Þjóðlíf - 01.12.1985, Qupperneq 35
Það hefði sjálfsagt engan órað
fyrir því, þegar Kjarval var að
sniglast í Holtunum forðum tíð, að
þær ferðir hans gætu einn góðan
veðurdag haft áhrif á
menningarsögulegar rannsóknir
vísindamanna á manngerðum
hellum í Rangarþingi. Það er
skemmtileg tilvOjun á hundrað ára
ártíð hans, að enn skuli rísa úr
fymdinni verk þessa sérstæða
manns sem skóp einhver
dýrmætustu menningarverðmæti
sem okkar litla þjóð hefur af að
státa.
En hvemig komust þau
Hallgerður og Ami á snoðir um
teikningar Kjarvals?
Löngu gleymdar
glerplötur í kassa
„Við vorum lengi búin að eltast við
tvær Kjarvalsmyndir sem við fréttum
að Kjarval hefði launað
næturgreiðann með í Ási,“ segir
Hallgerður. Þau Ámi töldu að
myndimar gætu gefið einhverja
vísbendingu um það sem í hellinum
væri að finna. Þar sem
eftirgrennslan þeirra bar ekki
árangur - fólkið flutt frá Ási og
Kjarvalsmálverkin týnd - þá létu
þau kyrrt liggja, en rituðu grein í
Árbók fomleifafélagsins 1982 um
athuganir sínar á Skollhólahelli, þar
sem minnst var á myndimar týndu.
Eftir að sú grein birtist tóku hjólin
hinsvegar að snúast.
Skömmu síðar fengu þau
ábendingu frá konu sem kvaðst
muna eftir gömlum
ljósmyndaplötum í fórum eins
ættingja Einars Benediktssonar, en
þær vom sagðar ljósmyndir af
teikningum Kjarvals. Hallgerður tók
þegar að grennslast fyrir um
plötumar og nokkru síðar bárust
henni í hendur 35 ljósmyndaplötur af
svartkrítarteikningum Kjarvals úr
hellunum, þ.á m. úr Áshelli.
Ljósmyndimar báru þess vott að
Kjarval hafði verið
framkvæmdasamari við iðju sína en
þau Ámi og Hallgerður töldu
upphaflega. Hann hafði auk þess
komið víðar við en í Áshelli. Hófst nú
leit að frummyndunum. Sú leit bar
hinsvegar ekki árangur fyrr en
tveimur árum seinna. Þá fundust
frummyndimar í föggum látins
Krossmark í Árbæjarhelli. Þar og I helli að Gegnishólum í Flóa hafa fundist sérstök
krossmörk sem hvergi annars staðar eru þekkt hérlendis. Þau samanstanda af
stórum krossi með minni krossum, sínum undir hvorum armi. Kjarval hefur sést
yfir annan minni krossinn, enda er hann orðinn mjög máður.
Rúnir í Áshelli. Kjarval hefur tvíteiknað rúnirnar. Á efri myndinni eru þær á
skyggðum fleti, en að neðan á óskyggðum fleti. Enn sem komið er hefur engum
tekist að ráða í þessar rúnir.
ÞJÓÐLÍF 35