Læknablaðið - 15.09.2013, Síða 27
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Engir læknar um borð
í þyrlum Landhelgisgæslunnar?
Þorbjörn
Jónsson
læknir og sérfræðingur
í ónæmisfræði,
formaður Læknafélags
Islands
thorbjor@landspitali.is
Fyrir stuttu ritaði yfirlæknir bráðaþjón-
ustu utan sjúkrahúsa, Viðar Magnússon,
opið bréf til ráðherra heilbrigðismála,
landlæknis og yfirmanna Landspítalans.
Þar lýsti hann áhyggjum yfir því að ekki
skuli vera tiltækur læknir sem sinnt getur
sérstökum bráðaútköllum utan sjúkrahúsa
á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2008 var í
sparnaðarskyni hætt að manna neyðarbíl-
inn í Reykjavík með lækni enda þótti sýnt
að bráðatæknar gætu sinnt flestum þeim
verkum sem læknirinn hafði sinnt fram
að því. í sérstökum bráðatilvikum átti
þó áfram að vera hægt að flytja lækni frá
Landspítalanum á vettvang með bíl sem
keyptur hafði verið til þess verks. Þegar á
þetta fyrirkomulag reyndi var hins vegar
hvorki bílstjóri né læknir tiltækur. Lækn-
arnir voru bundnir í öðrum verkum sem
erfitt var fara fyrirvaralaust frá, og með
tímanum varð þjálfun þeirra ekki full-
nægjandi. Þetta fyrirkomulag virkaði sem
sé ekki þegar til átti að taka og lagðist af.
í bréfi sínu vekur Viðar athygli á því að
sama staða kunni að koma upp á þyrlum
Landhelgisgæslunnar ef hætt verður að
hafa lækna reglubundið um borð í vél-
unum. Ef sú verður niðurstaðan verður
gefinn óviðunandi afsláttur af öryggi
þessarar þjónustu sem oft á tíðum er lífs-
nauðsynleg.
Fyrr í sumar var skýrt frá því í fjöl-
miðlum að búið væri að segja upp öllum
þyrlulæknunum og áttu uppsagnirnar
að taka gildi 1. ágúst síðastliðinn. Eftir
töluverða fjölmiðlaumfjöllun var þessum
uppsögnum slegið á frest, en þær taka að
óbreyttu gildi um næstu áramót. Þetta
er óskiljanleg ákvörðun og algerlega
óásættanleg fyrir sjúka og slasaða - sjó-
menn á hafi úti, fólk í dreifbýli og ferða-
menn, íslenska sem erlenda. Ýmsir læknar
á landsbyggðinni líta á það sem nauðsyn-
legan öryggisþátt að geta á neyðarstundu
ræst út þyrlu sem mönnuð er sérþjálfuðum
lækni. Ef breyting verður á þessu er hætt
við að enn erfiðara verði að fá lækna til
vinnu á landsbyggðinni. Viljum við það?
Undanfarin ár hefur alltof mikið verið
skorið niður í heilbrigðiskerfinu og hefur
það oftar en ekki bitnað illa á starfsem-
inni. Niðurskurðurinn hefur leitt til þess
að þjónusta hefur versnað, biðlistar hafa
lengst, álag á starfsfólk aukist og víða
er erfitt að fá lækna til starfa. Mörgum
breytingum hefur verið hrint í fram-
kvæmd með skömmum fyrirvara og án
nægilegrar fyrirhyggju. Um það getur
starfsfólk heilbrigðiskerfisins vitnað. Við
viljum ekki að slíkt endurtaki sig þegar
kemur að læknisþjónustu í þyrlum Land-
helgisgæslunnar.
Frá árinu 2006 hafa íslendingar axlað
alla ábyrgð á sjúkra- og björgunarflugi
með þyrlum á íslandi. Lagt hefur verið
í milljarða fjárfestingar til að kaupa eða
leigja þyrlur til að halda þjónustunni
úti allan sólarhringinn alla daga ársins.
Aðalfundur
Læknafélags íslands
10.-11. október
í Hlíöasmára Kópavogi
Árlega fara þyrlurnar í um það bil 130
björgunar- og sjúkraflug og í ákveðnum
tilvikum bjargar það lífi að læknir skuli
vera með í för. Árlegur rekstrarkostnaður
við þyrlur gæslunnar er um 1,5 milljarðar
króna. Kostnaður við að manna þyrlurnar
með lækni er einungis um 30 milljónir
króna á ári, eða um 2% af heildarrekstrar-
kostnaði, við það bætast svo rúmar 12
milljónir vegna lyfja og búnaðar. Það er vel
sloppið miðað við ávinninginn og öryggið
sem er af því. Það er fráleitt að ætla sér að
spara þessar lágu upphæðir með því að
taka læknana úr þyrlunum og fá öðrum
þeirra hlutverk. Þetta er hins vegar til at-
hugunar í heilbrigðis- og innanríkisráðu-
neytinu. Stundum þarf að framkvæma
flókin læknisverk í sjúkra- og björgunar-
flugi, sem einungis er á færi sérþjálfaðra
lækna að framkvæma. Aðrir hlaupa ekki í
þau störf.
Þetta mál líkist því miður of mörgum
málum frá Iiðnum árum. Það er byrjað á
röngum enda. Þyrlulæknunum var sagt
upp án þess að vitað væri hvað tæki við og
málið þar með sett í uppnám. Farsælast er
að greina vandamálin fyrst - ef um vanda-
mál er að ræða, en það má í þessu tilviki
draga í efa - og finna síðan á þeim lausn
áður en órói og ótti skapast. Skorað er á
ráðherra heilbrigðismála og innanríkis-
mála að leysa þetta mál áður en frekari
vandræði og skaði hlýst af. Landsmenn
allir eiga það svo sannarlega skilið.
Stjórn LÍ
Þorbjörn Jónsson, formaöur
Orri ÞórOrmarsson, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Salome Á. Arnardóttir, ritari
Björn Gunnarsson
Guðrún Jóhanna Georgsdóttir
Magdalena Ásgeirsdóttir
Ólöf Birna Margrétardóttir
Þórarinn Ingólfsson
í pistlunum Úr penna stjórnarmanna Ll birta þeir sínar eigin
skoöanir en ekki félagsins.
LÆKNAblaðið 2013/99 399