Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 78
78 matur & vín Helgin 29.-31. ágúst 2014
T Ú R I S T I
Einfaldari lEit að ódýrum
hótElum í útlöndum
Leitaðu og berðu saman tilboð á hótElum út um aLLan heim og skoðaðu úrvaLið af
sérvöLdum gististöðum, orLofsíbúðum og gistiheimiLum fyrir næstu utanLandsferð
á túristi.is. Lesendur okkar fá einnig regLuLega sérkjör á gististöðum út í heimi.
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
MONTY PYTHON LIVE (mostly) 7 - 31 ÁGÚST: 20.00
Kynntu þér Taíland á uu.is
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
Taíland
Strönd og borg á einstöku verði
7.–18. NÓV. OG 20. NÓV. – 1. DES.
Verð frá aðeins 299.900 kr.
Á Laugavegi 12 er veitinga-staðurinn Le Bistro. Stað-urinn býður upp á franskan
mat, frönsk vín, franska kokka og
andrúmsloftið er eins og á litlum
veitingastað í Montmartre hverfinu
í París. „Ég keypti staðinn í maí í
fyrra, en þá hét hann Frú Berglaug.
Um mánaðamótin kom svo Alex
De Roche inn í þetta með mér og
smám saman breyttum við staðnum
í Le Bistro og opnuðum formlega á
þjóðhátíðardegi Frakka, 14. júlí. Við
lokuðum samt staðnum aldrei, held-
ur breyttum honum bara í hljóði á
meðan gestir borðuðu,“ segir Arnór
Bohic.
Arnór er hálfur Frakki og hálf-
ur Íslendingur, og Alex er hálfur
Frakki og hálfur Portúgali. „Við
erum með franska kokka og nokkra
Frakka í þjónustuliðinu. Ætli það
séu ekki 8 eða 9 Frakkar að vinna
á staðnum þegar mest er, það finnst
Frökkum mjög skemmtilegt og Ís-
lendingum líka,“ segir Arnór.
Matseðillinn er samansettur af
frönskum sveitamat eins og pott-
réttum og sniglum en einnig erum
við með osta og klassíska franska
rétti eins og fondue og raclette sem
er mjög vinsælt. Svo notum við ís-
lenskt hráefni. Við fáum mikið af
frönskumælandi fólki, hvort sem
það er frá Frakklandi, Sviss, Belgíu
eða Kanada og allir sem koma til
okkar hafa orð á því að þeim hafi
liðið eins og heima hjá mömmu. Hól-
ið verður ekki mikið betra,“ segir
Arnór.
Hvar finnið þið þessa Frakka og
af hverju eru þeir að vinna hér á
landi?
„Bæði er þetta ungt fólk sem
kemur til landsins að leita að æv-
intýrum en kokkana fundum við á
netsíðu sem hýsir fólk sem hefur
áhuga á því að vinna erlendis. Ég er
búinn að vera í þessum bransa í 20
ár og það er alltaf erfiðara og erfið-
ara að fá íslensk ungmenni til þess
að vinna í þjónustustörfum, þá leitar
maður bara annað. Hjá Frökkum er
mikil hefð fyrir þessum störfum og
gott að vinna með þeim. Vissulega
gefur það staðnum enn franskara
yfirbragð að heyra ekkert nema
frönsku talaða á meðan maður fær
sér að borða,“ segir Arnór.
Le Bistro er opinn öll kvöld og
hægt er að finna allar upplýsingar
um staðinn á síðunni www.lebistro.
is.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Veitingar Frönsk matargerð Á LaugaVegi
Arnór Bohic og Alex De Roche reka veitingastaðinn Le Bistro
á Laugavegi. Franskir kokkar og nokkrir Frakkar eru í þjón-
ustuliðinu því það er sífellt erfiðara að fá íslensk ungmenni í
þjónustustörf.
Frökkum líður eins
og heima hjá sér
Arnór og Alex ráða ríkjum á Le Bistro á Laugavegi. Þar er hægt að fá franskan sveitamat og klassíska franska rétti.