Fréttatíminn - 29.08.2014, Side 16
Það er allt í lagi að
vera vandræða-
legur.
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.
20% afsláttur
Þ
etta er dramakómedía um
mannleg samskipti og
sambönd sem geta orðið
ansi snúin í okkar litla, ís-
lenska samfélagi,“ segir
Sigurður Skúlason leikari um mynd-
ina París norðursins sem frumsýnd
verður þann 5. september. Sigurður
leikur Svan, skólastjóra í þorpinu, sem
býður aðalpersónunni Huga vinnu.
„Hugi hefur flúið höfuðborgina og
vandamálin þar til finna sjálfan sig.
Hann hefur átt við vandamál að glíma í
einkalífinu og farið að drekka full mik-
ið,“ segir Sigurður en skólastjórinn
Svanur stýrir heldur kómískum AA-
fundum sem setja svip sinn á myndina
en aðeins þrír menn eru á fundunum
og bindast þeir allir nánum böndum.
Traust samskipti við leikstjórann
Með önnur helstu hlutverk fara þau
Björn Thors, sem leikur Huga, Nanna
Kristín Magnúsdóttir, Helgi Björns-
son, Jón Páll Eyjólfsson og Haki
Lorenzen. Sigurður segir að myndin
sé fyrst og fremst afrakstur samvinnu
Hafsteins Gunnars Sigurðssonar leik-
stjóra og Huldars Breiðfjörð hand-
ritshöfundar. „Þeir hafa unnið saman
áður, voru á sama tíma í námi úti í New
York og ég hef einnig unnið með þeim
áður,“ segir Sigurður en hann lék í
stuttmyndinni Skröltormar sem þeir
Hafsteinn Gunnar og Huldar unnu
saman og varð hlutskörpust á árlegri
kvikmyndahátíð Columbia-háskólans
í New York á námstíma þeirra þar.
Auk þess vann Sigurður með Haf-
steini Gunnari að heimildamyndinni
Paradox sem fjallar um samnefnda
stuttmynd frá árinu 1967 og aldrei var
fullgerð. París norðursins er önnur
kvikmynd leikstjórans í fullri lengd en
sú fyrsta var Á annan veg sem hlaut
fádæma lof, hérlendis sem erlendis.
Sigurður ber Hafsteini Gunnari vel
söguna, segir hann sjálfstæðan og
fara gegn straumnum. „Hann fer sínar
eigin leiðir, sem er gott. Hann hefur
líka lag á að velja gott fólk í kringum
sig þannig að það er góður andi í
Tileinkuð minningu Drafnar
París norðursins er önnur
kvikmynd leikstjórans Hafsteins
Gunnars Sigurðssonar í fullri
lengd en sú fyrsta, Á annan veg,
hlaut fádæma lof hérlendis sem
erlendis. Sigurður Skúlason fer
þar með hlutverk skólastjóra í
litlu þorpi úti á landi. Eiginkona
Sigurðar heimsótti hann á
tökustað síðasta sumar en lést
í bílslysi á leiðinni aftur heim.
París norðursins er tileinkuð
minningu hennar.
eiginmann sinn á tökustað á Flat-
eyri. Hún lenti í bílslysi í Skötufirði
í Ísafjarðardjúpi þann 13. júní þegar
hún var á leiðinni aftur heim til
Reykjavíkur.
„Þrátt fyrir að það sé liðið rúmt
ár síðan þá þykir mér enn erfitt að
ræða þetta opinberlega. Nú þegar
verið er að fara að frumsýna mynd-
ina rifjast þessi tími allur upp aftur
og það tekur á,“ segir Sigurður.
Þrátt fyrir áfallið lauk hann vinnu
við myndina en þegar slysið varð
átti hann eftir tvo og hálfan töku-
dag. „Ég hefði aldrei getað klárað
þessa daga svona nálægt þessu
áfalli ef góður vinur minn hefði
ekki boðist til að koma með mér
án þess að ég nefndi það við hann,
vinur sem vinnur við sálfræðimeð-
ferð. Annars vegar var það ástæðan
og síðan var það sá andi á tökustað
sem mætti mér þegar ég kom
aftur. Ég hef aldrei upplifað annað
eins. Allir voru eins og einn hugur
sem var ákaflega fallegt,“ segir
Sigurður. Leikstjóri myndarinnar
ákvað strax eftir fráfall Drafnar að
myndin skyldi vera tileinkuð minn-
ingu hennar.
Sigurður hefur undanfarið ár
unnið úr sorginni, meðal annars
með aðstoð frá Nýrri dögun, sam-
tökum um sorg og sorgarviðbrögð.
Hann segir fólk oft ekki vita hvern-
ig það á að haga sér í samskiptum
við fólk sem hefur orðið fyrir áfalli
en hvetur alla bara til að vera þeir
sjálfir. „Það er í lagi að vera vand-
ræðalegur,“ segir hann.
Íslensk kvikmyndagerð
blómstrar
Sigurður er stoltur af myndinni
og segir íslenska kvikmyndagerð
sannarlega blómstra um þessar
mundir. „Það er svo margt gott sem
er verið að gera. Leikarar og leik-
stjórar eru farnir að hasla sér völl
úti í hinum stóra heimi. Við eigum
mikið hæfileikafólk hér, bæði fyrir
framan og aftan kvikmyndatöku-
vélina,“ segir hann. Íslensk kvik-
myndagerð þarf þó á frekari stuðn-
ingi að halda, að mati Sigurðar,
sem hvetur stjórnvöld til að leggja
meira fé í þessa listgrein.
„Danir tóku þá ákvörðun á
sínum tíma að búa almennilega að
kvikmyndagerð og lögðu mikið fé
til hennar svo kvikmyndagerðar-
menn fengu tækifæri til að prófa
sig áfram. Það hefur sannarlega
skilað sér því Danir eru nú að verða
fremstir í heimi í gerð kvikmynda
og sjónvarpsþátta. Það er ótrúlegt
að sjá þættina sem þeir eru að gera.
Þarna höfum við fyrirmynd. Við
erum auðvitað bara ríflega 300 þús-
und manna samfélag en við getum
gert góðar myndir. Það fer mikið til
eftir metnaði þeirra sem fara með
völdin og fjármálin hversu langt við
náum. Við getum haslað okkur völl
og tekið okkur stöðu í samfélagi
þjóðanna sem skapandi menningar-
þjóð í fremstu röð. Við getum það ef
við viljum.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
vinnunni, frjáls og opinn. Maður
finnur fljótt hvað hann vill, þó
hann sé opinn fyrir samtali um
hvert hlutirnir eiga að þróast, en
maður hvílir í traustum samskipt-
um og sambandi við leikstjór-
ann og getur talað opinskátt við
hann,“ segir Sigurður.
Áfallið rifjast aftur upp
Það reyndi sannarlega á þessi
nánu tengsl við gerð myndar-
innar þegar Sigurður varð fyrir
því áfalli að missa eiginkonu sína,
Dröfn Guðmundsdóttur, í bílslysi.
Myndin var tekin upp á Flateyri
í maí og júní á síðasta ári. Dröfn
var myndhöggvari og glerlista-
maður en hafði einnig getið sér
gott orð sem leiðsögumaður og
meðan á tökum myndarinnar
stóð fór hún með þýska konu í
ferð um Vestfirði. Hún notaði
síðan tækifærið og heimsótti
Sigurður Skúlason missti eiginkonu sína á meðan á tökum stóð. Hann segir andann á tökustað hafa verið einstakan þegar
hann sneri aftur til að ljúka myndinni. Ljósmynd/Hari
Sigurður Skúlason sem Svanur og Jón Páll Eyjólfsson sem Richard í kvikmyndinni
París norðursins.
Dröfn Guðmundsdóttir, eiginkona
Sigurðar, lést þann 13. júní 2013
í bílslysi. Hún var 66 ára gömul,
fædd 20. mars árið 1947.
16 viðtal Helgin 29.-31. ágúst 2014