Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 62
heilsa Helgin 29.-31. ágúst 201462
GRÍPTU SÚPERBAR MEÐ ÞÉR Í RÆKTINA!
SÚPERBAR
Hráfæði - lífrænt ræktað - hreinsandi
orkugefandi - bragðgott - enginn viðbættur sykur - án mjólkur
glútenlaust - inniheldur ávexti, grænmeti og fleira
Níu tegundir af ofurfæðu:
bláber
hindber
rauðrófusafi
gojiber
spírulína
hörfræ
chiafræ
kínóa
hveitigras
G læsileg vetrardagskrá hefst hjá Kramhúsinu 8. september. Að sögn Þórunnar Ásdísar Óskarsdóttur, verkefnastjóra
í Kramhúsinu, er dansfiðringur landans
áþreifanlegur því rjúkandi eftirspurn
er eftir dansnámskeiðum af ýmsu tagi.
„Beyoncé dansnámskeiðin með mjaðma
dilli og hressum sveiflum eru að verða
fullbókuð en til huggunar fyrir þá sem
ekki komast að á fyrstu námskeiðin, þá
hefjast ný eftir sex vikur,“ segir hún. Con
temporary danstímarnir eru gríðarlega
metnaðarfullir, kennararnir einstaklega
færir og tekur Ásgeir Helgi Magnússon
vel á móti þátttakendum í haust.
Hristingur með Ásrúnu Magnúsdóttur
Kramhúsið sér vel um þá sem haldnir
eru dansþrá og verður boðið upp á nýtt
og spennandi námskeið sem heitir
Hristingur. „Þetta er nýtt af nálinni hér á
landi og er það dansarinn Ásrún Magn
Dansfiðringur í loftinu
Dansinn nýtur sífellt
meiri vinsælda hér
á landi enda er
hann frábær leið til
að koma sér í gott
form. Í Kramhúsinu
verður boðið upp
á fjölda spenn-
andi námskeiða í
vetur. Meðal þeirra
er Hristingur sem
er blanda af dansi
og slökun og svo
hinn orkugefandi
afródans. Sérstakir
jógatímar verða í
boði fyrir karlmenn.
Nemendur í samtímadansi baksviðs á vorhátíð Kramhússins.
Herrajóga
Krakkajóga
Jóga
Jóga nidra
Pilates
Leikfimi
Afró
Beyoncé
Bollywood
Contemporary
Jane Fonda danssviti
Tangó
Magadans
Hristingur
Zumba
Balkan
Dans fyrir krakka frá
3ja ára
Tónlistarleikhús
Popping
Breikdans
NÁMskeið í boði
úsdóttir sem leiðir fólk í gegnum dansinn.
Hún lofar góðri líkamsrækt og hressi
legri stemningu. Þarna verður dansi og
slökun fléttað saman við ryþmíska tónlist.
Hristingurinn er skemmtilegur en hann
losar um uppsafnaða spennu í líkamanum
og veitir mikla vellíðan. Allir hafa gott af
því að hristast!“ Í Jane Fonda danssvita
tímunum hjá Siggu Ásgeirs fá dansarar
flotta brennslu við góða tónlist og gera
gamaldags og nútíma Jane Fonda styrkt
aræfingar.
Jóga fyrir karlmenn
Að sögn Þórunnar er dansinn klárlega
stuðleið til að koma sér í form. „Dans
inn eykur vellíðan og það gerir jóga og
pilates ástundun svo sannarlega líka, en
á aðeins annan hátt. Pilates tímarnir og
jóga tímarnir eru góð leið til að ná styrk,
liðleika og vellíðan undir góðri og öruggri
leiðsögn.“ Í haust verður boðið upp á Herra
jóga sem eru sérstakir tímar fyrir karla.
Þarna gefst þeim tækifæri til að auka
styrk, liðleika og jafnvægi, en jafnvægisæf
ingar eru gjarnan vanmetnar.
skapandi barnastarf
Kramhúsið leggur metnað sinn í skapandi
barnastarf fyrir börn frá 3ja ára aldri og
eru þau yngstu í góðum höndum hjá Guð
björgu Arnardóttur. „Krakkarnir koma
aftur og aftur á námskeiðin, sem eru jú
bestu meðmælin.“
Tónlistarleikhúsið er líflegt námskeið
þar sem leikur og sköpunargleði ráða
ríkjum. Álfheiður Björgvinsdóttir kennari
notast við aðferðir leiklistar og tónlistar,
fjölbreytta leiki, hreyfingu og hlustun þar
sem aðal áherslan er á notkun raddar og
líkama í sköpun, auk þess að gera tilraunir
með hefðbundin og óhefðbundin
hljóðfæri, ásamt spunavinnu og
fleiru.
Popping með Natöshu og
brynjari Degi
Popping dansstíllinn er vaxandi á
Íslandi og nýtur Kramhúsið mikilla
hæfileika Natöshu og Brynjars
Dags, sigurvegara Iceland Got
Talent. Krakkar allt frá 5 ára aldri
ná fljótt tökunum á breik rútínum
undir leiðsögn Natöshu og Chris.
Breikarar eiga von á góðu því að
bandarískur dansari sem kallar
sig RobNasty Rocker kemur í
heimsókn í október og þá verður nú
aldeilis breikað í botn. Götudansar
hafa óneitanlega verið vinsælli á
meðal drengjanna. Til að auka val
möguleika í dansinum bjóðum við
spennandi danstíma með æfingum,
dansgleði, spuna og samhæfðum
dönsum fyrir stelpur 7 til 9 ára og
10 til 13 ára.
Nánari upplýsingar um nám
skeiðin má nálgast á vefnum www.
kramhusid.is og á Facebooksíð
unni Kramhúsið.
Unnið í samstarfi við
Kramhúsið.
Brynjar
Dagur,
sigurvegari
Iceland Got
Talent, með
nemendum
sínum í
Popping.
Ljósmynd/
Spessi