bifreiða við að gleypa orkuna í gegnum
árekstrarvarnir bifreiðarinnar. Einnig eru í
þessum málum lögfræðileg álitaefni sem lúta
að ábyrgð á tjóninu og því sönnunarferli sem
þarf að eiga sér stað til að sanna umfang þess
tjóns sem einstaklingurinn kveðst hafa orðið
fyrir. í þessu felast oft ríkir fjárhagslegir
hagsmunir, bæði fyrir einstaklinginn, trygg-
ingarfélög og samfélagið.
Byggt á þessum bakgrunni verður efnt
til ráðstefnu ætlaðri öllu fagfólki sem með
einum hætti eða öðrum kemur að þessum
málaflokki. Hefur innlendum og erlendum
fyrirlesurum verið boðið að koma og fjalla
um efnið.
Prófessor Mohammed Ranavaya, læknir
og lögfræðingur frá Bandaríkjunum, mun
fjalla um það hvort lágorkuáverkar séu raun
og veru staðreynd og hverjar séu horfur
þessara einstaklinga eftir slysið og þannig
hvernig meta má afleiðingar þess. Magnús
Þór Jónsson prófessor við verkfræðideild
Háskóla íslands fjallar um álag á háls við
lághraðaárekstra. Ármann Gylfason dósent
fjallar um tölvulíkön við útreikninga við
mat á lágorkuárekstrum og prófessor Per
Fink, geðlæknir við háskólann í Árósum,
fjallar um það hvernig einstaklingar bregðast
við eftir hálshnykk. Einn af þekktari lög-
fræðingum Dana, Michael S. Wiisbye, fjallar
um lögfræði lágorkuhálshnykksáverka. Að
lokum munu læknarnir Ragnar Jónsson,
Kristinn Tómasson og Guðmundur Björnsson
fjalla um birtar læknisfræðilegar greinar um
efnið og reyna að svara spurningunni hvort
sameiginleg sýn sé á efnið. Allar nánari upp-
lýsingar um ráðstefnuna má fá á netfanginu
whiplash2013reykjavik@gmail.com og í síma
8203363.
Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Lög-
mannafélag fslands, Verkfræðideild Háskóla
íslands og íslenska tryggingalæknisfræði-
félagið.
Að finna efni í Læknablaðinu
Á heimasíðu Læknablaðsins eru nú komn-
ir inn rúmlega þrettán árgangar af blaðinu,
og fylgirit númer 39 til 76. Á heimasíðunni
er leitarhnappur og inn af honum birtist
tvöföld leit, annars vegar eftir efnisorði og
hins vegar eftir höfundarnafni. Með því
að setja gæsalappir um leitarorðið er leitin
þrengd og skilar þá afmarkaðri árangri.
Nýlega var farið yfir alla leitarvélina í
Hugsmiðjunni sem er vefhýsingaraðili
blaðsins og sem á og rekur Eplica-kerfið
sem heldur utan um efnið á netinu. Allar
skrúfur voru hertar og lagað eftir fremsta
megni það sem hafði staðið góðri leit fyrir
þrifum. Leitarvélin er sérsmíðuð fyrir
blaðið og um hana gilda sérlausnir sem
eru flóknar og hafa iðulega hindrað gott
leitarflæði sem hefur á köflum því miður
verið of stirt. Nú hefur verið lagaður bæði
leitarstrengur fyrir efnisorð og fyrir höf-
unda, en um þau gilda ólíkar uppruna-
reglur. Jafnframt var farið yfir elsta efnið
á heimasíðunni og gengið úr skugga um
að það væri rétt skráð inn í umsýslukerfið.
Lesendur beðnir að skoða og láta vita af
hnökrum.
Fyrir alla árganga blaðsins á netinu
er birtur pdf af efnisskrá hvers árs, og
þar geta menn uppá gamla mátann leitað
að efni og sjálfum sér og öðrum í höf-
undaskrá.
Inni á Gegni er skráð fræðiefni úr
Læknablaðinu frá árinu 1946, og hjá Hirslu
Landspítalans, sem er vísinda- og fræðslu-
efnissafn á netinu, er varðveitt fræðiefni úr
Læknablaðinu frá 1988, leiðarar og ritrýnt
efni.
Sú leitarvél sem ber höfuð og herðar
yfir allar aðrar hvaða nafni sem þær nefn-
ast er Google, - og þangað er langbest og
skilvirkast að snúa sér til að leita að efni,
enda er sögnin að gúgla löngu komin með
íslenskt ríkisfang. Leitarorðið Læknablaðið
og síðan efnisorð eða heiti höfundar skilar
mjög mikilli uppskeru.
Hjá Google er líka fylgst með umferð
um einstakar heimasíður í netheimum, og
þar kemur í ljós að stakir gestir inn á síðu
Um það bJ 1.S80 nMtmðflw (a» Mfcinduri
hefut notiOÞcM bö íKipuieasua Læknaaaaa - raoB - - LakniblaAM
www iMknjbiaðd • • Eldn IMublðö > 2013 > 01. M 90 áip 3013'
um nno býðil I dagaina flnr.- Hfr Am< GuAmundtdömr um laU Mm «
fmmkvamdubúra LratnadM* Um Uc»ög þaa» að lui Idk að »«r ...
n>n SafciaLoainjom PDF - L»Kn«blaðlO
www toaknabladW a/madialolubtod/l M3JPOFMI pðf »
R Mgag »ykunýkl af lagund tvfi I lalandi 1867 3002 Laknabia6.« 3007; 93 187-
403. « Umum aykuraykww ama GuAmundadðtUr In tanaa of Oabalaa ...
Emaaun. Gunnar Btarrv Ragnaraton. Ólafur M Samúalaaon. OarOur Grandal. Ama
Gudmundftdótbr og Uargrki AAalalaawdúlU. Uargrat AAaMiamadúttv og ...
NýttfraoðaluatnLtynLayfcufaúka. Ama QuOmundadðttlr - L»Knabla010
vrarar laaknabiadrd « • Eun ibiuHöð > 3010 > 07106. U 96 érg 2010 *
67 2010 - J>að haha iýrk ag I ramadknan að hdgfrraðala akiar baul érangrl an
aáslakkngaburatn frraðala.* Iryr Ama OuðmundadótBr aórfrsðmiya I...
Safcia arein jmblEQE : LafcnabMW
wwn laak nabladld ra/mad Wlolublod/159S/POF/UOS pðf »
96 LÆKMAblaólð 2013/90 Iraknadagar ... daga aam ég alýfl.* aagði Ama Ouð ...
Margrét Aðalalarnadúu.r og Ama Ouómundadóttlr énragðar mað érangunm
Laafcnadaaaf 2012 yaila albiððlofla almormtunafpunkta - LafcnablaðM
wwrrtaaknablaðk) ■ • Eldn tðlublM > 2012 > 01. tbl.96. árg. 2012 -
Lafcnadaaaf2Q12.Mihiloaalmennana)fli«lQ2.l&i-:UfcnabteO»
wvnv laaknabladd ■ > EJdn UUCð > 2012 > 02 «9 96 árg 2012 •
yrtl að gara rkðalafarar ui að brayta þvl I atað þaaa að ýuka dagakré ...
Lajknadaaar 2009 Ama CuömundádOttlr • L»fcnabla0l«
Læknablaðsins er óvenju margir í hverjum
mánuði miðað við aðgerðir þar. Heimasíð-
an er nánast óbreytt í mánuð milli útgáfu
tölublaða.
Við hjá Læknablaðinu svörum líka ein-
faldlega í síma blaðsins 5644104, og reyn-
um að svara öllum fyrirspurnum um efni
blaðsins fyrr og síðar af fremsta megni, og
sendum pdf með greinum ef vill.
VS
264 LÆKNAblaðið 2013/99