Þjóðlíf - 01.12.1985, Side 76
vegar að láta sér lynda 3. sætið, en
Botvinnik taldi árangur hans þó ágætan,
enda var hann eini keppandinn sem
tókst að leggja sigurvegarann að velli.
Árið 1978 vakti Kasparov loks veru-
lega athygli í heimalandi sínu er hann
sigraði á sterku skákmóti í Minsk. Þar
vann hann einnig stórmeistara í fyrsta
skipti. Það var Lutikov sem varð þessa
heiðurs aðnjótandi. Nú varð skammt
stórra högga á milli. Vorið 1979 var
Kasparov í fyrsta skipti boðin þátttaka í
alþjóðlegu skákmóti og var það haldið í
Banja Luka í Júgóslavíu. Þetta var mjög
sterkt mót, 14 af 16 keppendum voru
stórmeistarar; Anderson, Smejkal,
Petrosjan, Adoijan, Matanovic, Browne,
Kurajica og ýmsir fleiri. Kasparov mætti
þama framandi aðstæðum sem sést
best á því að einn keppenda hafði hann
ekki alþjóðleg stig. Skemmst er frá því
að segja að undrabamið sigraði glæsi-
lega, hlaut 1IV2 vinning af 15 mögu-
legum, tveim vinningum á undan næsta
manni! Árangur þessa 15 ára pilts var
heilum vinning fyrir ofan það sem kraf-
ist var til stórmeistaraáfanga. Eftir sigur-
inn í Banja Luka varð Kasparov heims-
þekktur á einni nóttu og ýmsir töldu að
þama væri á ferðinni efni í nýjan
heimsmeistara. Einnig vakti hinn geysi-
hvassi skákstíll verðskuldaða athygli,
annað eins hafði ekki sést frá því að Tal
var upp á sitt besta. Djúpur skilningur
og hárfín tækni lá þó að baki öllum
fómunum, eða eins og einn góður mað-
ur lýsti því; „Kasparov teflir nákvæmar
en Tal og hvassar en Fischer." Þegar
hér er komið sögu er varla ástæða til að
rekja skákmótaferil Kasparovs nánar.
Hafin var óslitin sigurganga sem endaði
á hæsta tindi fyrir nokkrum vikum.
Þegar árangur Kasparovs er borinn
saman við árangur annarra undrabama,
sem síðar urðu heimsmeistarar, kemur í
ljós að hann stendur þeim framar að
ýmsu leyti. Þannig urðu Fischer og
Spassky að gera nokkrar atrennur að
heimsmeistaratitlinum áður en hann var
í höfn. Kasparov varð heimsmeistari í
fyrstu tilraun, líkt og hástökkvari sem
stekkur 2,30 m á sínu fyrsta móti. Því er
fróðlegt að athuga gengi hans í heims-
meistarakeppninni í skák, en í þeirri
baráttu eru margir til kvaddir en fáir
útvaldir.
Auðveld atrenna að
heimsmeistaraeinvígj-
unum
Fyrsta millisvæðamótið sem Kaspar-
ov tefldi á var haldið í Moskvu 1982. Þar
sigraði hann með 10 vinningum af 13
mögulegum, IV2 vinningi fyrir ofan
næsta mann sem var landi hans Beljav-
sky. Slíkur árangur frá hendi Kasparovs
var nú hætmr að koma nokkrum á
óvart, enda var hann kominn með 2675
Elóskákstig, næstur á eftir Karpov sem
hafði þá 2700 stig. Öllum var einnig
orðið ljóst að K—in tvö stóðu fyrir tvo
sterkustu skákmenn heims, og enn í
dag er erfitt að sjá að aðrir skákmenn
muni í náinni framtíð koma til með að
blanda sér í baráttuna um heims-
meistaratitilinn.
Næst komu tvö einvígi við Beljavsky
og Smyslov, en Kasparov ruddi þeim
báðum úr vegi án minnstu fyrirhafnar. í
nóvember 1983 hófst loks einvígi milli
Kasparovs og Kortsnojs í London. Sigur-
vegarinn skyldi öðlast rétt til að skora
heimsmeistarann Karpov á hólm. Korts-
noj er gamalreyndur einvígishundur og
hann hafði því reynsluna fram yfir hinn
unga keppinaut sinn. Kortsnoj byrjaði
einvígið með sigri í fyrstu skákinni en
næstu fjórar urðu jafntefli. Ýmsir töldu
að þama væri draumurinn búinn fyrir
Kasparov, en í sjöttu skákinni tókst hon-
um að snúa atburðarásinni sér í hag. í
næstu skákum jók hann enn við for-
skotið og sigraði í einvíginu með 7 vinn-
ingum í 11 skákum. Einvígið við Korts-
noj hefur eflaust verið góður skóli fyrir
Kasparov, en í því kom einnig fram hinn
mikli baráttuvilji hans, þótt ekki blési
byrlega um tíma.
Langavitleysa í Moskvu
Nú var aðeins ein hindrun eftir að
heimsmeistaratitlinum, en hún ekki í
smærra lagi. Kasparov þurfti að sigra
heimsmeistarann Anatoly Karpov í ein-
vígi þar sem sá sigraði sem fyrr ynni
sex skákir, jafntefli ekki talin með. Þetta
fyrirkomulag er runnið undan rifjum
76 ÞJÓÐLÍF