Læknablaðið - 15.09.2013, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREIN
Nútímavæðing á niðurskurðartímum -
opnun bráðageðdeildar við Hringbraut
Halldóra
Jónsdóttir
yfirlæknir við geðsvið
Landspítala
halldjon@landspitali. is
Umræða um heilbrigðismál hefur undan-
farin ár einkennst af fréttum af niður-
skurði, slæmum aðbúnaði, gríðarlegu
álagi og flótta fagfólks úr landi. Við höfum
lítið séð af jákvæðari fréttum, því miður,
en vissulega er heilbrigðiskerfið í þróun
þrátt fyrir erfiða tíma síðustu ár. Á geðsviði
Landspítala hefur verið skorið niður eins
og annars staðar, en þó getum við stolt sagt
að það hafi orðið mikil þróun í starfinu síð-
ustu árin. Það hefur farið fram innri skoð-
un á starfsemi geðsviðs og hvert beri að
stefna í faglegu starfi þar. I nútímageðheil-
brigðisþjónustu er lögð áhersla á að þungi
meðferðar og endurhæfingar fari fram úti í
samfélaginu og á göngudeildum, en einnig
á aukna sérhæfingu þjónustu. Á geðsviði
hefur verið stofnað samfélagsgeðteymi,
FMB-teymi, til að þjónusta þungaðar konur
og fjölskyldur með ung börn, starf á endur-
hæfingarsviði hefur tekið miklum breyt-
ingum, meðal annars með eflingu þjónustu
við ungt fólk með geðrofssjúkdóma og ný
og nútímaleg réttargeðdeild hefur verið
opnuð. Öflugar legudeildir fyrir bráðveika
sjúklinga verða þó áfram nauðsynlegar
þegar önnur úrræði duga ekki.
Nú á haustdögum opnar ný bráðageð-
deild 32C við Hringbraut. Hafist hefur verið
handa við breytingar á húsnæði móttöku-
deildar 32C með tilliti til þarfa nýju deildar-
innar sem er einskonar geðgjörgæsludeild.
Á deildinni voru áður 17 rúm (auk tveggja
bráðaplássa), en þar verða nú 10 einmenn-
ingsherbergi (auk tveggja bráðaplássa) í
tveimur kynjaskiptum álmum. Deildin er
öll miklu rýmri en áður, með fleiri dag-
stofum og herbergjum sem nýtast meðal
annars til að róa órólega sjúklinga. Lögð er
áhersla á öryggi sjúklinga og starfsfólks og
á betri þjónustu í aðlaðandi umhverfi. Eitt
af markmiðum starfsins á nýju deildinni
er að draga úr truflandi atferli og ofbeldis-
hættu og bæta þannig þjónustu við bráð-
veika sjúklinga. Um leið skapast tækifæri
til að bæta þjónustu við aðra inniliggjandi
sjúklinga, þar sem öryggi á öðrum deildum
eykst og vonandi svigrúm starfsfólks, þeg-
ar þeir sjúklingar sem eru mest krefjandi
dvelja á nýju bráðageðdeildinni.
Bráðadeildin mun veita sérhæfða ein-
staklingsmiðaða skammtímaþjónustu fyrir
sjúklinga sem þurfa aukinn stuðning í
öruggu umhverfi. Dæmi um sjúklinga
sem deildin nýtist fyrir eru sjúklingar
sem eru hættulegir sjálfum sér, öðrum og
umhverfi, sjúklingar sem eru í verulegri
strokhættu, þeir sem eru ófyrirsjáanlegir,
með mikla hegðunartruflun eða marka-
lausa hegðun. Helstu kostir slíkrar deildar
eru aukin sérhæfing sem leiðir til bættrar
þjónustu fyrir þá allra veikustu og aukið
öryggi sjúklinga og starfsfólks, en einnig
skýrara verklag, bæði á nýju deildinni og
á móttökudeildunum. Einstaklingar í bráðu
geðrofi, alvarlegu örlyndi og mikilli sjálfs-
vígshættu þurfa sérhæfða meðferð, það
þarf að tryggja þeim ró og draga úr áreiti
til að bataferlið gangi betur og hraðar.
Móttökugeðdeildir við Landspítala hafa
verið reknar með sama sniði í fjölda ára.
Þrjár almennar móttökudeildir og ein fyrir
einstaklinga með tvígreiningar, það er geð-
ræn vandamál og alvarlegan fíknisjúkdóm.
Gangarnir þar sem veikustu sjúklingarnir
dvelja eru þröngir og engin rými önnur
en herbergi sjúklinga. í gegnum árin hafa
starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar ef
til vill ekki beint athyglinni nægilega að
því hvernig sjúklingum líður inni á legu-
deildum, hvernig umhverfið er. Upplifa
inniliggjandi sjúklingar öryggi, geta þeir
fundið næði og ró, stuðlar umhverfið að
bættri líðan? Rannsóknir hafa sýnt að meiri
þrengsli, stöðugt áreiti og skortur á „friði
og ró" og persónulegu rými, eru þættir
sem auka hættu á ofbeldi á geðdeildum.1-2
Það er löngu tímabært að bæta aðbúnað og
þjónustu við bráðveikt fólk í erfiðu geðrofs-
ástandi og það gerum við til muna með sér-
hæfðri legudeild fyrir þennan hóp.
Fyrirmyndin að deildinni er sótt til Bret-
lands, en þar hafa slíkar deildir verið starf-
andi í 30 ár og verið í stöðugri þróun til
að mæta aðstæðum og þörfum á hverjum
stað.3 í undirbúningi að opnun nýju deild-
arinnar hefur starfsfólk heimsótt geðgjör-
gæsludeildir í Bretlandi og sérfræðingar
þaðan hafa sótt okkur heim og miðlað af
sinni reynslu, auk þess að veita mikilvæga
ráðgjöf um húsnæði nýju deildarinnar og
þjálfa starfsfólk hennar.
Að ráðast í breytingar og kostnaðar-
samar endurbætur á deildum Landspítala
á tímum aðhalds og niðurskurðar er ekki
einfalt mál þótt viljinn sé fyrir hendi. Það
er í raun ógerningur án utanaðkomandi
stuðnings og aðstoðar. Með átakinu „Á allra
vörum" verður safnað fé til að þessi nýja
bráðageðdeild geti orðið að veruleika. Söfn-
unarátakið hefst 12. september og stendur
til 26. september. Við erum ákaflega þakk-
lát fyrir að fá þennan góða stuðning og það
er mikið tilhlökkunarefni að hefja starf-
semi í húsnæði sem mætir nútímakröfum
fyrir geðgjörgæsludeild. Deildin verður þó
áfram í þróun næstu árin, í takt við þarfir
sjúklinga og þróun samfélagsins.
1. Kumar S, Ng B. Crowding and violence on psychiatric
wards: explanatory models. Can J Psychiatry 2001; 46:
433-7.
2. Virtanen M, Vahtera J, Batty GD, Tuisku K, Pentti J,
Oksanen T, et al. Overcrowding in psychiatric wards and
physical assaults on staff: data-linked longitudinal study.
Br J Psychiatry 2011; 198:149-55.
3. Beer DM, Pereira S, Paton C. Psychiatric Intensive Care
2nd edition. Greenwich Medical Media London, 2008.
Modernising when downsizing - Opening a Psychiatric
Intensive Care Unit at Landspítali
Halldóra Jónsdóttir,
MD, PhD, psychiatrist, Division of Psychiatry
Landspítali University Hospital
LÆKNAblaðið 2013/99 381