Þjóðlíf - 01.12.1985, Side 65

Þjóðlíf - 01.12.1985, Side 65
(Ét^érilMÍ ■'* ■■ rr\ ' 1 ‘ ■ VerkfaU BSRB fyrir ári lifir enn í hugum manna, ekki hvað síst fyrir þá órofa samstöðu sem í því ríkti frá byrjun til enda. Fram til þess að verkfallið hófst var BSRB að miklu leyti óþekkt stærð og afl samtakanna var áreiðanlega vanmetið af stjómvöldum með þeim afleiðingum að þau hleyptu þeirri hörku í verkfallið að nærfellt hafði riðið þeim sjálfum að fullu. Enn þann dag í dag kemur glampi í augu þátttakendanna á verkfallsvöktunum er þeir minnast samstöðunnar og þeirrar stemmningar sem þar ríkti. Fólk sem aldrei hafði hist áður tengdist vináttu- böndum, rígur milli hópa og starfsstétta fyrirfannst ekki, flokkspólitískur ágrein- ingur gleymdist, allir áttu sér eitt og sameiginlegt markmið; að knýja fram miklar og raunverulegar kjarabætur öll- um opinberum starfsmönnum til handa. Þannig lýsa þátttakendur reynslu sinni af verkfallsvöktunum. „Það er byltingar- ástand í landinu," sagði Albert Guð- c mundsson í þingræðu þegar verkfalhð « stóð sem hæst. Það var sameiginlegt álit 'S, þeirra, sem spáðu í hin pólitísku spil, að S BSRB væri orðið að ótvíræðu forushiafli ra íslenskrar launþegahreyfingar, og að | stjómvöld, hver sem þau væru, yrðu O eftirleiðis að taka samtökin mjög alvar- <3 lega og gætu ekki aftur leyft sér að etja h við þau kappi með þeim hætti sem gert ® var fyrir rúmu ári. En á þessu ári hefur mikið vatn runn- ið til sjávar. Landsþing BSRB er nýaf- staðið. Það voru ekki einhuga samtök sem þar mörkuðu stefnu í kjarabarátt- unni til næstu ára. Brestur er kominn í BSRB, fréttamenn útvarps hafa sagt sig úr samtökunum, tæknimenn stofnunar- innar sömuleiðis, og fullkomin óvissa ríkir um hvort kennarar verða áfram eða ganga út. 90 rafeindavirkjar hjá Pósti og síma munu að líkindum ganga úr BSRB um áramótin. BSRB berst nú fyrir lífi sínu sem heildarsamtök opin- berra starfsmanna. Hvað hefur gerst á þessu eina ári, sem veldur slíkum klofn- ingi í samtökunum? Mistök í samningum eða almenn þjoðfelags- þróun? Forusta BSRB gerði stórkostleg mis- tök þegar hún fyrir rúmu ári síðan gekk tO samninga án kauptryggingar. Þessa skoðun heyrir maður oft í samtölum við BSRB-félaga, einkum þá sem stóðu í fremstu víglínu í verkfallsbaráttunni. Þetta fólk segir sem svo: Auðvitað hafði verkfallið reynt gífurlega á félagana, en fólk var tilbúið til að þrauka áfram. Það var hvort sem er orðið svo blankt, að ÞJÓÐLÍF 65

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.