Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2004, Page 195
UM TURNA BABEL
afar náið, án þess þó að tákna nokkuð fyrir hann, er þýðingin
rannin undan framtextanum. Vissulega síður undan Kfi hans
en „afkomu“ („Uberleben“). Því þýðingin kemur á eftir frarn-
textanum og að því er varðar mikil verk, sem aldrei finna
þýðandann sem þeim er ætlaður á þeim tíma sem þau verða til,
markar hún afkomustig hans (.Fortleben, í þetta sinn, afkoman
sem ffamlenging lífsins frekar en Kf post mortem). Hugmynd-
irnar um líf og afkomu (Fortleben) ber að skilja, að því er lista-
verk varðar, einfaldlega og án nokkurra myndhvarfa (in völlig
unmetaphorischer Sachlichkeit).
Og samkvæmt að því er virðist hegelskri uppskrift, í afar hnitmiðuðum
kafla, hvetur Benjamin okkur til að hugsa lífið út frá andanum eða sög-
unni, og ekki út ffá „lífrænum áþreifanleika“ einum saman. Það er líf um
leið og „afkoman“ (andinn, sagan, verkin) nær út yfir lífið og hinn líf-
fræðilega dauða: „Það er öllu heldur með því að viðurkenna líf alls þess
sem saga er af og sem er ekki aðeins svið hennar sem hugtakinu um líf er
gert rétt tdl. Því þegar allt kemur til alls er það út ffá sögunni, ekki nátt-
úranni ... sem draga þarf umgjörð lífsins. Þannig skapast heimspekingn-
um það verkefni (Aufgahe) að skilja allt náttúralíf út ffá hinu yfirgrips-
meira Kfi, sem er líf sögunnar“.
Þegar í yfirskrift ritgerðarinnar - og ég held mig við hana í bili -
ákvarðar Benjamin vandann, í merkingu þess sem einmitt er staðiðfi'ammi
fyrir líkt og verkefni: það er vandi þýðandans en ekki þýðinga (né heldur
kvenþýðandans - látum þess getið hér og sú spurning er ekki smávægi-
leg). Benjamin segir ekki verkefhi eða vandi þýðinga. Hann tilgreinir
geranda þýðingarinnar, sem skuldugan þegn, skyldubundinn, þegar í
stöðu erfingja, færðan inn sem efdrlifandi í ættartölu, sem afkomandi eða
hvatamaður afkomu. Afkomu verka, ekki höfunda. Hugsanlega afkomu
nafna höfunda og undirskrifta, en ekki höfunda.
Slík afkoma veitir lífsauka, meir en geymd. Verkið lifir ekki einungis
lengur, það lifir meir og hetur, umfram efni höfundar síns.
Er þýðandinn þá skuldugur viðtakandi, undirgefinn gjöf á geftium
ffumtexta? Engan veginn. Af nokkram ástæðum, þar á meðal þessari:
tengslin eða skuldbindingin hggja ekki milli gefanda og þiggjanda held-
ur milli tveggja texta (tveggja „afurða“ eða tveggja ,,sköpunarverka“).
Þetta verður Ijóst þegar í byrjun formálans og ef maður vildi einangra
:93