Þjóðlíf - 01.12.1985, Side 28
megavött eftir því hvemig kerfiö er
haimað.
• Fari kerfiö í viðbragðsstöðu eykst
aflþörfin upp í 2-20 megavött um
óákveðinn tíma.
• Ef til árásar kemur verður aflþörfin
tugir gigavatta um nokkurra mínútna
skeið.
Vopnatæknin þarf einnig aðgang að
háspenntu afli, 100 kílóvoltum, og háum
straumstyrk, 1000-3000 amperum.
Geimtæknin getur nú gefið um 10 am-
pera straum og 300 volta spennu. Orku-
nýtni á þyngd aflgjafa er í dag talin um
0.005 kílóvött á kg en samkvæmt óskum
stjömustríðsmanna er þörf á 3 kíló-
vöttum á kg. Það er því enn mjög langt í
land að aflgjafatæknin geti annað kröf-
um geimvamaáætlunarinnar.
Vörn til sóknar
Hér að framan hefur verið greint frá
meginatriðum þeirra hugmynda sem
opinberar em um geimvamaáætlun
Bandaríkjanna, öðm nafni stjömustríð-
ið. Það dylst trúlega engum hvílíkum
kröfum þarf að mæta til þess að komast
í námunda við að láta þær vonir ræt-
ast sem Reagan gaf bandarísku þjóðinni
og bandamönnum hennar. Ennfremur er
ljóst hvert regingap er frá stöðu tækni-
nnar í dag yfir í raunverulegt vamark-
erfi. Fréttir, sem nú berast af rannsókn-
um og þróunarstarfi vísindamanna í há-
skólum, stofnunum og fyrirtækjum,
segja þó árangur vera framar öllum
vonum. Það má því telja líklegt að ein-
hver þeirra vopna, sem em á döfinni,
verði að veruleika, enda er ekki verið
að sækja á mið óþekktra náttúrulög-
mála, heldur einungis að þróa nýja
tækni byggða á gömlum lögmálum,
sem teygð em til hins ítrasta.
Vopnin duga hins vegar skammt ef
samhæfingin og stjómunin er ekki í lagi
og þar virðist kraftaverka þörf.
Stjómkerfinu, sem lýst er hér að fram-
an, mun aldrei verða treystandi. Líklega
munu flestir sem til þekkja gera sér
grein fyrir þessu. Forystumenn geún-
vamaáætlunarinnar láta sér m.a. um
munn fara að kerfið geti þjónað tilgangi
sínum þótt það verði aldrei ömggt, m.a.
með því að mgla Sovétmenn í ríminu
svo að þeir viti aldrei hvaða flaugar
muni komast í gegn. Ljóst er því að
draumsýn Reagans um fullkomið öryggi
Bandaríkjanna og bandamanna þeirra
gegn kjamorkuvopnum verður aldrei að
veruleika.
Forystumenn geimvamaáætlunarinn-
ar segja oft að sovéskar geimvama-
rannsóknir séu í fullum gangi og Sovét-
menn standi Bandaríkjamönnum þar
síst að baki. Því miður em upplýsingar
um stöðu mála í Sovétríkjunum af
skomum skammti. Sovétmenn hafa
lengi átt mjög hæfa vísindamenn og
hafa gegnt forystuhlutverki á ýmsum
sviðum vísinda og tækni svo sem áður
var getið um agnageislatæknina. Það er
því ekki ólíklegt að þeir standi Banda-
ríkjamönnum framar í þróun einstakra
vopnagerða. Þeir munu hins vegar vera
mörgum árum á eftir Bandaríkja-
mönnum í rafeinda- og tölvutækni.
Geimvamakerfi í líkingu við það, sem
hér hefur verið lýst, á því væntanlega
miklu lengra í land austan hafs en
vestan.
Ekki er erfitt að líta á geimvamakerfi
Bandaríkjanna frá sjónarhóli Sovét-
manna sem sóknarvopn frekar en vam-
arkerfi. Ef geimvamakerfið dugar til
einhvers, þá er það góður bakhjarl fyrir
sóknaraðila, sem hyggst gera árás að
fyrra bragði. Þótt kerfinu verði aldrei
treystandi til að veijast allsheijarárás
1400 flauga eða fleiri, þá er vel hugsan-
legt að það geti varist þeim flaugum,
sem slyppu óskaddaðar úr fyrstu árás-
inni.
Sovétmenn hafa því mætt geimvama-
áætluninni með harðri andstöðu og ekki
er líklegt að hún muni stuðla að afvopn-
un. Eina raunhæfa leiðin til afvopnunar
er fækkun kjamorkuvopna. Hvort kjam-
orkustórveldið um sig getur auðveld-
lega tekið fyrsta skrefið án uggs um
eigin hag, svo margföld er ógnin á báða
bóga. Geimvamaáætlun Bandaríkjanna
er ekki skref til afvopnunar, heldur í
þveröfuga átt. Vígbúnaðarkapphlaupið
færist út í geiminn og búast má við að
Sovétríkin fjölgi frekar kjamorku-
flaugum en fækki til þess að gera vöm-
inni erfiðara um vik. Reagan dregur
heldur ekki dul á það í ræðu sinni, sem
fyrr var vitnað í, að halda þurfi kjam-
orkufælingunni stöðugt við, endumýja
langdrægar flaugar og bæta hefðbund-
inn vopnabúnað.
Kjamorkuvopnakapphlaupið hefur
nú staðið í fjóra áratugi. Geimvamaáætl-
unin býður okkur upp á 30-40 ára
áframhaldandi kapphlaup uns öllum
þáttum kerfisins hefur verið komið
fyrir. Mannleg ákvarðanataka er útilok-
uð til þess að viðbragð kerfisins verði
nógu snöggt, ef boð berst um árás.
Kerfið verður ennfremur morandi í vill-
um, og því er ekki ólíklegt að einhvem
tíma á þeim tíma sem um er rætt fari
kerfið sjálfkrafa í gang á röngum for-
sendum og kalli yfir okkur ragnarök.
Vísindin efla . . . ?
Geimvamaáætlun Bandaríkjanna er
fyrst um sinn aðeins rannsókna- og þró-
imarverkefni, í þeim tilgangi að meta
Áætlaður kostnaður vegna geimvarna-
áætlunarinnar til
Tölumar eru milljónir dollara.
TÆICNISVIÐ 1985 1986 1987 1988 1989 1990 heild
Skynjun og gagnasöfnun 546 1386 1875 2538 3065 3614 13024
Orku- og agna- geislatækni 376 966 1196 1435 1677 1903 7553
Árekstravopna- tækni 256 860 1239 1480 1675 1975 7485
Kerfístækni og orustustjómun 99 243 273 303 358 445 1721
Eyðingarmáttur lífslíkur og 112 258 317 400 514 700 2301
lykiltæknisvið Heildarupphæð 1397 3722 4908 6166 7300 8652 32012
Tölumar eiga við verkefni á vegum vamarmálaráðuneytisins. Verkefni
á vegum orkumálaráðuneytis em ekki meðtalin. Tölur ársins 1985 em
raunverulegar fjárveitingar, tölur ársins 1986 em tillögur, aðrar tölur
em áætlaðar. í heildartölum em innifaldar fjárveitingar til almennrar
stjómunar. Taflan er fengin úr heimild (1).
28 ÞJOÐLIF