Þjóðlíf - 01.12.1985, Síða 17

Þjóðlíf - 01.12.1985, Síða 17
úrvalsskáldverka. Hér aö framan var miimst á verk af þessum toga, sem út komu í fyrra, og það er fagnaöarefni aö þessi þróun heldur áfram. Mál og menning gefur nú út fyrsta skáldverkið frá Tyrklandi sem gefið er út á íslensku, skáldsöguna Memed mjói eftir Yashar Kemaí. Kemal er víðfrægur höfundur, sem hefur verið þýddur á fjölda tungumála. Mál og menning gef- ur einnig út bókina Ástkona franska liðsforingjans eftir John Fowles í þýð- ingu Magnúsar Rafnssonar. Þetta er víð- kunn saga og kvikmynd gerð eftir henni hefur nýlega verið sýnd hér- lendis. Setberg gefur út skáldsögu Finnans Antti Tuuri, Dagrn í Austurbotni, en fyrir hana hlaut hann bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í fyrravetur og veitti þeim viðtöku í Háskólabíói. Njörður Njarðvík þýddi bókina. Af jarðarför Landsmóðurirmar gömlu nefnist skáldsaga kólumbíska nóbels- verðlaunahöfundarins Gabriel García Márquez sem Forlagið gefur út í þýð- ingu Þorgeirs Þorgeúrssonar. Guðberg- ur Bergsson hefur sem kunnugt er þýtt margar bækur þessa höfundar á ís- lensku, og þótt Þorgeir hafi nú tekið við, hefur Guðbergur ekki sagt skilið við þýðingar sínar á suður-amerískum bók- menntum. Forlagið gefur út þýðingu hans á skáldsögu eftir argentínskan rit- höfund, Emesto Sabato, og nefnist sagan Göngin í þýðingunni. Bækur eftir þennan höfund hafa ekki áður verið þýddar á íslensku, en hann mun vera raunvísindamaður að mennt og hafa starfað sem slíkur áður en hann sneri sér að ritstörfum. Hann hlaut virtustu bókmenntaverðlaun spænskumælandi þjóða, Cervantes-verðlaunin, á síðasta ári. Hjá nýju forlagi, Nótt, koma einvörð- ungu út þýddar skáldsögur. Af þeim má nefna skáldsögu bandaríska rithöfund- arins Norman Mailers, sem í íslenskri þýðingu Hjartar Pálssonar hefur hlotið heitið Hörkutól stíga ekki dans, en sagan kom út í Bandaríkjunum í fyrra og var þá valin fimmta besta skáldsaga ársins þar í landi. Ennfremur gefur Nótt út skáldsögu eftir Doris Lessing, Mirm- ingar eirmar sem eftir lifði, sem er nokk- urs konar vísindaskáldsaga er gerist að loknu kjamorkustríði. Loks má geta þess að Almenna bókafélagið gefur út skáldsögu Kurt Vonneguts, Guðlaun herra Rosewater eða Perlur fyrir svín í þýðingu Sveinbjöms I. Baldvinssonar. Saga Vilmundar Aðdáendur ævisagna þurfa ekki að fara í jólaköttinn í ár; framhöld af ævi- sögum sem urðu ofarlega á sölulista í fyrra koma út nú, svo sem ævisaga Guðmundar Kjæmested skipherra og Eysteins Jónssonar fyrrverandi ráð- herra. En fjölmargar nýjar bætast við. Jón Ormur Halldórsson fyrrum að- stoðarráðherra hefur skrifað stjómmála- sögu Vilmundar heitins Gylfasonar, fyrr- um alþingismanns, ráðherra, skálds og pólitísks hugsuðar, sem þrátt fyrir stutt- an feril hefur skilið eftir sig dýpri spor í íslenskum stjómmálum en margur sem „sjötugur hjarði" á alþingi. Jón Orm- ur þekkti gjörla til Vilmundar, enda gegndi hann ábyrgðarstöðu í stjómmál- um um það leyti sem Vilmundur var á hápunkti ferils síns; er hann átti í Al- þýðublaðsmálunum frægu, laut í lægra haldi í valdabaráttu innan Alþýðuflokks- ins, stofnaði Bandalag jafnaðarmanna og vann kosningasigttr skömmu fyrir dauða sinn vorið 1983. Hér er því á ferðinni forvitnileg samtímasaga og út- tekt á einum áhrifamesta einstaklingi í stjómmálabaráttu síðustu ára. Saga Vil- mundar nefnist Löglegt en siðlaust og kemur út hjá Bókhlöðunni. Hér er senni- lega komin metsölubókin í ár. Það mætti annars hafa mörg orð um ævisagnaritun íslendinga og hlutverk hennar. Ævisögur stjómmálamanna sem sestir em í helgan stein, hafa verið áberandi ttndanfarin ár. Hér er oft um gott afþreyingarlesefni að ræða, sem svalar í leiðinni einhverju af óbilandi forvitni landans um persónuhagi manna, eins og viðtalahringekja blaða og tímarita vitnar best um. Þessar ævi- sögur em einatt í besta falli vitnisburður um hvemig þjóðmálaskörungamir sjá atburði og eigin hlutdeild í þeim eftir á, en gagnrýnin umfjöllun er sárasjaldgæf og heimildir oft lítt kannaðar nema þær sem vitna um ágæti söguhetjunnar. Af- leiðingin er sú að lítill fengur verður í þessum ritum þegar pólitísk saga tutt- ugustu aldarinnar verður skráð. Und- antekningar má þó vissulega finna, til dæmis ævisögu Ólafs Thors sem Matt- hías Johannessen skráði. Flestar ævisögur íslenskra stjóm- málamanna vitna um þá tilhneigingu að hefja þá á stall, pússa af þeim mannlega bresti, stinga mistökum þeirra undir stól. Fæstum stjómmálamönnum er sýnd sú virðing að vega og meta starf þeirra í gagnrýnu ljósi. Slíkt ættu hins vegar stjómmálamenn að þola ef stærð þeirra er raunverulega sú sem oftast er látið að liggja í ævisögum þeirra. Hinn hvítþvegni stjómmálaengill á lítið erindi við almenning annað en að blekkja, koma þeirri hugmynd inn hjá almenn- ingi að allt væri betra ef stjómmála- skörunga fyrri tíma nyti við. Og sjálfsagt eiga íslendingar eftir að segja eftir nokkra áratugi: - Það var annað þegar þeir vom í fullu fjöri, Þorsteinn, Stein- grímur, Svavar og Jón Baldvin. Þá vom skörungar á þingi. Það er annað en liðleskjumar í dag. En þrátt fyrir þetta em áhugaverðar ævisögur á markaðnum í dag og má þar nefna ævisögu Aðalheiðar Bjam- freðsdóttur, Karvels Ögmundssonar út- gerðarmanns og svo auðvitað sögu Kjar- vals eftir Indriða G. Þá kemur út einkar áhugaverð bók um líf og list Jóhannesar Geirs listmálara eftir þá Sigurjón Bjöms- son og Aðalstein Ingólfsson. Og enn má nefna til endurminningar þeirra skáld- bræðra Einars Braga og Hannesar Sig- fússonar. Bókaútgáfa vor og haust Er það óbreytanlegt að bókaútgáfa á íslandi miðist svo að segja öll við einn mánuð? Má ekki nýta tækni og fjármuni betur með því að dreifa henni yfir árið? Eyjólfur Sigurðsson sagðist vænta mikilla breytinga í þessu efni þegar á næsta ári. Hann sagðist vita til þess að fjölmargir útgefendur stefndu að útgáfu kilja á næsta vori. Hugmyndin er að kanna hvort landsmenn vilji ekki kaupa bækur í auknum mæli til eigin nota, en nú em þær í 80% tilvika keyptar til gjafa. Ef vel tekst til verður hér um að ræða hreina viðbót við þá útgáfu sem nú er stað í landinu. ,3ókin á í mikilli samkeppni við aðra miðla, sjónvarp og myndbönd, og við ætlum ekki að tapa því stríði," sagði Eyjólfur og kvaðst raunar ekki hafa neinar áhyggjur af afdrifum bókarinnar. En hvað kosta jólabækumar í ár? ,3ækur hafa hækkað í takt við fram- færsluvísitölu og alls ekki umfram það,“ sagði Eyjólfur. Það þýðir að verð þorra bóka verður á bilinu milli 700 og 1700 krónur, eftir stærð þeirra og gerð. ÞJÓÐLÍF 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.