Þjóðlíf - 01.12.1985, Síða 66

Þjóðlíf - 01.12.1985, Síða 66
vika tO eða frá hefði ekki skipt máli. Kauptrygging var það sem fólk vildi. Kristján Thorlacius, formaður BSRB, var spurður álits á þessu. Hann sagði: „Almennir félagar greiddu atkvæði um samningana. Þeir sem voru á móti þeim ráku harðan áróður fyrir því að fólk sýndi andstöðu sína með því að skOa auðu eða greiða atkvæði gegn samning- unum. Þátttakan í atkvæðagreiðslunni var í líku hlutfalh og gerist í alþingis- kosningum og 64% greiddu samningun- um jáyrði. Þrátt fyrir harðan áróður fyrir því að skOa auðu greiddu aðeins um 35% mótatkvæði eða skOuðu auðum seðlum. Þetta segir ailt sem segja þarf um afstöðu félagsmanna. Samningamir voru samþykktir með miklum meiri- hluta atkvæða. Það sem þama ræður er almenn þjóð- félagsþróun. Þeirri skoðun hefur vaxið fylgi að betra sé fyrir einstaka hópa að ná fram kjarabótum utan heOdarsam- taka en innan,“ segir Kristján. Einstakl- ingshyggjan hefur meiri byr í þjóðfé- laginu nú en áður, að mati Kristjáns, og tOhneigingar tO frjálshyggju gætir í vax- andi mæli innan launþegahreyfingar- innar. Ögmundur Jónasson fréttamaður er talsmaður þeirrar skoðunar að samning- amir í lok verkfallsins hafi verið mistök sem valdi þeirri kreppu sem samtökin eiga í um þessar mundir. „Það sem einkenndi verkfallið var þessi gífurlega samstaða. Fólkið uppgötvaði eigin- styrk. Verkfallið varð að svo einstæðum atburði vegna þess hve margir kraftar virkjuðust. Og þessi sameinaði hópur ætlaðist tO verulegs árangurs; 30% launahækkunar og verðtryggingar. Þess vegna varð niðurstaða samning- anna kjaftshögg. Og fólkið sem hafði staðið í slagnum fór að efast um að bandalagið, sjálft baráttutækið, væri rétt hannað.“ Lágtaxtastefna og launaskrid. Ógnun við samheldni launþegasamtakanna Þeir Kristján og Ögmundur em þarrn- ig á öndverðum meiði um það hvað setja skuli efst á blað þegar skýra á þrengingar BSRB. En þeir em sammála um að sú stefna að halda taxtalaunum í lágmarki en hygla ákveðnum hópum með fastri yfirvinnu eða öðrum auka- greiðslum sé hættuleg fyrir samheldni launþegasamtakanna og skapi erfiðar aðstæður á vinnustöðum. Kristján segir að launþegahreyfingin þurfi að knýja á um að taxtar séu í samræmi við útborg- uð laun. Lágir taxtar og launauppbætur undir borðið brjóti niður samstöðu fé- lagsmanna hennar. „Þetta hefur skapað þá trú meðal fjölda manns að stéttasam- tökin séu ónýt. í þessum efnum hefur launþegahreyfingin verið allt of and- varalaus." „Það er alkunna," sagði Kristján, „að ýmsum háskólamönnum er greidd föst yfirvinna og lestímar, sem eru réttlættir með því að þeir þurfi að halda sér við í starfi. Auðvitað væri eðlOegt að þetta væri innifalið í grunnlaununum. Sér- fræðingar fengju þannig kaup að ekki þyrfti að greiða þeim sérstaklega fyrir að halda sér hæfum í starfi. Þetta stefnir í að það ástand skapist á ríkisstofnun- um, sem víða þekkist hjá einkafyrir- tækjum, að samið sé á einstakl- ingsgrundvelli og menn haldi launum sínum leyndum hver fyrir öðrum.“ „Föstu launin þurfa að hækka af augljósum ástæðum," segir Ögmundur. „í fyrsta lagi á fólk að geta lifað af dagvinnutekjum. í öðru lagi er það mik- ið hagsmunamál þeirra, sem sækja við- miðanir sínar tO kauptaxta, ellOífeyris- þega og aðra, að taxtalaunin séu sem hæst. Það eykur vald atvinnurekandans yfir starfsmönnum þegar kauptaxtar eru aðeins hluti útborgaðra launa. Þar fyrir utan hefur reynslan sýnt að launaskriðið er mest hjá þeim sem hafa hæst launin fyrir.“ Ögmundur segist fylgjandi launa- jöfnuði. Hann telur kosti þess að allir á stofnunum eins og útvarpi og sjónvarpi séu í starfsmannafélögum meðal annars þá að allir ræði saman, bæði vel og Ola launaðir. Þeir sem séu í háu launaflokk- unum taki þátt í kjarabaráttu með ófag- lærða fólkinu með lágu launin. „Mesta niðurlæging sem hægt er að hugsa sér á vinnustað er þegar þér er bannað að segja hvað þú ert með í laun.“ „Kjaradómur fór inn á þá braut i fyrra að reikna föstu yfirvinnuna inn í grunn- launin hjá yfirmönnum," segir Kristján. „Sé meiri yfirvinna unnin en henni nem- ur er hún a.m.k. í sumum tOfellum greidd. Þetta eykur enn á launamis- réttið." 66 ÞJÓÐLÍF
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.