Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2013, Qupperneq 22

Læknablaðið - 15.09.2013, Qupperneq 22
Y F I R L I T Mynd 4 a og b. Sýnir hvernig blæðing í djúphnoð getur stækkað á nokkrum klukku- stundum með tilheyrandi vernsun á klínísku ástandi sjúklings. Einkenni eftir staðsetningu blæðingar Blæðing í djúphnoð fbasal ganglia) og stúku fthalamust Algengustu blæðingarstaðir eru í gráhýði (putamen)(35%), stúku (10-15%) og rófukjarna (nucleus caudatus) (5-7%). Blæðingarnar eru yfirleitt af völdum háþrýstings. Einkennin eru oftast lömun og skyntap í gagnstæðri hlið líkamans. Höfuðverkur, ógleði og upp- köst eru algeng. Þegar blæðir í stúku er skyntruflunin áberandi mikil og felur í sér tap á öllum gerðum skyns í gagnstæðum lík- amshelmingi.37 Málstol er algengt eftir blæðingu í vinstri stúku. Þegar hægri stúka á í hlut sjást gjarnan einkenni á borð við gaum- stol og skert sjúkdómsinnsæi. Heilablaðsblæðing (lobar bleeding) Um fjórðungur allra heilavefsblæðinga verður í heilablaði (mynd 2). Algeng einkenni eru hreyfi- eða skyntruflun í gagnstæðum líkamshelmingi ásamt sjónsviðsskerðingu. Málstol fylgir oft blæðingu í vinsta heilahvel en gaumstol þegar blæðingin er hægra megin. Krampar verða hjá fjórðungi sjúklinga. Dá eða verulega skert meðvitund er sjaldgæf vegna þess að blæðingin liggur grunnt í heilanum. Dánartíðnin er lægri en við djúpar blæðingar. Háþrýstingur er ekki algengasta orsök heilablaðsblæðingar. Því getur verið nauðsynlegt að leita annarra skýringa, svo sem heila- æðamýlildissjúkdóms, æðamissmíða eða æxla. Blæðing í litla heila Um 5-10% heilablæðinga verða í litla heila (mynd 5). Upphafs- einkenni koma skyndilega með ósamhæfingu útlima (ataxia) annarrar hliðarinnar, jafnvægistruflun og augntini (nystagmus). Höfuðverkur, ógleði og uppköst eru algeng einkenni og hnakka- stífni kemur fyrir. Einkenni blæðingar í litla heila geta þróast hratt frá mjög væg- um einkennum yfir í lífshættulegt ástand með þverrandi meðvit- und vegna þrýstings á heilastofn og vegna vatnshöfuðs. Slík þróun einkenna á sér yfirleitt stað á fyrstu sólarhringunum. Hér getur skurðaðgerð bjargað lífi eins og rætt verður síðar. Heilastofnsblæðing Sjúklingar með heilastofnsblæðingu hafa oft svokölluð krossuð einkenni. Annars vegar einkenni frá heilataugum þeim megin sem blæðingin er og lömunareinkenni í útlimum gagnstæðrar hliðar. Blæðing í brúna (pons) er algengust heilastofnsblæðinga og stendur fyrir 6% allra heilablæðinga (mynd 6). Stærri blæðingar Mynd 5 a sýnir blæðingu í vinstri litla heila. Mynd b er gerð eftir aðgerðþar sein nánast allt blóðið hefur veriðfjarlægt. Eftir aðgerðina má sjá litlar loftbólur á aðgerðar- svæðinu (svartir deplar). Mynd 6. Tölvusneiðmynd án skuggaefnis sýnir blæðingu í brú (pons) sem er 2 cm í stærsta þvermál. valda dái, ferlömun, sjáöldur verða afar þröng með litla sem enga ljóssvörun, truflun verður á öndun og púls hraður. Við minni blæðingar eru einkennin vægari og horfurnar betri. Sjálfsprottin blæðing í miðheila (mesencephalorí) er afar sjaldgæf. Oftast er blæðing þar framhald blæðingar ofan frá stúkunni eða neðan frá brúnni. Ef blæðingin er upprunnin í miðheilanum er orsökin gjarnan æðamissmíð eða þá að blæðingarhneigð er til staðar. Svokallað heilkenni Webers getur komið fram, sem lýsir sér í lömun þriðju heilataugar sömu megin og blæðingin, og lömun útlima gagnstæðrar hliðar. Blæðing í mænukylfu er enn sjaldgæfari en miðheilablæðing. Algengustu einkennin eru jafnvægistruflun, ósamhæfing útlima, augntin, Horners heilkenni, kyngingarörðugleikar og tungu- 394 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.