Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 34
WWW.LEIKHUSID.IS WWW.LEIKHUSID.IS
Hættir lífi sínu
í mannréttinda-
baráttu í Úganda
Eftir að hafa kynnst íslensku samfélagi ákvað David Kajjoba að
helga líf sitt baráttunni fyrir mannréttindum í heimalandi sínu,
Úganda. Réttindi samkynhneigðra eru meðal þess sem David
berst fyrir en samkynhneigð er ólögleg í Úganda. Nú er David
kominn á svartan lista hjá stjórnvöldum og hann hefur fengið
morðhótanir alla leið til Íslands auk þess sem stórar ljósmyndir
af honum hafa verið birtar á götum Kampala til þess að ögra
David og skapa múgæsingu gegn samkynhneigðum. David snýr
aftur til Úganda í september en veit ekki hvað bíður hans þar.
S
íðan ég man eftir mér
hef ég átt mér þrjá
drauma. Að ferðast,
klára háskólanám og
vinna við að hjálpa
fólki,“ segir David Kajjoba. Þessir
draumar hafa nú allir ræst. Þegar
David er ekki að kenna ungu fólki
á tölvur og berjast fyrir mannrétt-
indum í Úganda vinnur hann fyrir
hjálparsamtök á Íslandi og nýtur
lífsins með vinum sínum í Mos-
fellsbæ, þar sem hann hefur eytt
fjórum síðastliðnum sumrum.
„Fyrir tæplega tíu árum vann ég
í hlutastarfi sem bílstjóri í fyrir-
tæki frænku minnar. Þar kynntist
ég Pálma Steingrímssyni og Sylgju
Dögg Sigurjónsdóttur. Ég var bíl-
stjórinn þeirra í nokkra daga og við
urðum strax miklir vinir og í dag lít
ég á þau sem fjölskyldu mína. Ég
hef aldrei verið trúaður en svona
tilviljanir fá mig stundum til að
trúa því að það sé eitthvað þarna
uppi sem stýrir manni í rétta átt.
Ísland hefur gefið mér svo mikið.
Bæði víðsýni og menntun,“ segir
David en vinir hans á Íslandi gerðu
honum kleift að fara í háskólanám í
upplýsingatækni í Kampala.
David segir fyrstu heimsókn sína
til Íslands hafa mestmegnis farið í
það að vera stöðugt undrandi. „Allt
var svo framandi. Ég kom um jól og
þetta var í fyrsta sinn sem ég ferð-
aðist út fyrir Afríku. Um leið og ég
fór að eyða hér meiri tíma fór ég
að átta mig á því hversu dásam-
legt þetta land er. Því hér eru allir
jafnir. Hér stendur fólk saman og
hjálpast að, sama hvaða stétt það
kemur úr. Fyrir mér er þetta skil-
greiningin á paradís, að virðing
sé borin fyrir öllum manneskjum
sama hvaða bakgrunn þær hafa.“
Hataði samkynhneigða
Þrátt fyrir að hafa alltaf dreymt um
að vinna við að hjálpa fólki segir
David Ísland, auk þess að hafa farið
í háskólanám, eiga stóran þátt í því
að hafa opnað augu sín fyrir því
hvað mannréttindi væru. „Eins og
langflestir í Úganda, þá hataði ég
samkynhneigða. Ég var alinn upp
við þá trú að samkynhneigð væri
röng. Ég vissi ekki betur. Um leið
og ég byrjaði að mennta mig fór
ég smátt og smátt að sjá heiminn
í nýju ljósi. Ég fór að skammast
mín fyrir fáfræði mína og fékk
hryllilegt samviskubit yfir því að
hafa ekki staðið með fólki sem
hefur þurft að þola óréttlæti og ég
skammaðist mín sérstaklega fyrir
Fólksfjöldi: 33.6 milljónir.
Höfuðborg: Kampala, 1.6 milljón.
Bresk nýlenda þar til 1962.
Aðalútflutningur: Kaffi, en miklar vonir eru bundnar við olíu- og
gasvinnslu.
Landið á sér langa sögu stríðsátaka en eitt versta tímabil landsins
var undir ógnarstjórn Idi Amins, frá 1971 til 1979. Talið er að 500.000
Úgandabúar hafi dáið undir hans stjórn.
Forseti: Yoweri Museveni, frá 1986. Komst til valda með hjálp hersins. Faðir Davids lést í
því stríði.
Í október 2010 birti „Rolling Stone“ dagblaðið í Úganda forsíðu með myndum af sam-
kynhneigðum undir fyrirsögninni „Hengjum þá“. Þremur mánuðum síðar var David
Kato, helsti baráttumaður fyrir réttindum samkynhneigðra í Úganda, myrtur á heimili
sínu. Eftir að Museveni skrifaði undir lög í febrúar á þessu ári, sem banna samkyn-
hneigð, hefur hann hlotið mikla gagnrýni alþjóðasamfélagsins. Um 140 milljónir dala
sem áttu að fara í aðstoð við uppbyggingu landsins, frá Alþjóðabankanum, Bandaríkj-
unum og nokkrum Evrópuríkjum, hafa verið dregnar til baka.
David Kajjoba hefur stefnt lífi sínu í hættu vegna baráttu sinnar fyrir mannréttindum í Úganda. „Mamma var bara sautján ára
þegar hún átti mig í miðju frelsisstríði Úganda. Pabbi dó í stríðinu, áður en ég fæddist, og báðir afar mínir höfðu áður dáið í
stríði. Þegar ég hugsa um allt sem hún hefur þurft að þola þá vil ég ekki íþyngja henni með rökræðum sem leiða okkur ekkert
áfram. En einmitt þess vegna er menntun svo mikilvæg og sérstaklega kvenna.“ Ljósmyndir/Hari
það óréttlæti sem ég hafði sjálfur
beitt. Síðan í barnaskóla hafði einn
af strákunum í hópnum verið mjög
kvenlegur og við vorum stöðugt að
gera grín að honum fyrir að hafa
ekki náð sér í stelpu. Svo fréttum
við að hann hefði reynt við strák
úr skólanum og við réðumst allir
að honum og kölluðum hann illum
nöfnum. Hann fór úr landi daginn
eftir og við höfum ekki séð hann
síðan.“
Menntun kvenna mikilvægust
David segir þennan hugsunarhátt
sinn hafa verið afsprengi þeirra
aðstæðna og þess umhverfis sem
hann komi úr. „Það er kannski eitt
prósent þjóðarinnar sem styður
réttindi samkynhneigðra. Þú heyrir
í sjónvarpinu fólk ræða það hvernig
eigi að útrýma þessu fólki. Margir
tala um hengingar. Það er ekki
auðvelt að brjótast út úr hatrinu og
hræðslunni gagnvart þeim sem eru
öðruvísi. Til þess þarf að mennta
fólk og sér í lagi mæður, því það eru
þær sem ala upp næstu kynslóðir.“
„Ég er alinn upp á mjög kristnu
heimili. Mamma er á móti samkyn-
hneigð, hún trúir því í hjarta sínu
að samkynhneigð sé óeðlileg. En
ég get ekki rökrætt við hana. Þegar
ég var yngri var ég viss um að hún
elskaði mig ekki. Hún faðmaði mig
aldrei og hún átti það til að skilja
Framhald á næstu opnu
ÚganDa
34 viðtal Helgin 29.-31. ágúst 2014