Þjóðlíf - 01.12.1985, Síða 4
RITSTJ ORNARGREIN
Tímaritið ÞJÓÐLÍF hefur göngú sína með þessu
hefti sem þú hefur í höndunum og það er líklegt
að fyrsta spumingin sem kemur upp í huga þinn sá
þessi: Er þörf á enn einu tímaritinu til viðbótar við
þau sem þegar eru á markaðnum? Til hvers? Og satt
að segja höfum við sem að þessu riti stöndum oft
verið spurð þessara spuminga undanfarinn mánuð.
Við svömm: í fyrsta lagi er óheilbrigt að öll fjöl-
miðlun og upplýsingamiðlun í þjóðfélaginu safnist á
fáar hendur. í þessu efni er samkeppni og fjöl-
breytni nauðsynleg. Blaða- og tímaritaútgefendur
hafa mismunandi áhugamál. Svo er og um einstakl-
ingana í þjóðfélaginu. Við ætlum að keppa á tíma-
ritamarkaðnum, ekki með eftiröpun, heldur setjum
við okkur það mark að verða öðmvísi, við ætlum
okkur að leggja áherslu á svið sem við teljum van-
rækt, annað hvort vegna áhugaleysis annarra fjöl-
miðla eða vanmáttar þeirra.
ÞJÓÐLÍF mun leggja metnað sinn í að birta upp-
lýsandi efni um stjómmál, efnahagsmál, félagsmál,
menningarmál, listir og vísindi, auk hvers kyns af-
þreyingarefnis. Við munum ganga í smiðju til sér-
fræðinga á hinum ýmsu sviðum, sem munu skrifa
greinar í ritið eða leggja því til ráð og ábendingar.
Þannig er í þessu fyrsta tölublaði ítarlegasta grein
sem birst hefur á íslensku frá sjónarhóli vísinda-
manns um geimvamaáætlun Bandaríkjanna, en hana
hefur dr. Hans Kr. Guðmundsson eðlisfræðingur
tekið saman. En það em ekki aðeins háskólamenn
sem em sérfræðingar; ungur sjómaður, sem þó
hefur starfað hálfa ævi sína á sjó og þekkir starfsað-
stöðu sjómanna því af langri og beiskri reynslu,
gefur hrollvekjandi mynd af því hvemig öryggismál-
um íslenskra sjómanna er komið í dag.
ÞJÓÐLÍF á þannig ekki að vera tímarit skrifað af
sérfræðingum fyrir sérfræðinga, heldur á það að
miðla þekkingu frá sérfróðum mönnum til almenn-
ings um efni sem almenning varðar miklu. Markmið
okkar er upplýsing og skoðanaskipti byggð á upp-
lýsingum. ÞJÓÐLÍF dregur ekki taum eins stjóm-
málahóps eða skoðanahóps fremiu: en annars. Að
stofnun þess stendur hins vegar félagshyggjufólk úr
flestum stjómmálaflokkum landsins eða utan þeirra
og sjálfsagt setur það mark sitt á efnisval okkar.
ÞJÓÐLÍF er þó ekki málgagn í hefðbtmdnum skiln-
ingi þess orðs, ekki vettvangur fyrir predikara. Við
viljum hins vegar auðvelda lesendum að kryfja og
skilja innviði þess sérkennilega samfélags sem við
lifum í. Það er tilgangurinn.
Jón Guðni Kristjánsson.
ÞJÓÐLÍF
Tímaritið Þjóðlíf.
1. tölublað, 1. árgangur.
Útgefandi: Félagsútgáfan hf., Laugavegi
18A, sími 621880
Ritstjóri: Jón Guðni Kristjánsson.
Framkvæmdastjóri: ólafur ólafsson.
Auglýsingastjóri: Áslaug Jóhannesdóttir.
Ljósmyndir: Oddur Ólafsson
Prófarkalestur: Berglind Gunnarsdóttir og
Hildur Finnsdóttir.
Hönnun og Útlit: Bjöm Br. Bjömsson.
Umbrot: Jóhannes Eiríksson.
Prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi
hf.
Tímaritiö Þjóðlíf kemur út sex sinnum á ári.
Verð í áskrift fyrir þrjú tölublöö kr. 490,-
Verö í lausasölu kr. 179,-
Sérfræðilegir ráöunautar:
Efnahagsmál, stjórnmál, sagnfræði: Birgir
Ámason, Gísh Gunnarsson, Magnús Ól-
afsson, Svanur Kristjánsson. Orku- og iðn-
aðarmál: Finnbogi Jónsson. Húsnæöismál:
Guðni Jóhannesson, Ingi Valur Jóhannes-
son. Líffræöi, líftækni: Jakob Kristinsson,
úlfar Antonsson. Eölisfræöi, efnistækni:
Hans Kr. Guðmundsson. Jarðfræði: Sig-
urður Steinþórsson. Læknisfræöi, heil-
brigðismál: Helgi Kristbjamarson, Helgi
Valdimarsson. Tónlist: Aagot Óskarsdótt-
ir, Andrea Jónsdóttir, Tómas R. Einars-
son. Bókmenntir: Ámi Sigurjónsson, Þor-
valdur Kristinsson. LeikhÚS: Hlín Agnars-
dóttir.
Ráðunautamir bera enga ábyrgð á efni
og framsetningu nema sérstaklega sé til
þeirra vitnað eða þeir skrifi undir nafni.
4 ÞJÓÐLÍF