Fréttatíminn - 29.08.2014, Blaðsíða 90
Í sýningunni fylgja þátttakendur Aude Busson, leiðsögumanninum sem þekkir allt og alla, og fara með henni
í ferðalag um hvern krók og kima, allar
götur og garða, litlu húsin og leyndarmál-
in sem þau geyma.
Ég elska Reykjavík er fyrsta fjöl-
skyldusýningin í sögu Lókal, en í henni
býðst áhorfendum tækifæri til að upp-
götva borgina upp á nýtt í óhefðbundinni
gönguferð með ýmsum uppákomum, að
því er fram kemur í tilkynningu en bent
er á að fullorðnir verða að koma í fylgd
barna og passa að klæða sig eftir veðri.
Að verkinu standa, auk Aude Busson,
Sólveig Guðmundsdóttir og Snæbjörn
Brynjarsson. Verkið er styrkt af mennta-
málaráðuneytinu.
Aude Busson flutti til Íslands fyrir tíu
árum frá Frakklandi. Hún útskrifaðist
frá sviðshöfundabraut Listaháskóla Ís-
lands árið 2011 og hefur unnið með
fjölmörgum síðan. „Verk hennar eru oft
opin og bjóða upp á virka þátttöku, auk
þess sem hún hefur boðið upp á leik-
listarnámskeið handa innflytjendum í
samstarfi við Borgarleikhúsið,“ segir
enn fremur.
Sólveig Guðmundsdóttir hefur unnið
við fjölda leiksýninga og kvikmynda.
Auk kvikmyndanna Blóðhönd og Brim
hefur hún verið í sýningunum Meist-
arinn og Margaríta, Örlagaeggin, In
Transit og Bláa Gullinu. „Það má segja
að hún hafi sérhæft sig í vinnu með
trúðatækni en hún skrifar og vinnur
með Pörupiltum.“
Snæbjörn Brynjarsson hefur skrifað
einleiki og leikrit. Hann vann íslensku
barnabókaverðlaunin ásamt Kjartani
Yngva Björnssyni fyrir bók þeirra
Hrafnsauga árið 2012. Síðan hefur bókin
Draumsverð komið út og er þriðja bók
seríunnar væntanleg í haust. - jh
LókaL Leit að LeyniLeiðum og ævintýrum
Ég elska Reykjavík
Útivistarlist fyrir krakka og fullorðna stendur til boða um helgina, leiðsögn Aude Busson um
Reykjavík fyrir börn frá 7 ára aldri og fullorðna í leit að nýjum ævintýrum. Ég elska Reykjavík var
frumsýnt á Lókal í gær, fimmtudag, en verkið var sýnt á sérstakri forsýningu á Menningarnótt.
Sýningar verða fram á sunnudag, 31. ágúst.
Í sýningunni fylgja þátttakendur Aude Busson og fara með henni í ferðalag um hvern krók og kima, götur og garða, litlu húsin
og leyndarmálin sem þau geyma.
Ég elska
Reykjavík
er fyrsta
fjölskyldu-
sýningin í
sögu Lókal.
akureyrarvaka myndbandsverk Örnu vaLsdóttur
Eins og fugl sem helgar sér svæði
Á Akureyrarvöku á morgun, laugar-
daginn 30. ágúst klukkan 15, opnar í
Listasafninu á Akureyri sýning Örnu
Valsdóttur Staðreynd – Local Fact. Á
sýningunni gefur að líta mörg eldri
myndbandsverka Örnu ásamt nýju
verki sem sérstaklega var unnið af
þessu tilefni, að því er fram kemur í
tilkynningu.
Á opnuninni flytur kammerkórinn
Hymnodia gjörning og listamanna-
spjall verður með Örnu klukkan 20.
Listasafnið verður opið til klukkan
22 vegna Akureyrarvöku.
Í tilefni sýningarinnar kemur út
vönduð sýningarskrá hönnuð af Sig-
ríði Snjólaugu Vernharðsdóttur með
texta á íslensku og ensku eftir dr.
Hlyn Helgason: „Hlutverk raddar-
innar í Staðreyndum 1–4 er sérstakt
og áberandi. Það er persónulegt og
tengist Örnu sjálfri. Það er hennar
rödd sem ómar í sýningarrýminu.
Ómurinn er hennar leið til að skrá
rýmið og tileinka sér það. Eins og
fugl sem helgar sér svæði með kvaki
sínu gerir Arna rýmið að sínu með því
að raula í því.“
Sýningin stendur til 12. október
og er opin þriðjudaga til sunnudaga
klukkan 12-17. Leiðsögn um sýning-
arnar í Listasafninu/Ketilhúsinu er
alla fimmtudaga klukkan 12. - jh
Það er rödd Örnu Valsdóttur sem ómar í
sýningarrýminu.
Græjaðu
skólann!
Borgartúni 37 / Kaupangi Akureyri / nyherji.is/skolatolvur
Lenovo Yoga 2 13,3”
Verð: 154.900 kr.
Spjald- eða fartölvu?
Sameinaðu kosti beggja
með einni græju.
360
Lenovo G50 15,6”
Verð: 54.900 kr.
Stílhrein námstölva
á frábæru verði.
Lenovo Yoga 10” HD+
Verð: 51.990 kr.
Skærasta stjarnan á svæðinu.
Með innbyggðum standi. 18 klst.
Allt sem námsmaðurinn þarf
90 menning Helgin 29.-31. ágúst 2014