Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2013, Blaðsíða 27

Læknablaðið - 15.09.2013, Blaðsíða 27
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Engir læknar um borð í þyrlum Landhelgisgæslunnar? Þorbjörn Jónsson læknir og sérfræðingur í ónæmisfræði, formaður Læknafélags Islands thorbjor@landspitali.is Fyrir stuttu ritaði yfirlæknir bráðaþjón- ustu utan sjúkrahúsa, Viðar Magnússon, opið bréf til ráðherra heilbrigðismála, landlæknis og yfirmanna Landspítalans. Þar lýsti hann áhyggjum yfir því að ekki skuli vera tiltækur læknir sem sinnt getur sérstökum bráðaútköllum utan sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2008 var í sparnaðarskyni hætt að manna neyðarbíl- inn í Reykjavík með lækni enda þótti sýnt að bráðatæknar gætu sinnt flestum þeim verkum sem læknirinn hafði sinnt fram að því. í sérstökum bráðatilvikum átti þó áfram að vera hægt að flytja lækni frá Landspítalanum á vettvang með bíl sem keyptur hafði verið til þess verks. Þegar á þetta fyrirkomulag reyndi var hins vegar hvorki bílstjóri né læknir tiltækur. Lækn- arnir voru bundnir í öðrum verkum sem erfitt var fara fyrirvaralaust frá, og með tímanum varð þjálfun þeirra ekki full- nægjandi. Þetta fyrirkomulag virkaði sem sé ekki þegar til átti að taka og lagðist af. í bréfi sínu vekur Viðar athygli á því að sama staða kunni að koma upp á þyrlum Landhelgisgæslunnar ef hætt verður að hafa lækna reglubundið um borð í vél- unum. Ef sú verður niðurstaðan verður gefinn óviðunandi afsláttur af öryggi þessarar þjónustu sem oft á tíðum er lífs- nauðsynleg. Fyrr í sumar var skýrt frá því í fjöl- miðlum að búið væri að segja upp öllum þyrlulæknunum og áttu uppsagnirnar að taka gildi 1. ágúst síðastliðinn. Eftir töluverða fjölmiðlaumfjöllun var þessum uppsögnum slegið á frest, en þær taka að óbreyttu gildi um næstu áramót. Þetta er óskiljanleg ákvörðun og algerlega óásættanleg fyrir sjúka og slasaða - sjó- menn á hafi úti, fólk í dreifbýli og ferða- menn, íslenska sem erlenda. Ýmsir læknar á landsbyggðinni líta á það sem nauðsyn- legan öryggisþátt að geta á neyðarstundu ræst út þyrlu sem mönnuð er sérþjálfuðum lækni. Ef breyting verður á þessu er hætt við að enn erfiðara verði að fá lækna til vinnu á landsbyggðinni. Viljum við það? Undanfarin ár hefur alltof mikið verið skorið niður í heilbrigðiskerfinu og hefur það oftar en ekki bitnað illa á starfsem- inni. Niðurskurðurinn hefur leitt til þess að þjónusta hefur versnað, biðlistar hafa lengst, álag á starfsfólk aukist og víða er erfitt að fá lækna til starfa. Mörgum breytingum hefur verið hrint í fram- kvæmd með skömmum fyrirvara og án nægilegrar fyrirhyggju. Um það getur starfsfólk heilbrigðiskerfisins vitnað. Við viljum ekki að slíkt endurtaki sig þegar kemur að læknisþjónustu í þyrlum Land- helgisgæslunnar. Frá árinu 2006 hafa íslendingar axlað alla ábyrgð á sjúkra- og björgunarflugi með þyrlum á íslandi. Lagt hefur verið í milljarða fjárfestingar til að kaupa eða leigja þyrlur til að halda þjónustunni úti allan sólarhringinn alla daga ársins. Aðalfundur Læknafélags íslands 10.-11. október í Hlíöasmára Kópavogi Árlega fara þyrlurnar í um það bil 130 björgunar- og sjúkraflug og í ákveðnum tilvikum bjargar það lífi að læknir skuli vera með í för. Árlegur rekstrarkostnaður við þyrlur gæslunnar er um 1,5 milljarðar króna. Kostnaður við að manna þyrlurnar með lækni er einungis um 30 milljónir króna á ári, eða um 2% af heildarrekstrar- kostnaði, við það bætast svo rúmar 12 milljónir vegna lyfja og búnaðar. Það er vel sloppið miðað við ávinninginn og öryggið sem er af því. Það er fráleitt að ætla sér að spara þessar lágu upphæðir með því að taka læknana úr þyrlunum og fá öðrum þeirra hlutverk. Þetta er hins vegar til at- hugunar í heilbrigðis- og innanríkisráðu- neytinu. Stundum þarf að framkvæma flókin læknisverk í sjúkra- og björgunar- flugi, sem einungis er á færi sérþjálfaðra lækna að framkvæma. Aðrir hlaupa ekki í þau störf. Þetta mál líkist því miður of mörgum málum frá Iiðnum árum. Það er byrjað á röngum enda. Þyrlulæknunum var sagt upp án þess að vitað væri hvað tæki við og málið þar með sett í uppnám. Farsælast er að greina vandamálin fyrst - ef um vanda- mál er að ræða, en það má í þessu tilviki draga í efa - og finna síðan á þeim lausn áður en órói og ótti skapast. Skorað er á ráðherra heilbrigðismála og innanríkis- mála að leysa þetta mál áður en frekari vandræði og skaði hlýst af. Landsmenn allir eiga það svo sannarlega skilið. Stjórn LÍ Þorbjörn Jónsson, formaöur Orri ÞórOrmarsson, varaformaður Magnús Baldvinsson, gjaldkeri Salome Á. Arnardóttir, ritari Björn Gunnarsson Guðrún Jóhanna Georgsdóttir Magdalena Ásgeirsdóttir Ólöf Birna Margrétardóttir Þórarinn Ingólfsson í pistlunum Úr penna stjórnarmanna Ll birta þeir sínar eigin skoöanir en ekki félagsins. LÆKNAblaðið 2013/99 399
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.