Læknablaðið - 15.09.2013, Blaðsíða 35
130 hjartasjúklingar þegar verið sendir til
London til aðgerðar á árinu. Furðutíðar
skurðsýkingar í London urðu til að styðja
málstað okkar Landspítalamanna. Þetta
var raunar til stórvansa. Versta útreið fékk
Karvel Pálmason alþingismaður, og lýsti
hann sjúkdómsferli sínum í fjölmiðlum.
Sýklarnir átu bringubein hans því nær
upp til agna og hafði hann síðan afmynd-
aðan brjóstkassa. Þetta varð til þess að
Karvel gekkst fyrir lagasetningu á Alþingi
árið 1989 sem tryggði bótarétt sjúklinga
sem höfðu orðið fyrir ófyrirsjáanlegu
heilsutjóni eftir læknismeðferð. Þessi lög
eru stundum kölluð Lex Karvel og sagt
var í gamni eða alvöru að höfundur laga-
frumvarpsins hefði gert samþykkt þess
að skilyrði fyrir stuðningi við þáverandi
ríkisstjórn.
Þrír brjóstholsskurðlæknar störfuðu við
Landpítalann árið 1983 og sá fjórði var til-
tækur í Svíþjóð. Talið var að fjölga þyrfti
hjúkrunarfræðingum um sjö á skurðdeild-
inni og bæta þar við tækjabúnaði, ef hefja
ætti hjartaskurðlækningar á spítalanum.
Hjartaþræðingartæki lyflækningadeildar
var úrelt og raunar talin þörf á nýju tæki
hvað sem öðru liði. Gjafafé var til reiðu frá
Seðlabanka íslands, Minningargjafasjóði
Landspítalans og Heildverslun Ásbjarnar
Ólafssonar stórkaupmanns fyrir stórum
hluta tækjabúnaðarins.
En tímarnir voru erfiðir. Gæfulítil ríkis-
stjórn hrökklaðist frá völdum vorið 1983.
Erlendar skuldir voru þá 60% af þjóðar-
framleiðslu og greiðsluhalli ríkissjóðs
tröllslegur. Þjóðarframleiðsla hafði dregist
saman um 10% á hvern vinnandi mann og
verðbólgan var 130%. Ekki þurfti að fara í
grafgötur um að öllum tillögum um aukin
útgjöld ríkissjóðs yrði mætt með varúð,
svo að ekki væri meira sagt.
Við Árni Kristinsson vissum að Stein-
grímur Hermannsson forsætisráðherra
var því ekki fylgjandi að hjartaaðgerðir
UMFJÖLLUN O G GREINAR
yrðu hafnar á íslandi, enda sagði hann í
blaðaviðtali að hann mundi láta skera sig
í Englandi, ef hann þyrfti á hjartaaðgerð
að halda. Matthías Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra var í besta falli hikandi. Við Árni
ákváðum því að leita stuðnings í öðrum
herbúðum.
Landssamtök hjartasjúklinga voru
stofnuð haustið 1983 með þátttöku 230
hjartasjúklinga og stuðningi hjartalækna.
Helstu baráttumál samtakanna voru í
upphafi að endurnýja hjartaþræðingar-
tækin og að hjartaskurðlækningar yrðu
hafnar á Landspítalanum. Samtökin beittu
þegar áhrifum sínum á alþingismenn og
fjölmiðla og komu á framfæri gögnum
sem við höfðum tekið saman. Hjartasjúk-
dómafélag íslenskra lækna undir forystu
Guðmundar Þorgeirssonar og Kristjáns
Eyjólfssonar beindi erindi um málefnið
til ráðherra og Alþingis. Við Árni Krist-
insson gerðum lista yfir þingmenn sem
við könnuðumst við, og var það meirihluti
þingheims. Við ræddum við þá flesta og
dreifðum gögnum til allra þingmanna.
Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri
í heilbrigðisráðuneytinu, var málinu
fremur hlynntur, en gat ekki gengið gegn
vilja ráðherrans, húsbónda síns. Hann
tjáði okkur einnig að stjórnmálamenn
vantreystu íslenskum læknum til svo
sérhæfðra verkefna. Ólafur Ólafsson
landlæknir virtist hikandi og Björn
Önundarson tryggingayfirlæknir var
málinu andvígur. Undrun vakti fram-
ganga embættismanns nokkurs sem átti
hagsmuna að gæta. Hann beitti sér gegn
hjartaskurðlækningum á íslandi og lýsti
vantrú á getu íslenskra lækna á þessu
sviði í blaðagreinum.
Við áttum hauka í horni á Morgun-
blaðinu, ritstjórana Styrmi Gunnarsson
og Matthías Johannessen. Við upphaf
þings haustið 1983 skrifuðu þeir nokkra
öfluga leiðara í Morgunblaðið til stuðnings
hjartaaðgerðum á íslandi. Haukur Bene-
diktsson fyrrum forstjóri Borgarspítalans
ritaði áhrifaríka grein um sama efni. Jónas
Kristjánsson ritstjóri og Eiríkur Jónsson
blaðamaður á DV lúskruðu á efasemda-
mönnum.
Á Alþingi var hart sótt að Matthíasi
Bjarnasyni og kunni hann okkur Árna
Kristinssyni litlar þakkir fyrir framgöng-
una. Svavar Gestsson beindi fyrirspurn
og gagnrýni til ráðherra og átti hann í vök
að verjast. Öllum var ljóst að hjartaskurð-
lækningar áttu nú sterku fylgi að fagna
á Alþingi, þótt margir sjálfstæðismenn
héldu sig til hlés í umræðunni af hollustu
við ráðherrann. Þó lýsti Birgir Isleifur
Gunnarsson stuðningi við málefnið. Aðrir
öflugir stuðningsmenn voru Davíð Aðal-
steinsson, Eiður Guðnason, Guðmundur
Einarsson, Guðrún Agnarsdóttir, Kjartan
Jóhannsson og Stefán Benediktsson. Tóm-
as Árnason mælti einn gegn málinu.
Ljóst var að almenningsálitið var
hlynnt hjartaskurðlækningum á Islandi og
svo fór að Matthías Bjarnason hét því að
gangast fyrir endurnýjun hjartaþræðingar-
tækjanna án tafar og skipa nýja nefnd til
að gera tillögur um upphaf hjartaaðgerða.
Nefndin lauk fljótt störfum og mælti með
því að hjartaskurðlækningar yrðu hafnar
árið 1986. Þetta gekk eftir og tókust lækn-
ingarnar vel frá upphafi. Skurðsýkingar
voru fátíðar.
Af merkri bók Páls Sigurðssonar, Heilsa
og velferð, mætti ætla að aðdragandi þessa
máls hafi verið að mestu ágreiningslaus,
en því fór fjarri. Ég hygg að læknar hafi
sjaldan beitt Alþingi og fjölmiðla jafn-
öflugum og farsælum þrýstingi, faglegu
viðfangsefni til framdráttar. Vitanlega
hefðu hjartaskurðlækningar hafist hér á
landi fyrr eða síðar, en líklega var upphafi
þeirra flýtt um nokkur ár.
LÆKNAblaðið 2013/99 407