Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 51
Heilsa
Helgin 29.-31. ágúst 2014
Saksóknarar
í hörkuformi
LÍFSTÍLL
STYRKUR
BRENNSLA/MÓTUN
HARDCORE
Verum hraust í haust...
H afdís Jónsdóttir, eða Dísa í World Class, segir okkur frá undirbúningi haustsins í World Class. „Við rekum
níu heilsuræktarstöðvar á höfuðborg-
arsvæðinu og korthafar okkar hafa að
auki aðgang að þremur sundlaugum
auk allra opinna hóptíma,“ segir Dísa.
Hún segir undirbúning haustsins fara
vel af stað og hlakkar til vetrarins.
Ný heimasíða og bókunarkerfi í
vinsæla hóptíma
Nú í sumar tók World Class nýja
heimasíðu í notkun sem býður upp
á þann möguleika að bóka sig í hóp-
tíma viku fram í tímann og fá áminn-
ingu í farsímann. „Nú þarf enginn að
gleyma heilsuræktinni sinni,“ segir
Dísa. „Þessi nýjung hefur mælst vel
fyrir, nú þarf fólk ekki að standa í
biðröð eftir aðgangi í tíma, það bókar
sig í tímana í gegnum heimasíðuna og
tryggir sér þar með pláss,“ segir Dísa
ennfremur.
Ný spinninghjól í Laugum
„Við höfum endurnýjað öll spinning-
hjól í Laugum og þau eru af nýjustu
og bestu gerð frá LifeFitness. Einnig
höfum við bætt við spinninghjólum
á aðrar stöðvar.“ Dísa segir spinn-
ingtíma vera í Laugum, Seltjarnar-
nesi, Ögurhvarfi og Mosfellsbæ. „Það
er gífurleg aðsókn í spinningtíma
hjá okkur, því kemur þessi viðbót á
hjólum sér einstaklega vel.“
Opnir hóptímar, ný tímatafla
tekur gildi 1. september
Viðskiptavinir World Class hafa að-
gang að öllum opnum hóptímum. Um
er að ræða mikið úrval tíma, „Spinn-
ing og Hot Yoga eru okkar vinsælustu
tímar en við höfum margt í boði og
fjölbreytnin er í fyrirrúmi. Við kynn-
um til leiks tímatöflu vetrarins,
1. september næstkomandi,“
segir Dísa.
Ný og spennandi nám-
skeið – mikið af nýjungum
Dísa segir að fjöldi nýrra
námskeiða verði í boði. „Við
höfum mikið úrval námskeiða
nú í september og má með
sanni segja að allir eigi að
finna námskeið við hæfi.“
Af nýjungum má nefna
nýtt æfingakerfi, Kick
Fusion, þar sem
unnið er með
eigin líkams-
þyngd og
Tabata
æfingalot-
ur. Önnur
vinsæl
námskeið
Hraust í haust!
Unnið í samstarfi við
World Class.
eru meðal annars Hörkuform, Nýr lífsstíll,
Fit Pilates í heitum sal, Mömmutímar, Með-
göngunámskeið, Herþjálfun og fleiri. „Fyrir
unglingana bjóðum við upp á 12 vikna nám-
skeið, Unglingahreysti, en það eru námskeið
fyrir þá sem eru í 7. - 10. bekk. Á námskeið-
inu fræðast unglingarnir um hollt mataræði,
æfingar og heilsu. Hægt er að nýta frí-
stundastyrkinn á það námskeið.“
Nánari upplýsingar og skráning er á
heimasíðu World Class, www.worldclass.is.
bls. 52
Ekki æfa á
fastandi maga
bls. 74