Þjóðlíf - 01.12.1985, Qupperneq 51
FJOLMIÐLUN
Ljósvakinn opnaður um áramót
Nú er ekki nema tæpur mánuður þar
til ný útvarpslög taka gildi. Þá verður
útvarpsrekstur gefinn „frjáls" öllum
þeim sem vilja spreyta sig og hafa tiltrú
þeirra sem halda um lánsfé og auglýs-
ingar í landinu. Þótt ekki sé langt þang-
að til lögin komast til framkvæmda er
enn flest óljóst um hvaða raunveruleg
áhrif þau munu hafa á ástandið á ljós-
vakanum.
Ástæðan fyrir þessari óvissu er fyrst
og fremst sú að nýju útvarpslögin eru
rammalöggjöf sem ekki kveður á um
smáatriði í framkvæmdinni. Það er ráð-
herra að setja reglugerð um þau. Auk
þess eru lögin að margra dómi afar
hroðvirknisleg og iha samin sbr. grein
sem Eiður Guðnason alþingismaður rit-
aði í DV stuttu eftir að þau voru sam-
þykkt sl. vor.
Reglugerð tilbúin fyrir
jól
Þegar lög eru óljós og illa samin verð-
ur reglugerðin, sem þau kalla á, þeim
mun mikilvægari og vald ráðherra og
annarra, sem veljast til að framfylgja
lögunum, því meira. Knútur Hallsson
ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneyt-
inu segir að nú sé unnið að því að semja
reglugerðina. Að því vinnur fjögurra
manna hópur undir stjóm Knúts og
bjóst hann við því að reglugerðin yrði
tilbúin fyrir jól.
Knútur varðist alira frétta af einstök-
um ákvæðum reglugerðarinnar. Á hon-
um var þó helst að skilja að enn ætti
eftir að taka ákvarðanir um ýmsa þætti.
Nýju útvarpslögin
eru um margt óljós
og því veltur
mikið á samningu
reglugerðar og starfi
útvarpsréttarnefndar
Þar er kannski stærsta málið hvort farið
verður eftir þeim hugmyndum Áma
Johnsens og fleiri þingmanna að skylda
allar útvarpsstöðvar og þar með Ríkisút-
varpið til að setja íslenskan texta við allt
erlent efni sem þær flytja eða í það
minnsta að þýða það jafnóðum munn-
lega.
Ástkæra ylhýra
Þetta er ákvæði sem mun m.a. hafa
þau áhrif að Bjami Felixson verður að
skrúfa niður í vinum sínum hjá evrópsk-
um sjónvarpsstöðvum og lýsa kapp-
leikjum sjálfur. En slíkt ákvæði mun líka
hafa mikil áhrif á þá sem hafa hugsað
sér að taka við sendingum frá erlendum
gervihnöttum og miðla þeim um þráð.
Þegar er vitað um a.m.k. eitt fyrirtæki
sem stofnað hefur verið um slíkan rekst-
ur, íslenska kapalsjónvarpið sem Jón
Óttar Ragnarsson og fleiri hafa sett á
laggimar utan um sendingar hnattarins
Sky Channel. Verði sjónvarpsstöðvar
skyldaðar til að þýða allt efni gæti það
haft áhrif á rekstur stöðva af því tagi
sem Rolf Johansen og Jón Ragnarsson
hafa boðað, þ.e. stöðvar sem kaupa
mestallt efni sitt tilbúið á spólum er-
lendis frá.
Vísast mun þó tæknin og framfarim-
ar gera þetta ákvæði óframkvæmanlegt
innan skamms. í Bandaríkjunum og
víðar hafa rutt sér til rúms sjónvarps-
hnettir sem dreifa efninu beint og ótrufl-
uðu. Það er beinlínis ómögulegt að
hindra fólk í að taka við útsendingum
þeirra nema með umsvifamiklum lög-
regluaðgerðum. Slíkir hnettú: munu
áreiðanlega emnig svífa yfir höfðum
okkar Evrópubúa þegar fram líða
stundir og þá þýðúr lítið að ræða um
íslenskan texta.
Valdamikil nefnd
Annað mál og óútkljáð er tilhögun
auglýsinga í sjónvarpi. Þær reglur gilda
um ríkissjónvarpið að óleyfilegt er að
rjúfa útsendingar með auglýsingainn-
skotum (þótt það hafi raunar verið gert
á dögunum þegar sýnt var frá krýningu
fegurðardrottningar heimsms í Lon-
don). Auglýsingar eiga að vera á milli
þátta og skýrt afmarkaðar frá dagskrá-
refni. Nýju lögin úuúhalda ekkert slíkt
ákvæði heldur er það falið útvarps-
réttamefnd að semja reglur um til-
högum auglýsmga. Að vísu ber henni
að hafa hliðsjón af reglum RÚV.
Þegar reglugerðin hefur verið samin
er næsta skrefið að kjósa útvarpsréttar-
nefnd, en samkvæmt lögunum eiga sæti
í henni sjö menn kosnir af Alþrngi. Sú
nefnd mun fá mikil völd því henni er
ekki aðeins ætlað að úthluta leyfum til
útvarpsrekstrar heldur einnig að semja
reglur um fjölmarga þætti rekstrarins;
auglýsmgar, fjármál, auglýsmgataxta og
fleira. Auk þess er það hlutverk nefnd-
arirmar að fylgjast með því að reglumar
séu haldnar og gera viðeigandi ráðstaf-
anir ef þær eru brotnar.
Ekki fyrr en í vor
Búast má við því að þessi nefnd verði
kjörin strax eftir að þing kemur saman
að loknu jólaleyfi, þ.e. í byrjun febrúar.
Þá á nefndin eftúr að semja sér starfs-
reglur áður en hún getur farið að úthluta
leyfum. Áhugamönnum um útvarps-
rekstur verður því ekki að þeirri ósk
smni að skrúfa frá tækjum sínum á ný-
ársnótt eins og sumir þeirra hafa látið
sig dreyma um. Það verður varla fyrr en
með vorinu sem fyrsm stöðvamar geta
farið af stað.
Knútur Hallsson sagði að margú:
hefðu sýnt útvarpsrekstri áhuga og sent
ráðuneytmu umsóknir. Auk þeirra sem
að framan eru nefndir, má telja víst að
ísfilm hefji útsendingar um leið og leyfi
fæst. Þá hafa BSRB og ASÍ látið í ljósi
áhuga á útvarpsrekstri, e.t.v. í samein-
mgu og jafnvel í samvinnu við SÍS sem
enn hefur þó ekki tekið ákvörðun um
það hvort hefja skuli samstarf. Og vafa-
laust munu ýmsú smærri aðilar vilja
spreyta sig þótt óvíst sé hversu lengi
slíkar túraunú muni lifa.
Félagshyggjufólk hlýtur að fylgjast
með þessari þróun af áhuga og halda
öllum dynun opnum fyrir hugsanlegum
útvarpsrekstri. Við þurfum í það
minnsta að ræða málin.
Þröstur Haraldsson
ÞJÓÐLÍF 51