Þjóðlíf - 01.12.1985, Qupperneq 29
raunverulega möguleika geimvama-
kerfis. í töflunni hér á síðunni sést
hvemig þeim milljörðum dollara sem
áætlað er að verja í verkefnið er skipt á
milli sviða og ára áður en taka á ákvörð-
un um uppsetningu kerfisins. Þessir
peningar em kærkomnir fyrir marga
vísindamenn í háskólum og stofnunum
sem sífellt em á höttunum eftir fé til að
sinna hugðarefnum sínum í hinni eilífu
þekkingarleit. Ég hef heyrt vísinda-
menn segja sem svo að það skipti ekki
máli hvort peningaflæðið frá opinber-
um aðilum er merkt geimvömum eins
og nú, eða orkutækni eins og var fyrir
um áratugi, í kjölfar orkukreppunnar.
Það er oft hægt að sveigja verkefnislý-
singar og verkefnaval örlítið í átt að því
sem forskriftin segir og fá fjárveitingar
til grundvallarrannsókna án þess að
hafa áhyggjur af því hvemig niðurstöð-
umar em síðan notaðar. Hins vegar fer
þeim vísindamönnum fjölgandi, sem
hafa lýst því opinberlega yfir að þeir
muni aldrei taka við peningum, sem
merktir em geimvamaáætluninni,
vegna þess siðleysis sem felist í for-
sendum þessara fjárveitinga.
Fyrirtæki í hátækniiðnaði, svo sem
geimtækni, tölvu- og rafeindatækni, sjá
sér einnig leik á borði að ná góðum
verkefnasamningum við Bandaríkja-
stjóm, og efla með því vöxt sinn og
viðgang. Bandamönnum í NATÓ hefur
ennfremur verið boðið að taka þátt í
framgangi áætlunarinnar og hafa há-
tæknifyrirtæki í Evrópu mörg lýst yfir
áhuga á að krækja í sinn hlut af
heildinni. Þegar þetta er ritað hefur
breska ríkisstjómin þegar lýst sig reiðu-
búna og fréttir berast af því að vestur-
þýska ríkisstjómin muni taka svipaða
ákvörðun. Mitterrand, Frakklandsfor-
seti hefur reynt að ná samstöðu meðal
Vestur-Evrópuríkja um sameiginlegt
átak í hátækniiðnaði án tengsla við víg-
búnaðarþróun. Átakið, sem kallað er
Eureka, er hugsað sem tilraun til þess
að halda í við þá þróun sem á sér stað í
bandarískum hátækniiðnaði vegna
geimvamaverkefnanna. Undirtektir
annarra ríkja virðast vera dræmar og
vafasamt hvað úr verður.
Það er oft fært geimvamaáætluninni
til framdráttar að hún hleypi af stað
tækniframförum á öllum öðrum sviðum
og færi þjóðfélaginu hátækni á silfurfati
til friðsamlegra nota. Oft er m.a. í því
sambandi bent á fordæmi geimferða-
áætlunar Bandaríkjanna, sem náði há-
punkti með fyrsta karlinum á tunglinu í
lok sjöunda áratugarins. Það er vissu-
lega rétt að ákafinn í rannsóknum og
tækniþróun er hvað mestur á stríðstím-
um og í öðrum tilvikum, þegar unnið er
að skammtímamarkmiði með svo til
ótakmörkuðum fjárveitingum. Hitt
gleymist oft, hve miklu hraðar þjóðir
heimsins yrðu þessarar velferðar að-
njótandi, ef sömu fjárveitingar lægju á
lausu eingöngu til almenningsheilla.
Geimvamaáætlun Bandaríkjanna er því
ein sú ótrúlegasta sóun á hugviti og
fjármagni, sem nokkum tíma hefur átt
sér stað.
Einnig má benda á að frjáls samskipti
vísindamanna eiga við ramman reip að
draga þegar rannsóknir tengdar her-
tækni eiga í hlut, jafnvel þótt um hreinar
grundvallarrannsóknir sé að ræða. Mik-
ilvægar vísindaniðurstöður eru geymd-
ar á bak við lás og slá trúnaðarstimpils-
ins af ótta við óvininn. Bandarískir vís-
indamenn eru mjög uggandi yfir þeirri
þróun sem fylgt hefur í kjölfar
geimvamaverkefnanna. Fundum og
ráðstefnum, sem áður voru opnar öllum
vísindamönnum, hefur verið lokað al-
veg eða að hluta fyrir erlendum gestum.
Einnig em uppi hugmyndir um að
hleypa ekki erlendum stúdentum og
vísindamönnum að vissum búnaði, svo
sem hinum svokölluðu ofurtölvum. Það
er því augljóst að fijálsri hugmyndaþró-
un vísindanna er þröngur stakkur
skorinn með geimvarnaáætluninni.
Framtíðarvelferð íslensku þjóðarinn-
ar mun í ríkum mæli byggjast á ný-
sköpun í iðnaði og þá sérstaklega á
hátæknisviðum eins og líftækni, efnis-
tækni og upplýsingatækni. í því sam-
bandi hefur verið nefnt að nýta megi
hemaðarlegt mikilvægi landsins og
veru erlends herliðs til þess að flytja inn
hátækniþekkingu. íslendingar gætu ef-
laust hagnast á því efnislega að byggja
upp hátækniiðnað í samvinnu við er-
lenda aðila, með verkefnum sem tengj-
ast geimvamaáætluninni. Það er hins
vegar von höfundar að þjóðin og kjömir
fulltrúar hennar á Alþingi og í ríkis-
stjóm beri gæfu til þess að byggja upp
íslenska atvinnuvegi á siðferðilega
traustari grundvelli en vígvélasmíði.
Heimildir
Stuðst var við eftirfarandi aðalheimildir:
(1) Star Wars, SDI: The Grand Experiment,
greinaflokkur í tímaritinu IEEE Spect-
rum, sept. 198S.
(2) Directed Energy Missile Defense in
Space, OTA background paper, eftir
Ashton B. Carter, apríl 1984.
(3) The Arms Race and Arms Control, The
Shorter SIPRI yearbook, Taylor & Fran-
cis, London 1984.
Dæmi um mann-
leg mistök
að er eiginlega ófrávíkjanlegt
lögmál að tölvuforrit innihalda vill-
ur, og séu þau stór getur verið erfitt
að komast fyrir þær fyrr en þær
gefa sig til kyrrna þegar síst skyldi.
Þessar villur eru af mörgum toga,
forritarinn gettu misritað eða forritið
verið byggt á röngum forsendum.
í tímaritinu New Scientist 10.
febrúar 1983 (s.353) er sagt frá eftir-
farandi atviki úr stríði Breta og Arg-
entínumanna um Falklandseyjar.
Nokkmm breskum orrustuskipum
var sökkt með argentínskum „Exo-
cet“-flugskeytum. Skipin voru búin
tölvustýrðum vamarbúnaði, sem
haldið var að hefði ekki getað séð
skeytin sem skriðu við yfirborð sjáv-
ar, og því ekki komið við vömum.
Nokkmm mánuðum seinna kom
hins vegar í ljós að vamarbúnaður-
inn hafði vissulega séð flugskeytin
og stjómtölvan meira að segja talið
þau réttilega vera af gerðinni „Exo-
cet“. Tölvan hafði hinsvegar tekið þá
ákvörðun samkvæmt forriti sínu að
„Exocet“-flugskeytin, sem em
frönsk að uppruna, væm vinveittar
flaugar og því látið þau afskiptalaus.
í tímaritinu Nature 27. júní 1985
(s.702) er greint frá því þegar leysi-
geisla var beint að speglum í glugga
geimfeijunnar Discovery frá fjalls-
tindi á Hawaiieyjum viku áður. Fyrs-
ta tilraunin misheppnaðist þannig að
leysigeislinn lenti á öfugri hlið feij-
unnar. Villan var leiðrétt og allt tókst
vel í annarri tilraun. Hver var þá
villan? Opinber skýring er sú að
stjómtölva um borð í feijunni hafi
óvart verið forrituð með enska mílu
sem lengdareiningu í stað sjómílu,
eins og átti að vera.
Vonandi kemur geimvamakerfið
ekki til með að ruglast á fetum og
metrum.
ÞJÓÐLÍF 29