Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2013, Síða 45

Læknablaðið - 15.09.2013, Síða 45
UMFJÖLLUN O G GREINAR Sérhæfð endurlífgun Endurlífgun barna Greining og meðferð slasaðra Bráðalækningar utan sjúkrahúsa 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 ■ Á síðustu 5 árum Meira en 5 ár siðan ■ Aldrei lokið námskeiði Mynd 1. Hlutfall (%) svarenda sem Itöfðu lokið sérhæfðum bráðanámskeiðum. Mjbg góö Fullnaegjandl Nokkuö óbótavant Verulega óbótavant Mynd 2. Hvernig metur þú þá þjálfun sem þú fékkst í læknadeild eða sérnámi til að sinna vandamálum af eftirtöldum tegundum? Hltit- fallsleg svör (%). hjartasjúkdómum, endurlífgun og öndun- araðstoð. Nánari greining á svörun vegna einstakra flokka er sýnd á mynd 2. Ekki var marktækur munur á svörum þétt- býlis- og landsbyggðarlækna hvað varðar þjálfun í námi til að sinna vandamálum í þessum 9 flokkum (p=0,21-0,94). Endurmenntun í bráðalækningum Þegar læknar voru spurðir út í þá endur- menntun sem þeir höfðu sótt sér eftir að námi lauk í hinum 9 ólíku flokkum bráða- þjónustu, töldu þeir að meðaltali í 54% til- vika að hún hafi verið þokkaleg eða betri. í að meðaltali 46% tilvika töldu læknar að þeir hefðu ekki nógu vel eða með mjög ófullnægjandi hætti getað sótt sér endur- menntun á þessu sviði. Við mat á ólíkum tegundum bráðatilvika var það einungis í endurlífgun og bráðum hjartasjúkdómum þar sem innan við fjórðungur lækna taldi sig ekki hafa getað sinnt endurmenntun sinni nógu vel eða með mjög ófullnægj- andi hætti. í öðrum gerðum bráðatilvika var hlutfall þeirra lækna sem töldu endur- menntun sína ekki nægilega eða mjög ófullnægjandi á bilinu 30-70%, hæst hvað varðar fæðingar og kvensjúkdóma. Læknar starfandi á landsbyggðinni höfðu marktækt betur náð að sinna endur- menntun varðandi viðbrögð við hóp- slysum og almannavá heldur en þeir sem starfa í þéttbýli. Höfðu 70% landsbyggðar- lækna getað sinnt endurmenntun á þessu sviði þokkalega eða betur á meðan það átti einungis við um 30% þéttbýlislækna (p<0,001). Er líklegt að þessi munur skýrist af reglulegum flugslysaæfingum sem haldnar hafa verið undanfarin ár víða um land með þátttöku lækna. Þess ber þó að geta að 56% landsbyggðarlækna telja end- urmenntun sína á þessu sviði þokkalega en einungis 15% telja þessum málaflokki sinnt mjög vel eða fullnægjandi. Enn mætti því bæta þjálfun á þessu sviði. Við mat á helstu ástæðum þess að heilsugæslulæknar gætu ekki sótt sér end- urmenntun í bráðavandamálum reyndust 88% lækna telja það vera nokkuð eða mikið vandamál að framboð á viðeigandi námskeiðum fyrir landsbyggðarlækna sé ekki nægilegt. Stuðningur vinnuveitanda reyndist vera minna vandamál, 31% svarenda töldu það þó nokkuð eða mikið vandamál. Alls töldu 44% lækna það oft vera vandamál að útvega afleysingu til þess að þeir gætu sótt nauðsynleg endur- menntunarnámskeið. Þéttbýlislæknar höfðu marktækt oftar en landsbyggðar- læknar átt í vandræðum með að fá kostnað við námsleyfi greiddan af vinnuveitanda (66% á móti 34%, p=0,01). Áhrif bráðaþjálfunar á mönnun á læknis- stöðum á landsbyggðinni AIls töldu 80% lækna að skortur á þjálfun og endurmenntun lækna til að bregðast við slysum og bráðum veikindum ætti þátt í að erfiðlega gangi að manna læknis- stöður á landsbyggðinni. Þar af töldu 16% það vera mjög mikinn þátt í vandanum, 38% talsverðan, 40% nokkurn og 6% óverulegan. Marktækt færri landsbyggðar- læknar töldu skort á þjálfun og endur- menntun eiga þátt í mönnunarvanda, eða 67% á móti 88% (p=0,005). Bendir það til þess að einhverjir læknar séu hikandi við að takast á við það álag sem fylgir þessum hluta starfs landsbyggðarlækna og kjósi LÆKNAblaðið 2013/99 417

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.