Læknablaðið - 15.09.2013, Qupperneq 4
^ 9. tölublað 2013
LEIÐARAR
í
379
Þórarinn Ingólfsson
Þjónustu-
samningar viö
heimilislækna -
bætt þjónusta
viö almenning
Ótal skýrslur um „efl-
ingu“ heilsugæslunnar
eru í skrifborðsskúffum
ráðuneytisins. Ekki er
þörf á fleiri skýrslum, nú
þurfa yfirvöld að vinna af
alvöru með heimilislækn-
um að framtíðarskipulagi
heilsugæslunnar.
381
Halldóra Jónsdóttir
Nútímavæðing
á niðurskurðar-
tímum - opnun
bráðageðdeildar
við Hringbraut
Fyrirmynd að deildinni
er sótt til Bretlands, en
þar hafa slíkar deildir
verið starfandi í 30 ár og
verið í stöðugri þróun til
að mæta aðstæðum og
þörfum á hverjum stað.
FRÆÐIGREINAR
383
Helga Hansdóttir, Pétur G. Guðmannsson
Lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum
á íslandi árin 2002-2004
Mikil þörf er á rannsóknum á lyfjameðferð á hjúkrunarheimilum til að skilja
betur áhrif lyfja á þennan sérstaka hóp sem er viðkvæmari en aðrir og að
nálgast lífslok. Markmið lyfjameðferðar er oft að bæta lífsgæði og er mikil-
vægt að rannsaka áhrif lyfja á lífsgæði ekki síður en á lífslengd. Það veltir
upp þeirri spurningu hvort nægilega sé hugað að því að fara yfir ástæður
lyfjanotkunar og hvort lyf séu að skila ætluðu gagni, bæði fyrir og eftir flutning
á hjúkrunarheimili.
391
ÓlafurÁrni Sveinsson, IngvarH. Ólafsson, Ólafur Kjartansson,
Einar Már Valdimarsson
Sjálfsprottin heilavefsblæðing - yfirlitsgrein
Milli 10 og 15% allra heilablóðfalla stafa af sjálfsprottinni heilavefsblæðingu
(spontaneous intracerebral hemorrhage). Árlega veikjast um 30-50 ein-
staklingar af heilavefsblæðingu á Islandi. Dánartíðnin er afar há (30 daga
dánartíðni er 25-50%). Háþrýstingur er algengasta orsökin en hafa ber í huga
sértækari orsakir, einkum hjá yngra fólki. Árangur af skurðaðgerðum hefur
ekki náðst nema í sérstökum tilvikum eins og stórum blæðingum í litla heila.
Mikilvægt er að sjúklingar með heilavefsblæðingu séu vistaðir á gjörgæslu-
deildum eða heilablóðfallseiningum þar sem fylgst er nákvæmlega með
vökustigi, taugaeinkennum, blóðþrýstingi og vökvabúskap.
Mynd: Vilhelmím Haraldsdóttir
HRAFN SVEINBJARNARSON tók í taumana þegar Læknafélag íslands og Félag áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar hugðust minnast hans á Eyri við Arnarfjörð með dagskrá með ræðum, glærum
og tónum. Sá gamli brást við með því að leggja farbann á vél Flugfélags íslands frá Reykjavíkurflug-
velli og lagði þétt þokuteppi inn allan Skutulsfjörð og lendingarstaðinn við ísafjörð. Bróðurparturinn
af þeim sem stóðu fyrir þinginu bifuðust ekki í áttina vestur, og dagskráin varð ekki flutt á Hrafnseyri
nema til hálfs. Þar voru þó fyrir á fleti ýmsir gestir og gerðu góðan róm að því sem í boði var. Dagskráin
verður flutt í heild sinni sunnan heiða seinna í haust. Á myndinni er Margrét Hallmundsdóttir forn-
leifafræðingur að lýsa uppgreftri á Hrafnseyri. Til vinstri er gluggi sem Læknafélagið gaf til staðarins
fyrir allmörgum árum.
376 LÆKNAblaðið 2013/99