Þjóðlíf - 01.12.1985, Side 34

Þjóðlíf - 01.12.1985, Side 34
Hellishvelfingar í Áshelli. Kjarval gerði fjórar myndir af þessum hvelfingum frá mismunandi sjónarhornum. Talið er að lofthæðin undir hvelfinguna fremst á myndinni hafi verið rúmir 2,5 metrar. „Papinn" sem Kjarval sá út úr skuggabrigðum bergveggjanna í Fjóshellinum á Ægissíðu. Myndin er nokkuð óræð, en gæti sýnt veru sem mannsmót er á, t.d. hettumunk eða jafnvel jötun með staf í hendi. Sólareyjan sem um getur í írskri sögn gg gamlir annálar vitna um. Á teikningum, sem síðar fundust eftir Kjarval, er þessi tákn að finna, en þau hafa ekki fundist í þeim hellum sem enn eru uppistandandi. Gamalt krot! Það sem stendur hugmyndum Einars Benediktssonar fyrir þrifum er að ekkert hefur enn fundist, hvorki helgar bækur, „bjöllur né baglar" sem bent gæti til búsetu papa eða keltneskrar byggðar. í hellunum hafa hinsvegar fundist merki um trúariðkanir; víða fyrirfinnast þar krossmörk. Þar á meðal hafa fundist sérstök krossmörk sem hvergi er að finna annarsstaðar en í hellum hér á landi. Tákn þetta samanstendur af stórum krossi með minni kross undir hvorum armi. Líkur hafa verið leiddar að því að krossar þessir séu einkennandi fyrir keltneska svæðið en ekki mun þó útilokað að hellamir hafi verið launhelgir staðir eftir siðaskipti. Matthías Þórðarson skoðaði hellana á Suðurlandi og ritaði um þá fyrmefnda grein í Árbók fomleifafélagsins. Þar andmælir hann hugmyndum Einars Benediktssonar um búsetu papa í hellunum. Hann drepur lítillega á veggjaristumar í Áshelli, en telur þær ekki merkilegar:...gamalt krot,“ segir hann, „upphafsstafir, búmerki, bogamyndir tvær ... rúnir sjást ekki eða þekkt fomleg rnerki," segir hann ennfremur. Þeir Matthías og Einar lesa sinn hlutinn hvor úr sömu rúnunum, þannig að Einar virðist ofmeta en Matthías vanmeta, eftir því sem Hallgerður og Ámi komast næst. Núlifendum er það vafalaust ofraun að leggja mat á ágreining Einars Benediktssonar og Matthíasar Þórðarsonar, - ekki síst þar sem Áshellir fyrirfinnst ekki lengur. Eftir að teikningar Kjarvals komu fram í dagsljósið, er þó alltaf von til þess að takast megi að ráða í þær rúnir sem hellirinn hafði að geyma. Enn hefur hinsvegar ekki tekist að ráða í myndverkin af neinu viti og því ekki unnt að svo stöddu að dæma um ágreining þeirra Einars og Matthíasar með hliðsjón af þeim. 34 ÞJÓÐLiF

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.