Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 3

Læknablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 3
Formannafundur Formannafundur Læknafélags Islands var haldinn í húsakynnum félagsins í Kópavogi þann 19. apríl. Formannafundir eru haldnir að vori ár hvert og hafa þann tilgang að kynna formönnum svæðafélaganna starf stjórnar og stofnana félagsins milli aðalfunda. Hefð er fyrir því að eftir formannafundinn sé efnt til málþings um eitthvað efni sem brennur á læknum. I ár var efni málþingsins: Efnahagsmál í aðdraganda kjarasamninga. Fyrirlesarar voru Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ og Ólafur ísleifsson lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. A myndinni eru í efri röð frá vinstri: Hrönn Garðarsdóttir formaður Læknafélags Austur- lands, Magdalena Asgeirsdóttir í stjórn LÍ, og málþing Salome Á. Arnardóttir í stjórn LÍ, Gróa B. Jó- hannesdóttir fulltrúi Læknafélags Akureyrar, Dóra Lúðvíksdóttir formaður Fjölskyldu- og styrktarsjóðs LÍ, Ómar S. Gunnarsson formaður FAL, Guðrún J. Georgsdóttir í stjórn LÍ, Tómas Guðbjartsson í ritstjórn Læknablaðsins, Sveinn Kjartansson formaður samninganefndar LÍ. Neðri röð frá vinstri: Unnsteinn I. Júlíusson formaður Læknafélags Norðurlands eystra, Þórarinn Ingólfsson í stjórn LÍ, Jörundur Krist- insson formaður Orlofssjóðs, Þorbjörn Jónsson formaður LÍ, Steinn Jónsson formaður LR, Sig- urður E. Þorvaldsson formaður Öldungadeildar, Andrés Magnússon formaður Læknafélags Norð- vesturlands. LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS Eva Isleifsdóttir (f. 1982) lauk námi frá Listaháskóla Islands árið 2008 og framhaldsnámi i myndlist frá Listahá- skóla Edinborgar árið 2010. Hún hefur víða komið fram með gjörningaverk sín, sýnt á ótal sýningum og tekið þátt i fjölda alþjóðlegra samstarfs- verkefna. Nýverið stóð hún fyrir uppákomu hér á landi þar sem hún bauð almenningi að kjósa sér hús sem mætti brenna. Á táknrænan máta baðaði hún síðan viðkomandi hús eldglærum með hjálp Ijósatækni. Verk Evu eru einmitt tengd rannsókn hennar á samfélagslegu minni, upplifun okkar og skilningi á umhverfinu. I verkum hennar má ýmist finna tákn úr samtim- anum eða sögulegar táknmyndir sem listakonan leitast við að hrófla við í tilraun til þess að endurmeta stöðluð gildi og staðnaða merkingu i menningu okkar. Hún vinnur gjarnan í gjörning þar sem hversdagsleg minni eru hlaðin nýrri merkingu. Hið nýja verk sem sjá má á forsíðumynd Læknablaðsins að þessu sinni ber heitið Pushing Time, 2013, og er gjörningur sem Eva framdi nýverið. Um er að ræða táknræna athöfn þar sem hún velti á undan sér risastórri klukku. Hún rúllaði henni frá innganginum í höggmyndagarð Einars Jónssonar við Freyjugötu og upp á Skólavörðuholt, hringinn í kring um Hallgrímskirkju og aftur niður að Freyjugötu, framhjá Listasafni ASÍ og á upphafsreit. Hópur áhorfenda fylgdist með. Verkið vannst auðveld- lega á köflum og Eva lék sér að því að rúlla klukkunni en stundum átti hún i basli með hana. Aðstoðarmenn komu til hjálpar þegar hún þurfti að fara yfir götu, velta klukkunni yfir hindranir eða halda henni stöðugri þegar vindhviður reyndu að feykja henni um koll. Gjörninginn mætti túlka sem einfalda og skemmtilega myndbirtingu baráttunnar við tímann sem líður sama á hverju dynur en um leið sem áminningu um að það er ekki síst undir okkur sjálfum komið hvernig við förum með þann tíma sem okkur er úthlutað. Markús Þór Andrésson Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL www. laeknabladid. is Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi 564 4104-564 4106 Útgefandi Læknafélag íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Engilbert Sigurðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Anna Gunnarsdóttir Gylfi Óskarsson Hannes Hrafnkelsson Sigurbergur Kárason Tómas Guðbjartsson Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Þórunn Jónsdóttir ITölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og Ijósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Sigdís Þóra Sigþórsdóttir sigdis@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1700 Áskrift 12.400,- m. vsk. Lausasala 1240,- m. vsk. Prentun, bókband og pökkun Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja Höfðabakka 3-7 110 Reykjavík m © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the lcelandic Medical Journal are indexed and abst- racted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2013/99 227

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.