Fréttatíminn - 19.09.2014, Page 37
Vetrarferðir
Kynningarblað Helgin 19.-21. september 2014
F jallaskíðun er íþrótt sem nýtur æ meiri vinsælda hér á landi. Að sögn Ívars Finnbogason-
ar, yfirleiðsögumanns hjá Íslenskum
fjallaleiðsögumönnum, er mikilvægt
fyrir fólk sem stundar fjallaskíða-
mennsku að sækja sér fræðslu til að
auka öryggi sitt. „Fólk eyðir töluverð-
um fjármunum í búnað en að sama
skapi er gríðarlega mikilvægt að læra
að þekkja hætturnar,“ segir hann.
Almennt gengur fólk á fjöll yfir
sumartímann en fer á skíði yfir vet-
urinn. „Á fjallaskíðum sameinast
þetta tvennt með einkar skemmti-
legum og ævintýralegum hætti,“
segir Ívar. Á fjallaskíðum gengur
fólk upp fjall á skíðunum. „Við lím-
um skinn undir skíðin og hárin
grípa í snjóinn. Þá eru bindingarn-
ar stilltar þannig að þær henti til
göngu. Þetta er ótrúlega þægileg
og fljótleg leið til að ganga á fjöll.
Svo þegar upp er komið rífum við
skinnin af skíðunum og breytum
bindingunum og skíðum niður.“
Hjá Íslenskum fjallaleiðsögu-
mönnum verður boðið upp á tvenns
konar námskeið fyrir fjallaskíða-
fólk í vetur. Í Hlíðarfjalli á Akureyri
verður þriggja daga námskeiðið Fre-
eride. Þar verða kennd öguð vinnu-
bögð við mat á snjóflóðahættu og
eftir námskeiðið ættu nemendur að
vera færir um að taka meðvitaðar
ákvarðanir um styrk snjóþekjunnar
í ferðum með sínum jafningjum og
vera hæfir um að framkvæma hraða
leit að gröfnum félögum.
Byrjendum á fjallaskíðum stend-
ur til boða sex daga námskeið á
Tröllaskaga. „Námskeiðið hentar
einnig vel fyrir fólk sem er þegar
byrjað að stunda fjallaskíðun en vill
sækja sér meiri þekkingu á íþrótt-
inni og öryggismálum. Það er einn-
ig kjörið tækifæri til að kynnast
Tröllaskaganum undir handleiðslu
reyndra leiðsögumanna.“ Ívar segir
Tröllaskagann góðan stað því hækk-
unin í fjöllunum passi mjög vel til
fjallaskíðunar.
Hópurinn Skíðagengið er fyrir
vant svigskíðafólk sem langar að
víkka sjóndeildarhringinn og kom-
ast reglulega út fyrir troðnar brautir
skíðasvæðanna undir faglegri leið-
sögn.
Fjallamennska
Almenn fjallamennska er sex daga
námskeið þar sem farið er yfir allan
grunn sem fólk þarf í fjallamennsku
og klifri. Að sögn Ívars er nauðsyn-
legt að fólk hafi bakgrunn í úti-
vist til að sækja námskeiðið. „Þar
læra nemendur um almenna línu-
vinnu, gerð berg- og snjótrygginga,
sprungubjörgun, ísklifur, öryggi
í sambandi við snjóflóð og ýlaleit,
ferðamennsku á jöklum og í fjall-
lendi, broddtækni, ísaxarbremsun
og fleira.“
Ísklifur
Íslenskir fjallaleiðsögumenn bjóða
upp á klifurnámskeið bæði fyrir
byrjendur og reynslumeiri klifrara.
„Mjög algengt er að á námskeiðin
komi fólk sem vill prófa ísklifur.
Það hefur jafnvel verið að stunda
klifur en hefur metnað til að gera
meira. Oft koma líka til okkar er-
lendir ferðamenn.“ Þá er einnig
boðið upp á framhaldsnámskeið og
er gerð krafa um að nemendur þar
hafi þegar lokið byrjendanámskeiði
eða hafi reynslu úr klifri.
Fjallgönguhópar
Fyrir fólk sem vill stunda fjallgöng-
ur allt árið eru starfandi hópar eða
„gengi“ hjá Íslenskum fjallaleið-
sögumönnum. Í hópunum Fjalla-
gengi og Fjallafólk er þrekæfing eða
fjallganga einu sinni í viku ásamt
mánaðarlegum dagsferðum á hin
ýmsu fjöll landsins.
Í hópnum Brattgenginu er fókus-
inn á klifur og fjallamennsku. „Þar
kennum við helstu atriði við klifur.
Byrjum einfalt og færum okkur
yfir í flóknara klifur. Þar eru hlut-
föll nemenda á móti kennurum eftir
erfiðleikastigi þannig að stundum
er einn kennari fyrir hverja tvo nem-
endur. Námskeiðin hjá Brattgeng-
inu hafa gefist mjög vel og sumir
koma aftur og aftur og hafa gaman
af því að stunda krefjandi útivist
undir dyggri leiðsögn,“ segir Ívar.
Unnið í samvinnu við
Íslenska fjallaleiðsögumenn
Vantar þig gistingu í útlöndum?
Gerðu Verðsamanburð á hóteltilboðum út um allan
heim oG bókaðu haGstæðasta kostinn á túristi.is.
T Ú R I S T I
Svo þegar
upp er komið
rífum við
skinnin af
skíðunum
og breytum
bindingunum
og skíðum
niður.
Íslenskir fjallaleiðsögumenn bjóða upp á námskeið í fjallamennsku, klifri og fjalla-
skíðun. Ljósmynd/Björgvin Hilmarsson
Almenn Fjallamennska er
sex daga námskeið þar
sem farið er yfir allan
grunn sem þarf í fjalla-
mennsku og klifri. Ljós-
mynd/Björgvin Hilmarsson
Útivist á fjöllum nýtur sífellt meiri vinsælda hjá Íslendingum og
ferðamönnum sem landið heimsækja. Hjá Íslenskum fjallaleið-
sögumönnum er boðið upp á lengri og styttri námskeið og ferðir
undir leiðsögn reyndra fjallagarpa.
Fagmenn á fjöllum